Málun fjöleignarhúss

Athvarf handlagna heimilisnördsins

Höfundur
Raskolnikov
Fiktari
Póstar: 62
Skráði sig: Mið 22. Jan 2014 02:12
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Málun fjöleignarhúss

Pósturaf Raskolnikov » Fös 16. Mar 2018 10:33

Sæl,
Bý í lítilli 8 íbúða blokk. Það lendir á mér að athuga kostnað og möguleika við að mála blokkina. Hefur einhver staðið í slíku og getur gefið mér einhverja hugmynd hvernig best væri að standa að þessu. Einhverjar sögur um góða/slæma verktaka og ballpark hugmynd um kostnað per íbúð?



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Málun fjöleignarhúss

Pósturaf Viktor » Fös 16. Mar 2018 10:54



I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


DanielSkals
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Sun 05. Feb 2012 00:34
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Málun fjöleignarhúss

Pósturaf DanielSkals » Fös 16. Mar 2018 11:25

Ég mæli með að fá einhvern til að taka út verkið og afla tilboða fyrir ykkur. Það smáræði sem maður borgar fyrir það getur skilað sér margfalt til baka. Ég fór þá leið við viðgerðir og málun á 18 íbúða blokk, munurinn á milli tilboða var margar miljónir þó öll tilboð miðuðust við sömu magntölur. Hæsta boð um 60% hærra en lægsta.

Ég fékk Ástráð hjá Pendo matsmönnum (https://www.facebook.com/pendomatsmenn) í þetta og er mjög sáttur með hann.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Málun fjöleignarhúss

Pósturaf Hjaltiatla » Fös 16. Mar 2018 14:44

Mæli með ef þú færð verktaka í verkið og borgar fyrir X margar umferðir af málningu að fylgjast vel með framgangi mála.
Þ.e að það sé ekki eingöngu verið að bletta eftir eina umferð t.d ef þú ert að borga fyrir tvær umferðir af málningu (erfitt að sýna fram á svona hluti eftir á).


Just do IT
  √

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Málun fjöleignarhúss

Pósturaf rapport » Fös 16. Mar 2018 16:51

Er ekki til einhver útboðsvefur fyrir húsfélög?



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Re: Málun fjöleignarhúss

Pósturaf appel » Fös 16. Mar 2018 17:28

Svo er alltaf spurning hvort það séu einhverjar viðgerðir sem þarf að gera, t.d. á múr.
Það gæti verið skammgóður vermir að mála núna aðeins til þess að fara í múrviðgerðir á næsta ári, og mála aftur!
Ef þú ert ekki viss þá myndi ég láta gera einhverja úttekt.


*-*

Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1355
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Málun fjöleignarhúss

Pósturaf nidur » Fös 16. Mar 2018 18:23

Ertu að mála innanhúss eða utanhúss?

Það er best að taka saman helstu magntölur (veggir, loft, gluggalista, lendarmetra sem þarf að mála meðfram og fl.) og óska eftir tilboðum, með ýtarlegum upplýsingum um verkið. t.d. verksaming, áætlun verks, greiðslur, úttektir.

Það eru margir sem taka svona vinnu að sér og rukka % af heildarkostnaði verksins, þá eru líka oft úttektir inni í verðinu.

Ef þig langar að taka saman þessar tölur sjálfur þá geturðu nálgast teikningar af blokkinni hjá reykjarvíkurborg, ef þær er ekki að finna inn á vefsjánni.




Höfundur
Raskolnikov
Fiktari
Póstar: 62
Skráði sig: Mið 22. Jan 2014 02:12
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Málun fjöleignarhúss

Pósturaf Raskolnikov » Lau 17. Mar 2018 15:49

Þakka góð svör. Athyglisverð þessi síða hjá málarameistarafélaginu þar sem maður getur beðið um að fá tilboð í verk. Læt sennilega reyna á það, og bið þá líka um að kanna hvort að það sé nokkuð þörf á múrvinnu.




Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 611
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 95
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Málun fjöleignarhúss

Pósturaf Dr3dinn » Fim 22. Mar 2018 16:43

Myndi skoða mjög varlega þessar múrviðgerðir.

Mörg þessara félaga sem sinna þessum verkefnum eru varla með 3-6 mánaða kt.

Fengum tilboð í þessa vinnu ....mjög slæm tilboð að mati byggingarmeistara sem við fengum ráðgjöf hjá : frá 4-10mkr fyrir 12x íbúða blokk og þetta voru alls ekki miklar skemmdir.

Margar blokkir í kring hafa farið í sambærilegar framkvæmdir og hafa verið sviknar af verktökunum (er að vitna í 5x blokkir með sitthvora verktakanna) Þau verk hafa sum ekki verið kláruð eða félögin farið á hausinn og eitthver af þeim málum eru fyrir dómstólum.

Fékk þau skilaboð að það yrði líklegast í þessum geira að taka óhagstæðari tilboðum og nota meistara sem reynsla er af því miður.


Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB


Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Málun fjöleignarhúss

Pósturaf Tbot » Fim 22. Mar 2018 17:52

Ef þið getið ekki gert þetta sjálf, þá er best að kaupa þjónustu til að meta áætlaða þörf fyrir múrviðgerðir.
Þó þessi þjónusta kosti 200 til 400 þús þá skila þessir aðilar skýrslu um þau atriði sem þarf að laga og jafnvel hvað þurfi að skoða betur.
Einnig ætlaðan kostnað við verkið.

Staðan held ég hjá flestum góðum iðnaðarmönnum er sú að þeir eru bókaðir marga mánuði fram í tímann, þannig að ég er ekki viss um að margir séu lausir þetta sumarið.
En það er fullt af fúskurum sem eru tilbúnir að stökkva um leið, en vinnan og skil eru eftir því.