Síða 1 af 2

Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Mið 14. Mar 2018 20:54
af appel
Hver er leigan á tæplega 60 fm íbúð (2ja herbergja) í dag?
Maður heyrði að þetta væri komið í eitthvað fáránlegt. Hver er raunin?

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Mið 14. Mar 2018 21:02
af birkirsnaer
Fer það ekki að miklu leyti eftir staðsetningu :happy

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Mið 14. Mar 2018 21:07
af BjarniTS
130-160k eftir staðsetningu myndi maður halda fyrir það sem ég uppgefið.

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Mið 14. Mar 2018 21:29
af worghal
Mynd

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Mið 14. Mar 2018 21:53
af blitz

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Mið 14. Mar 2018 21:57
af appel

Thanks!

Auðvitað sýna stjórnvöld tölur sem eiga sér ekki stoð í veruleikanum.

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fim 15. Mar 2018 08:32
af Hallipalli
70m2 íbúðir í úthverfum Reykjavíkur eru komnar í og um 200.000kr

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fim 15. Mar 2018 08:38
af rapport
Veit að 100-125fm 3-4hrb. íbúðir í Hraunbænum eru að leigjast út á 240-300þ. eftir gæðum og hvað sé innifalið.

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fim 15. Mar 2018 10:13
af einarhr
2 herbergja íbúð í Hraunbæ er að fara á ca 180 þúsund, hef verið að skoða það aðeins að leigja okkar út.

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fim 15. Mar 2018 13:55
af Hjaltiatla
Hef verið að borga í kringum 120 þúsund með ótímabundinn leigusamning í nokkur ár. Eftir að almenna leigufélagið keypti Klett af íbúðalánasjóð í boði Framsóknar og Eygló Harðardóttir þá var samningnum mínum sagt upp og verið að bjóða mér leigu á 210 þúsund á mánuði.
Hjálpar ekki að Reykjavíkurborg er ekki beint að sinna framboðsvandanum á íbúðum.

Möguleikar í stöðunni - Kaupa íbúð og nýta séreignarsparnað til að taka þátt í bólumyndun á fasteignarverði á fasteignarmarkaðinum(í rauninni nýta séreignarsparnað til að geta átt möguleika á að kaupa íbúð á uppsprengdu verði) eða flytja til útlanda.

Edit: er í 2herbergja rúmlega 60 m2 íbúð í 105 RVK.

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 11:18
af viddi
Leiguverd å islandi er bara vitleysa, eg er ad leigja 100fm, 4 herbergja ibud i noregi å ca 150 tus isk, gæti ekki verid såttari :)

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 11:36
af Hizzman
Lóðaskortur og verðokur á lóðum. Þessar fáu lóðir eru afhentar verktökum sem vilja bara byggja stórar og dýrar íbúðir. Engin veit lengur hvað það er að kaupa litla fokhelda íbúð í blokk. Sveitafélögin á Höfuðborgarsvæðinu hugsa mest um að ná sem mestum pening með háu lóðaverði og þ.a.l. háum fasteignagjöldum.

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 12:38
af blitz
viddi skrifaði:Leiguverd å islandi er bara vitleysa, eg er ad leigja 100fm, 4 herbergja ibud i noregi å ca 150 tus isk, gæti ekki verid såttari :)

Hvar í Noregi?

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 15:12
af viddi
blitz skrifaði:
viddi skrifaði:Leiguverd å islandi er bara vitleysa, eg er ad leigja 100fm, 4 herbergja ibud i noregi å ca 150 tus isk, gæti ekki verid såttari :)

Hvar í Noregi?

Ålgård, rett hja Stavanger

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 16:01
af olihar
viddi skrifaði:
blitz skrifaði:
viddi skrifaði:Leiguverd å islandi er bara vitleysa, eg er ad leigja 100fm, 4 herbergja ibud i noregi å ca 150 tus isk, gæti ekki verid såttari :)

Hvar í Noregi?

Ålgård, rett hja Stavanger

Er ekki svipað að miða við leiguverð í Ålgård og á Hellu/Hvolsvelli. :D

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 16:09
af Mencius
bróðir minn leigir hús 10 mín fyrir utan fredrikstad á 150 þús íslenskar á mánuði, sem er jafn mikið og ég borga fyrir kjallara íbúð í brh

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 16:15
af viddi
olihar skrifaði:
viddi skrifaði:
blitz skrifaði:
viddi skrifaði:Leiguverd å islandi er bara vitleysa, eg er ad leigja 100fm, 4 herbergja ibud i noregi å ca 150 tus isk, gæti ekki verid såttari :)

Hvar í Noregi?

Ålgård, rett hja Stavanger

Er ekki svipað að miða við leiguverð í Ålgård og á Hellu/Hvolsvelli. :D

Tjaa tu getur fengid 90fm 3 herbergja ibud inni Stavanger med husgognum og interneti a ca 170 tus isk....

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 16:24
af Blackened
Ég er reyndar að leigja 65fm 2herb íbúð í Osló (reyndar með 2 geymslum, interneti, sjónvarpi, bílastæði og kyndingu innifalinni) fyrir 13.500 NOK sem myndi vera 174þús isk í dag.. (en gæti reyndar orðið eitthvað allt annað í næstu viku miðað við stöðguleika isk)

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 22:10
af Manager1
Hjaltiatla skrifaði:Möguleikar í stöðunni - Kaupa íbúð og nýta séreignarsparnað til að taka þátt í bólumyndun á fasteignarverði á fasteignarmarkaðinum(í rauninni nýta séreignarsparnað til að geta átt möguleika á að kaupa íbúð á uppsprengdu verði) eða flytja til útlanda.

Edit: er í 2herbergja rúmlega 60 m2 íbúð í 105 RVK.

Gaman að sjá að eini valkosturinn í staðin fyrir höfuðborgarsvæðið er útlönd, landsbyggðin greinilega ekki að skora hátt hjá þér.

Það er fullt af atvinnu í boði á landsbyggðinni og fullt af húsnæði á hlægilegu verði fyrir þá sem eru vanir húsnæðisverði á höfuðborgarsvæðinu (svo er líka ekkert svifryk á landsbyggðinni :megasmile )

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 22:29
af Hjaltiatla
Manager1 skrifaði:Gaman að sjá að eini valkosturinn í staðin fyrir höfuðborgarsvæðið er útlönd, landsbyggðin greinilega ekki að skora hátt hjá þér.

Það er fullt af atvinnu í boði á landsbyggðinni og fullt af húsnæði á hlægilegu verði fyrir þá sem eru vanir húsnæðisverði á höfuðborgarsvæðinu (svo er líka ekkert svifryk á landsbyggðinni :megasmile )

Án þess að drulla of mikið yfir landsbyggðina þá er höfuðborgarsvæðið eina svæðið sem maður vill búa hér á landi (myndi skoða bæjarfélög hér í kring ef það væru einhverjar almennilegar samgöngur til höfuðborgarsvæðisins). Í raun og veru er ekkert slæmt að þurfa að flytja út ef út í það er farið vs að þurfa að flytja út á land.

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 23:11
af Manager1
Hjaltiatla skrifaði:

Með þetta hugarfar er ekkert skrítið að húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu er hátt, fólk telur það ekki einusinni raunhæfan valkost að búa úti á landi :(

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 23:41
af kjartanbj
Ég keypti 4 herbergja íbúð í nýju raðhúsi á Selfossi á 30 milljónir, verðið í Reykjavík er alveg út úr kortinu, hefði fengið 2 herbergja íbúð á meiri pening í blokk í bænum, eina sem er byggt í bænum er fjölbýli á mörgum hæðum, ekki heillandi

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Fös 16. Mar 2018 23:45
af Hjaltiatla
Manager1 skrifaði:Með þetta hugarfar er ekkert skrítið að húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu er hátt, fólk telur það ekki einusinni raunhæfan valkost að búa úti á landi :(

Ég tala reyndar bara fyrir sjálfan mig, en reikna með að ef það er vilji að fá fólk út á land í auknum mæli þá þarf það að vera spennandi valkostur.
Skv Wikipedia þá er ég hluti af Millenial kynslóðinni og á víst að vera "Entitled" og blablabla og ef það er almennt viðhorf til míns árgangs þá er best að haga sér þannig (own-a það bara) og velja þann kost sem hentar mér best.

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Lau 17. Mar 2018 02:22
af appel
Millenials er oftast sagt byrjað í 1980.

Re: Leiguverð á íbúðum í dag?

Sent: Lau 17. Mar 2018 02:35
af Hjaltiatla
appel skrifaði:Millenials er oftast sagt byrjað í 1980.

Jebb, ég á heima í þeim hóp :evillaugh