Síða 1 af 1

Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 17:05
af GuðjónR
Ætla að sjúpsteikja rækjur og hafa með súrsæta sósu, vandamálið er bara að ég á ekki súrsæta sósu en ég fann ágætis uppskrift.
http://www.kjarnafaedi.is/is/uppskrifti ... rsaet-sosa

Þarna stendur að það eigi að nota 2 matskeiðar vínedik, ég á það ekki til en ég á bæði 15% matreiðsluedit og svo lageredit.
Hefur einver reynslu af svona? Er í lagi að nota venjulegt edit?

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 17:09
af gardar

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 17:20
af playman
GuðjónR skrifaði: Er í lagi að nota venjulegt edit?
=D>
Síðast þegar að ég gerði súrsæta sósu þá minnir mig að ég hafi bara notað venjulegt borðedik (eða matreiðslu edik, held að það sé það sama) og hún smakaðist bara alveg ágætlega.

En ef þú ert ekki viss, þá myndi ég nota matreiðslu edikið og setja bara lítið í einu smakka vel á milli.

Var að skoða uppskriftina og hún er ekkert líkt minni.
það sem að ég notaði í mína var
salt
Edik
Hvítur sykur
tómatsósa
vatn
og svo soðið niður í þá þykkt sem maður vill.

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 17:24
af Black
líka mjög gott að taka Hunt's Chili sauce og Rifsberjahlaup og mixa saman, getur líka notað venjulega tómatsósu þá fær maður svona súrsæta sósu

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 17:53
af GuðjónR
Jæja, búinn að prófa þetta!!!
Notaði 15% borðedik setti örlítið minna en talað var um.
Sósan varð ekkert spes, frekar braðglítil og þykk. Ég moddaði hana með tómatssósu, salti og slatta af hvítum sykri ásamt 150ml af auka vatni.
Setti svo restina af tómatpaste úti (lítil 70gr. dós). Mjög gott.

Gerði á sama tíma aðra uppskrift, sýnist það vera sama og playman bendir á:
http://www.eldhus.is/eldhus.php?func=bi ... ft&id=1322
Þessi sósa er líkari þeim sem maður fær á asísku veitingastöðunum.

Svo verður orly deigið svona:
http://uppskrift.belgur.net/index.php?title=Orly_deig

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 18:58
af Xovius
Langaði einmitt svakalega að gera mér pizzu í hádeginu en átti ekki tómatsósu svo ég maukaði bara tómata og skellti með þessu agave sírópi, borðediki, kókospálmasykri og ýmsu öðru sem ég fann í eldhúsinu og það kom bara svona æðislega vel út :D Varð reyndar svoldið þunnt en bragðaðist betur en nokkur búðarkeypt pizzasósa.

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 20:01
af mundivalur
Sósan:
½ msk matarolía
150 g blaðlaukur, þunnt sneiddur
½ dós, ananas í bitum
2 ½ dl vatn
½ grænmetisteningur
2 msk tómatmauk
1 msk sojasósa
1 msk edik
1 msk sykur (við notum 2msk)
1 msk maísenamjöl og 2 msk vatn.
EKKI gleyma fiskikraft 1/2 tening það gerir gæfumunin
settum líka paprikubita

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 20:32
af Hamsurd
GuðjónR skrifaði:Ætla að sjúpsteikja rækjur og hafa með súrsæta sósu, vandamálið er bara að ég á ekki súrsæta sósu en ég fann ágætis uppskrift.
http://www.kjarnafaedi.is/is/uppskrifti ... rsaet-sosa

Þarna stendur að það eigi að nota 2 matskeiðar vínedik, ég á það ekki til en ég á bæði 15% matreiðsluedit og svo lageredit.
Hefur einver reynslu af svona? Er í lagi að nota venjulegt edit?


so easy

http://www.youtube.com/watch?v=CpN5RP1sq-g

nota rauðvíns edik.

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 20:36
af Hamsurd

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 20:55
af mikkidan97
Fannst þessi sósu-uppskrift eitthvað svo girnileg, svo ég ákvað að elda fyrir familíuna í kvöld :megasmile

Var bara með sænskar kjötbollur og súrsæta sósu og var fjölskyldan bara frekar sátt ;)

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 21:03
af GuðjónR
Allir voða sáttir hérna enda var þetta 1000x betra en á veitingastöðunum.

Ég á andabringur í frystinum, ætla fljótlega að prófa að elda þær með þessum hætti:

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 21:15
af playman
GuðjónR skrifaði:Gerði á sama tíma aðra uppskrift, sýnist það vera sama og playman bendir á:
http://www.eldhus.is/eldhus.php?func=bi ... ft&id=1322
Þessi sósa er líkari þeim sem maður fær á asísku veitingastöðunum.

Fékk einmitt uppskriftina frá asískum stað ;)

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 21:47
af mundivalur
Það er skrítið flestir asískar sweet and sour eru með fiskikraft í sýnum uppskriftum enda er mín keppnis :D

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 21:53
af Daz
mundivalur skrifaði:Það er skrítið flestir asískar sweet and sour eru með fiskikraft í sýnum uppskriftum enda er mín keppnis :D

Fiskikraft eða fiskisósu?

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 22:55
af Hamsurd
mundivalur skrifaði:Það er skrítið flestir asískar sweet and sour eru með fiskikraft í sýnum uppskriftum enda er mín keppnis :D


Standard Issue : Fish Sauce : http://en.wikipedia.org/wiki/Fish_sauce

Gefur þetta x-factor bragð, use it, love it, -Fish Sauce.

keppnis er 'bruggað' úr http://en.wikipedia.org/wiki/Anchovy

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 23:07
af Hamsurd
GuðjónR skrifaði:Allir voða sáttir hérna enda var þetta 1000x betra en á veitingastöðunum.

Ég á andabringur í frystinum, ætla fljótlega að prófa að elda þær með þessum hætti:


Ekki vera plebbi.

http://www.youtube.com/watch?v=Cz6l1Lmjeck

Gera eins og vid, -en, ekki nota bringur, taka allt sem er í pönnu, henda í glæran poka, henda hráum andarbringum ofaní poka, taka poka setja í kæli 48h.

Næst :

horfa á vid, gera allt eins, en nota/bæta við sósu og marinated duck breasts.

Meikar ekkert sense, en sorry eftir 17 ár, þá er þetta allt bara nokkuð skondið.

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Mið 10. Apr 2013 23:29
af mundivalur
Daz skrifaði:
mundivalur skrifaði:Það er skrítið flestir asískar sweet and sour eru með fiskikraft í sýnum uppskriftum enda er mín keppnis :D

Fiskikraft eða fiskisósu?

Ég hef bara prufað að nota fiskikrafts teningana :D

Re: Að búa til súrsæta sósu

Sent: Fös 30. Mar 2018 13:29
af GuðjónR
Holy moly hvað tíminn líður hratt!
Ætla að djúpsteikja rækjur "aftur", og googlaði af því að ég mundi ekki uppskriftina, fékk þennan þráð upp á google...
Næstum fimm ár síðan síðast!