Rykfallni 3D prentarinn sem vildi búa til veggljós
Sent: Mán 10. Nóv 2025 17:55
af Viktor
Er að leita að veggljósi. Þetta verður í sjónvarpsstofu.
Það má alls ekki vera mikið birta af því. Frekar eitthvað sem maður kveikir á á kvöldin fyrir þægilega stemningu.
Er ekki einhver hér sem er æstur í svona verkefni?
Þau ljós sem mér líst á eru ýmist ekki til eða kosta einhverja hundraðþúsundkalla.
Hér er dæmi um eitthvað ljós í áttina að því sem ég er að leita að.
Á ekki 3D prentara né hönnunarskjal fyrir þetta. Bara drauma.
Re: Rykfallni 3D prentarinn sem vildi búa til veggljós
Sent: Mán 10. Nóv 2025 18:53
af gRIMwORLD
Þetta lítur meira út eins og einhversskonar gipsverkefni, eða blanda af gips og 3d prent verkefni

Re: Rykfallni 3D prentarinn sem vildi búa til veggljós
Sent: Mán 10. Nóv 2025 19:04
af Zensi
Re: Rykfallni 3D prentarinn sem vildi búa til veggljós
Sent: Mán 10. Nóv 2025 21:35
af Viktor
Já
Hálfur svona væri fullkomið:
https://makerworld.com/en/models/101898 ... eId-999904Þetta verða tvö líklega eins ljós
Er til svona transparent appelsínugult filament hér heima?
Re: Rykfallni 3D prentarinn sem vildi búa til veggljós
Sent: Mið 12. Nóv 2025 14:04
af Zensi
Plastið er í raun ekki transparent, heldur er það prentað það þunnt (Wall thickness) að ljósið sleppur meira í gegn.
Getur kannað það hjá 3Dverk.is hvort þeir eigi appelsínugult PLA plast.
Re: Rykfallni 3D prentarinn sem vildi búa til veggljós
Sent: Sun 01. Feb 2026 22:13
af G3ML1NGZ
Zensi skrifaði:Plastið er í raun ekki transparent, heldur er það prentað það þunnt (Wall thickness) að ljósið sleppur meira í gegn.
Getur kannað það hjá 3Dverk.is hvort þeir eigi appelsínugult PLA plast.
Vinstri vasinn er prentaður úr transparent plasti, kemur efnisþykkt ekki við.
Besta útkoman held ég væri Smoke gray transparent PETG prentað með þykkum layers og svo warm light pera í því. þá er birtan mjög lík því sem sést á myndinni sem Viktor vitnar í
https://3dverk.is/collections/petg-og-c ... 1338247387
Re: Rykfallni 3D prentarinn sem vildi búa til veggljós
Sent: Mán 02. Feb 2026 16:15
af hannsi
3dverk er með transparent appelsínugult PETG. Hef prentað úr því í vinnunni og kom nokkuð vel út, hægt að stjórna hveru mikið það lýsir með veggja þykkt