Síða 1 af 1

Onecoin

Sent: Þri 29. Okt 2019 20:59
af misdo
Sælir

Hvað getið þið sagt mér um rafmyntina onecoin nú er ættingi farinn að eyða peningum í þessa rafmynt og er að reyna koma fleirrum í ættinni í slíkt það sama og leggja peninga í þetta. Hann vill meina að hægt verði að versla fyrir þetta t.d varning, bíla og húsnæði í framtíðinni og gengur jafnvel svo langt að halda því fram að þetta sé á pari við Bitcoin í virði það eru einhverjir íslendingar sem standa að þessu að fá fólk í þetta.

Ég hef enga trú á þessu og gruna að það sé verið að plata hann alveg gríðarlega og að þetta sé einhverskonar píramída svindl ég lét hann vita að hefði ég einhvern áhuga á að eiga rafmynt þá væri það Bitcoin án þess að þekkja þetta sjálfur að neinu viti.

Svo hvað segjið þið er þetta eitthvað sem er vert að skoða hjá honum eða á að stoppa þetta af áður en hann fer að leggja meiri pening í þetta?

Re: Onecoin

Sent: Þri 29. Okt 2019 21:15
af vesley
Onecoin er pýramídasvindl. Enough said.

https://en.wikipedia.org/wiki/OneCoin

Re: Onecoin

Sent: Þri 29. Okt 2019 22:06
af misdo
Það sem mig grunaði og sagði honum, verst er að það er búið að selja honum þetta svo vel að hann trúir því ekki.

Re: Onecoin

Sent: Þri 29. Okt 2019 22:43
af GuðjónR
misdo skrifaði:Það sem mig grunaði og sagði honum, verst er að það er búið að selja honum þetta svo vel að hann trúir því ekki.

Þá verður hann bara að brenna sig í friði :)

Re: Onecoin

Sent: Mið 30. Okt 2019 11:02
af Mondieu
Einstaklingur sem er ekki fær um að google'a ætti alls ekki að standa í fjárfestingum, hvað þá rafmyntum. Vonandi tekur hann sönsum þegar þú sendir honum greinina af wikipedia og hendir ekki meiri peningum í þetta. Hann verður þó líklega að sitja uppi með þetta tap sem nú þegar er komið.

Re: Onecoin

Sent: Mið 30. Okt 2019 19:06
af misdo
Mondieu skrifaði:Einstaklingur sem er ekki fær um að google'a ætti alls ekki að standa í fjárfestingum, hvað þá rafmyntum. Vonandi tekur hann sönsum þegar þú sendir honum greinina af wikipedia og hendir ekki meiri peningum í þetta. Hann verður þó líklega að sitja uppi með þetta tap sem nú þegar er komið.


Það er nefnilega málið þegar eldra fólk sem er alls ekki klárt á tölvur og ekki sem sleipast í ensku sé að láta blekkja sig svona.
Einhverjir aðilar útí bæ séu að targeta svona fólk er virkilega sorglegt.

Re: Onecoin

Sent: Mið 30. Okt 2019 23:27
af ElGorilla
BBC er einmitt að gera þætti um Onecoin.

https://www.bbc.co.uk/programmes/p07nkd ... /downloads

Re: Onecoin

Sent: Fim 31. Okt 2019 00:40
af Gemini
Því miður þegar fólk er oft lagt af stað í leiðangur á það mjög erfitt með að stoppa og horfa í kringum sig og hvað þá að ákveða að fara til baka. Hinsvegar er það mjög nauðsynlegt í fjárfestingum af öllu tagi að kunna að stoppa og taka stöðuna þó þú sért hræddur við útkomuna.

Re: Onecoin

Sent: Fim 31. Okt 2019 23:09
af misdo
ElGorilla skrifaði:BBC er einmitt að gera þætti um Onecoin.

https://www.bbc.co.uk/programmes/p07nkd ... /downloads



Þetta eru mjög góðir þættir búinn að hlusta á þetta allt og búinn að senda honum þetta vonandi opnar þetta augun eitthvað hjá honum.

Re: Onecoin

Sent: Fös 22. Nóv 2019 10:53
af brain

Re: Onecoin

Sent: Þri 11. Feb 2020 07:55
af roadwarrior
https://youtu.be/64xcgvEJ3Ys
Þáttur sem fjallar um þetta svindl