Síða 1 af 1

Stofna íslenska mining pool, t.d Eth

Sent: Sun 18. Feb 2018 21:52
af sigxx
Góða kvöldið.

Ég var að velta því fyrir mér hvort að það væri einhver áhugi fyrir því að búa til íslenska mining pool, þá t.d fyrir Eth.
Ég hef tekið eftir því, eftir að hafa verið mikið í sambandi við aðra mine-era erlendis að Stale shares eru almennt hærri hér á landi en t.d í Þýskalandi,UK og USA og að mér best vitandi er það vegna hversu langt það er í næsta pool server.
Hinsvegar ef það er sett upp pool hér á landi, ætti þetta vandamál að vera úr sögunni.

Áður en ég fer í það að búa til pool og reyna að promote-a hana, þar sem þetta kostar bæði töluverðan pening og tíma.
Er almennt einhver áhugi á því að tengjast íslenskri eth pool ?

Kv.
S

Re: Stofna íslenska mining pool, t.d Eth

Sent: Mán 19. Feb 2018 03:19
af ZiRiuS
Ertu alveg með reynslu á að setja upp pool? Því það þarf ágæta þekkingu á linux (og forrit í því).

Ertu með búnað, hýsingu og net fyrir þetta?

Ekki það að ég hafi ekki áhuga á þessu en eins og þú segir, þetta kostar peninga og tíma til langstíma.

Re: Stofna íslenska mining pool, t.d Eth

Sent: Mán 19. Feb 2018 11:32
af sigxx
ZiRiuS skrifaði:Ertu alveg með reynslu á að setja upp pool? Því það þarf ágæta þekkingu á linux (og forrit í því).

Ertu með búnað, hýsingu og net fyrir þetta?

Ekki það að ég hafi ekki áhuga á þessu en eins og þú segir, þetta kostar peninga og tíma til langstíma.


Sæll

Já ég er með alla bakenda þekkinguna á hreinu, en ég þyrfti hjálp með framendann.

Með vélbúnaðinn, þá þyrfti ég að fjárfesta um í betri búnaði leið og þetta er kominn yfir ca 20-50 stöðugir notendur.
Líklegast væri það hagstæðast að leigja pláss í eitthvað af gagnaverunum til að hýsa þetta almennilega.
En til að þetta myndi nokkurntímann borgasig, þyrfti að vera ca 890Gh/s - 1Th/s keyrsla á þessu stöðugt.
Brake even point er í kringum 750Gh/s miðað við 1% fee

Re: Stofna íslenska mining pool, t.d Eth

Sent: Mán 19. Feb 2018 12:21
af DJOli
Count me in. Er nýbyrjaður, en er með áform um að stækka við mig.
Þú ættir kannski líka að hringja í Advaniu og spyrja hvort þau myndu vilja taka þátt. Nema þau séð með sitt eigið pool og vilji ekki leyfa öðrum að vera með, eða ef þau bara af einhverri ástæðu myndu ekki vilja joina.