Síða 1 af 2

hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 14:33
af Smotri1101
mining er ekki lengur leift a islandi svo shiiii
https://www.youtube.com/watch?v=2Jqf_wZKFCc

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 14:41
af MatroX
Er buið að banna það hér heima?

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 14:45
af GuðjónR
Smotri1101 skrifaði:mining er ekki lengur leift a islandi svo shiiii
https://www.youtube.com/watch?v=2Jqf_wZKFCc

Hvenær var mining bannað á Íslandi?

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 14:53
af Viktor
GuðjónR skrifaði:
Smotri1101 skrifaði:mining er ekki lengur leift a islandi svo shiiii
https://www.youtube.com/watch?v=2Jqf_wZKFCc

Hvenær var mining bannað á Íslandi?

Þá þarf einhver að láta Advania vita :lol:

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 15:23
af Haukursv
uuuu, heimild ? :)

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 16:41
af Smotri1101
Oh eg sa tad i frétt a netinu hefur greinilega verid ehv kjaftædi :S

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 17:50
af ZiRiuS
"Jámarr ríkið er að fara að setja saman anti-crypto deild, verður eitthvað svipað vegan police eins og þessu. Sá það á fréttasíðu á netinu sko, man ekki hverri samt því íslenskar fréttasíður eru svo margar lolololol"

*sigh*

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 17:51
af GuðjónR
Smotri1101 skrifaði:Oh eg sa tad i frétt a netinu hefur greinilega verid ehv kjaftædi :S

Mynd

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 17:52
af Viktor
Svona er tölvudeildin hjá Ríkislögreglustjóra:

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Fös 09. Feb 2018 18:19
af KRASSS
THAD ER EKKI BANNAD

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Lau 10. Feb 2018 07:42
af braudrist
"I'm here in Iceland at a secret location.„ Vá, svaka secret eða þannig, er þetta ekki á völlunum í Hafnarfirði? Thor Datacenter eða eitthvað.

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Lau 10. Feb 2018 08:49
af brain
Smotri1101 skrifaði:Oh eg sa tad i frétt a netinu hefur greinilega verid ehv kjaftædi :S

Ekki trúa öllu sem þú lest á netinu ! :p

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Sun 11. Feb 2018 00:02
af Stuffz
bara eitthver GerviGjaldmiðilsGraftarstöð uppá Eyjafjallajökli :snobbylaugh

sá nú ekki í þessu videói að kæmi fram að eitt né neitt væri bannað
tja nema límmiði við dyrnar um að bannað væri að taka upp inní vélasalnum, sem greynilega er ekki farið eftir ellegar væri þetta youtube videó ekki til til að byrja með.

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Sun 11. Feb 2018 00:07
af appel
Sallarólegur skrifaði:Svona er tölvudeildin hjá Ríkislögreglustjóra:

I raise you..

HACK THE GIBSON!

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Sun 11. Feb 2018 22:07
af Hjaltiatla
Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands kallar Bitcoin eins konar píramítasvindl (í einhverju innslaginu á RÚV) og síðan þessi grein. Segir að Bitcoin sé bóla sem muni springa fyrr eða síðar

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Sun 11. Feb 2018 22:37
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands kallar Bitcoin eins konar píramítasvindl (í einhverju innslaginu á RÚV) og síðan þessi grein. Segir að Bitcoin sé bóla sem muni springa fyrr eða síðar

Var ekki búið að loka þennan mann inni og henda lyklinum?
Hann sagði líka að Ísland yrði Kúba norðursins ef við myndum ekki borga Icesave sem síðar kom í ljós að við áttum ekkert að borga:
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fil ... 18876A1D13

dósent prósent kórsent .... tekur einhver mark á þessum manni?

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Sun 11. Feb 2018 22:48

Greinilega viðskiptafræðideild HÍ, reikna með að hann getur haft áhrif á nemendur og blaðrað í fjölmiðla það sem hann vill meina að sé hinn heilagi sannleikur. Er samt að reyna að átta mig á þessari píramíta samlíkingu hans (ég hef persónulega ekki orðið var við Herbalife píramítann í mining/rafmyntar heiminum).

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Sun 11. Feb 2018 23:30
af Manager1
Ætli hann meini ekki að þegar þú ert búinn að kaupa einhverja rafmynt þá viltu að allir aðrir kaupi hana líka, vegna þess að það eina sem hækkar/lækkar verð á rafmynt er framboð og eftirspurn? Þannig að þú kaupir rafmynt og reynir svo að fá alla aðra til að kaupa í sömu mynt líka, ekkert allt of langt frá því sem pýramídasvindlið snýst um.

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Mán 12. Feb 2018 12:48
af Haukursv
Þannig virka markaðir í grunninn. Hef samt séð einhver svona ponzi schemes með einhverjar rafmyntir sem eru ekki til en eru seldar til eldri borgara sem "frábær fjárfesting í nýrri tæknibyltingu". Minnir að það heiti onecoin eða eitthvað sem finnst ekki á neinum markaði.

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Mán 12. Feb 2018 17:32
af ZiRiuS
BitConnect voru líka í ponzi svindli, áttu að vera með einhverja botta sem fjárfestu og eitthvað bullshit.

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Mán 12. Feb 2018 21:04
af Manager1
Haukursv skrifaði:Þannig virka markaðir í grunninn.

Já þetta er auðvitað grunnmarkaðsfræði, en aðrar myntir hafa seðlabanka og hagkerfi á bakvið sig, rafmynt hefur ekkert svoleiðis, það er ekkert sem stjórnar verðinu nema framboð og eftirspurn og þ.a.l. auðveldara að "stjórna" verðinu, sérstaklega ef þú hefur yfir miklum peningum að ráða, þá getur þú skapað falska eftirspurn með því að kaupa mikið í sömu myntinni.

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Mán 12. Feb 2018 21:20
af KristinnK
Haukursv skrifaði:Þannig virka markaðir í grunninn.

Þetta er ekki rétt. Hlutabréf hækka í verði vegna þess að þau fela í sér hluteign í rekstri sem skilar hagnaði. Vissulega geta verðbréf hækkað umfram hagnað reksturs vegna væntinga um meiri hagnað í framtíðinni (t.d. Tesla Motors í dag), en hækkunin getur alltaf rekið rætur sinnar til fortíðar eða framtíðar hagnaðar. Eign á Bitcoin felur ekki í sér hluteign á neinu sem skapar hagnað. Eina leiðin til að græða á því að kaupa Bitcoin er að vonast til þess að einhver sem kaupir á eftir þér vill borga hærra verð en þú, sem hann gerir einungis vegna þess að hann svo heldur að einhver muni svo kaupa það á enn hærra verði enn hann sjálfur. Það segir sig sjálft að öll þannig hækkun er beinlínis og bókstaflega ekkert nema bóla. Það er ekkert raunverulegt verðgildi bakvið Bitcoin, bara trúin um að aðrir sjái það sem verðmætt.

Það er alveg hægt að græða pening á viðskiptum með Bitcoin, en vegna þess að það fer ekki fram nein verðmætasköpun kemur allur gróði þinn á beinan kostnað einhvers annars. Þ.e. fyrir hverja krónu sem einn maður græðir á Bitcoin er einhvers staðar einhver króna sem annar tapar, heildargróði og tap er núll. Hverjir tapa? Þeir sem halda ennþá á heitu kartöflunni þegar tónlistin hættir.

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Þri 13. Feb 2018 14:01
af Haukursv
Já þetta var kannski svolítið kjánalega orðað hjá mér, þetta var meira svona svar við því að fólk heldur oft að um sé scam að ræða ef að eign er ekki backed up af einhverju physical virði, en í grunninn er þetta bara spurning um framboð og eftirspurn, traust og væntingar. Klárlega hægt að manipulate-a rafmyntamarkaði mikið og það er gert á hverjum degi, en þetta fylgir samt furðulega nákvæmt old school fjármálamarkaðssálfræði, og því ansi skemmtilegt að taka þátt, annað en á t.d forex þar sem maður er að trade-a á móti risatölvum og playerum og mun erfiðara að standa uppi sem sigurvegari.

KristinnK skrifaði: Þetta er ekki rétt. Hlutabréf hækka í verði vegna þess að þau fela í sér hluteign í rekstri sem skilar hagnaði

Já ég var samt ekkert endilega að tala um hlutabréfamarkað, ég meina þú þarft markað til þess að fá bólumyndun, eru þá rafmyntamarkaðir ekki markaðir því þeir haga sér ekki eins og hlutabréfamarkaðir ? :)

Ég er enginn snillingur í þessu, bara svona vangaveltur..

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Þri 13. Feb 2018 14:13
af Hizzman
bitcoin er alveg svipað og seðlaprentun, það eru engin verðmæti sköpuð. Gylfi er kerfiskarl sem er að verja kerfið sem hann trúir á! Það er einnig ómögulegt að banna bitcoin gröft í frjálsu samfélagi, ef það á að fara að hafa eftirlit með hvað tölvur í gagnaverum eru að gera er alveg eins hægt að loka þeim bara.

Re: hahah shit hvað verður af þessum skjákortum

Sent: Sun 25. Feb 2018 16:40
af demokritos
KristinnK skrifaði:Það er ekkert raunverulegt verðgildi bakvið Bitcoin, bara trúin um að aðrir sjái það sem verðmætt.

Þetta eru svo gömul og léleg bólurök að ég verð bara hissa á því að fólk (m.a. prófessorar í hagfræði) segi þetta af alvöru. Auðvitað er Bitcoin ekkert eins og hlutabréf eða flest önnur verðbréf yfir höfðuð - ég hef ekki einu sinni heyrt neinn halda því fram.

Bitcoin er verðmætt einungis vegna þess að fólk hefur von um að geta selt það síðar, algjörlega óháð því hvort að það hafi eitthvað "undirliggjandi verðmæti." Rétt eins og gull, rétt eins og demantar, rétt eins og sjaldgæf frímerki og rétt eins og pókemon spil. Ef einhver er hagfræðingur og neitar því að hlutir geti haft verðgildi án einhvers meints "notagildis" þá ætti hann að finna sér eitthvað betra að gera.