Síða 1 af 1

Bitcoin yfir í ISK

Sent: Þri 02. Jan 2018 08:25
af Hormóður
Hef verið að safna bitcoin/rafmyntum í smá tíma og er farinn að íhuga að cash-a hluta af því út. Hvaða vefsíðu/aðferð hafa menn góða reynslu af?
Það er eflaust öruggast að auglýsa hér t.d. og hitta viðkomandi í persónu eða nota localbitcoins en ég er að stefna á að cash-a út smá pening reglulega og þarf því einhverja öðruvísi aðferð sem er þá helst ódýr og fljótleg.

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Þri 02. Jan 2018 09:49
af GullMoli
Ég notaði síðast www.cex.io til þess að taka út (leggja inná reikning). Veit að vísu ekki hvernig þeir eru í dag.

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Þri 02. Jan 2018 09:54
af Nariur
Ég prófaði um daginn að cache-a út smá í gegn um bitstamp.net.
Ég er búinn að vera skráður hjá þeim í dágóða stund og það er langt síðan ég fór í gegn um verification, sem ég held að taki nokkurn tíma (eins og hjá flestum).
Það gekk mjög vel. Ég notaði SEPA transfer og tók út fyrir rúmlega 25.000 bara til að prófa. Þetta var komið inn á reikning daginn eftir og ég borgaði bara 600 kall í gjöld.

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Þri 02. Jan 2018 16:21
af Nuubzta
Sjálfur er ég með kreditkort frá bitwala. Millifæri bara inná það með appi eða á heimasíðunni þeirra og rölti svo út í hraðbanka.

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Þri 02. Jan 2018 18:05
af ZiRiuS
Nuubzta skrifaði:Sjálfur er ég með kreditkort frá bitwala. Millifæri bara inná það með appi eða á heimasíðunni þeirra og rölti svo út í hraðbanka.


Eru ekki brjáluð gjöld á svoleiðis?

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Fim 04. Jan 2018 18:02
af Mug
Hef aðalega notast við localbitcoins er samt að leita af einhverju sem ég get selt meira magn. milljón+

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Lau 06. Jan 2018 00:48
af Nuubzta
ZiRiuS skrifaði:
Nuubzta skrifaði:Sjálfur er ég með kreditkort frá bitwala. Millifæri bara inná það með appi eða á heimasíðunni þeirra og rölti svo út í hraðbanka.


Eru ekki brjáluð gjöld á svoleiðis?


Smá síðan síðast en minni að það hafi bara verið fast gjald, svo jú hátt ef þú ert að gera þetta oft með litlar fjárhæðir. Annars fékk ég email í dag um að það væri verið að loka öllum svona kortum :/

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Lau 06. Jan 2018 01:41
af ZiRiuS
Nuubzta skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:
Nuubzta skrifaði:Sjálfur er ég með kreditkort frá bitwala. Millifæri bara inná það með appi eða á heimasíðunni þeirra og rölti svo út í hraðbanka.


Eru ekki brjáluð gjöld á svoleiðis?


Smá síðan síðast en minni að það hafi bara verið fast gjald, svo jú hátt ef þú ert að gera þetta oft með litlar fjárhæðir. Annars fékk ég email í dag um að það væri verið að loka öllum svona kortum :/


Öllum? Af hverju?

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Lau 06. Jan 2018 13:01
af lifeformes

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Lau 06. Jan 2018 21:01
af BLC
I can sell cryptocurrency

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Lau 13. Jan 2018 01:19
af demokritos
Hérna eru nokkrar síður sem ég hef notast við og úttektargjöld sem þær rukka fyrir SEPA millifærslu:

www.cex.io
25 EUR úttektargjald og símgreiðslugjald.

www.bitpanda.com
U.þ.b. 1% spread þegar þú selur fyrir EUR og símgreiðslugjald.

www.bitstamp.net
0,90 EUR úttektargjald og símgreiðslugjald.

Þetta eru allt frekar öruggar kauphallir og ég hef fengið millifærslu frá þeim öllum. Það er langódýrast að gera þetta í gegn um Bitstamp en það getur tekið nokkrar vikur að fá notandaauðkenningu í gegn þessa dagana. Á Bitpanda tekur það hins vegar bara 20 mínútur.

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Mán 19. Feb 2018 11:03
af Noriman

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Mán 19. Feb 2018 22:53
af russi
Noriman skrifaði:https://isx.is/

Ditto á þetta, seldi smá um daginn, ekkert ves og taka 1%, leggja beint inná íslenskan reikning.

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Þri 20. Feb 2018 00:07
af ZiRiuS
Hvað tekur þetta isx langan tíma að senda inn á reikning?

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Þri 20. Feb 2018 00:13
af stebbz13
Útgreiðslur í BTC og AUR eru framkvæmdar samstundis en útgreiðslur í krónum eru framkvæmdar tvisvar á dag virka bankadaga. Þóknun ISX er 1% af fjárhæð í krónum við kaup og sölu.

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Þri 20. Feb 2018 00:16
af russi
Seldi um miðnæti og var komið kl 10 morgunin eftir hjá mér.

Þetta virkar þannig að þú selur BTC og það fer inná reiking á þínum prófile, eftir það þarftu að leggja af þeim profilereikningi yfir á uppgefin bankareikning

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Þri 20. Feb 2018 00:17
af ZiRiuS
Kúl, hljómar vel.

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Fim 15. Mar 2018 11:01
af jardel
Hvernig er það. Sjálfsagt asnaleg spurning.
En verður maður að nota sama email á þessum síðum eins og maður notar á sínu eigin veski?

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Fim 15. Mar 2018 21:25
af jardel
Einhver?

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Fim 15. Mar 2018 21:26
af arons4
Emailið á aðganginn sem þú ert að nota hjá einhverjum sem býður upp á veski á ekki að geta skipta máli gagnvart þessum síðum(ekkert í bitcoin staðlinum sem bindur email addressur við veski og sá sem tekur við bitcoinum sér ekkert hver er bakvið þær. Einnig ekkert sem bannar þér að eiga mörg veski.

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Lau 14. Apr 2018 00:51
af jardel
Hvaða síður eru þið að nota núna til að casha bitcoin yfir á bankann ykkar?

Re: Bitcoin yfir í ISK

Sent: Lau 14. Apr 2018 12:57
af KRASSS
isk.is

jardel skrifaði:Hvaða síður eru þið að nota núna til að casha bitcoin yfir á bankann ykkar?