Síða 1 af 1

Hvað varð um bitcoin-ish á íslandi?

Sent: Þri 21. Nóv 2017 17:22
af Goodmann
Ég er að reyna að komast að hvar bitcoin sem var gefið út og gefið á Íslandi ca. 2009ish er? :fly
Langar að vita hvort þeir aurar sem maður skráði sig fyrir séu enn til.
Vonandi getur einhver potað mér í rétta átt.

Re: Hvað varð um bitcoin-ish á íslandi?

Sent: Þri 21. Nóv 2017 18:12
af olihar
Aurora Coin? Algjörlega verðlaust.

Byrjaði febrúar 2014.

Re: Hvað varð um bitcoin-ish á íslandi?

Sent: Þri 21. Nóv 2017 19:21
af GullMoli
Hvað er samt að frétta.. 1 Bitcoin er í rúmum $8200.

Er þetta Ransomware að pumpa verðið upp?

Mynd

Re: Hvað varð um bitcoin-ish á íslandi?

Sent: Þri 21. Nóv 2017 20:07
af mundivalur
Þetta er bara frábært :D og vonandi 1mill ísk fyrir 1btc fyrir jól :happy seldi 1btc um daginn og fékk 760þ
Nei þetta ransomware gerði ekkert það eru bara svo rosalega mikið af nýju fólki að koma inn,hedge funds og haugur af ríkufólki
Japan,kórea,vietnam og önnur lönd búin að bætast við

Re: Hvað varð um bitcoin-ish á íslandi?

Sent: Mið 22. Nóv 2017 22:36
af Throstur
olihar skrifaði:Aurora Coin? Algjörlega verðlaust.


Gengið á Auroracoin á ISX er 67 ISK.
Ef þú tókst þátt í öllum 3 airdroppunum fékkstu 31,8+318+636 = samtals 985,8 AUR. Það eru þá uþb. 66.000 ISK í dag. Langt frá því að vera verðlaust.