Síða 1 af 1

1 BTC = 2500 $

Sent: Fös 26. Maí 2017 10:27
af Mug
Skemmtilegir tímar í gangi. Gífurleg hækkun síðustu daga. Smá fall í gær en virðist skoppa strax til baka.
Býst við því að fólk sé mjög ánægt með þessa þróun.

Re: 1 BTC = 2500 $

Sent: Fös 26. Maí 2017 10:33
af GuðjónR
Mug skrifaði:Skemmtilegir tímar í gangi. Gífurleg hækkun síðustu daga. Smá fall í gær en virðist skoppa strax til baka.
Býst við því að fólk sé mjög ánægt með þessa þróun.

Þeir sem eiga btc eru það örugglega. :)

Re: 1 BTC = 2500 $

Sent: Fös 26. Maí 2017 10:44
af Nariur
Ég græddi 1,4 BTC á Auroracoin. Var alverlega að íhuga að selja þegar gengið var 800, á leiðinni niður, stuttu eftir Auroracoin æðið.
Ég er mjög glaður með að hafa ekki gert það. Hins vegar sit ég bara hérna og bíð eftir óhjákvæmilega hruninu.
Það er frekar steikt að fiktið mitt með Auroracoin sé núna 350.000 króna virði. Úr engu.

Re: 1 BTC = 2500 $

Sent: Fös 26. Maí 2017 10:55
af Mug
Nariur skrifaði:Ég græddi 1,4 BTC á Auroracoin. Var alverlega að íhuga að selja þegar gengið var 800, á leiðinni niður, stuttu eftir Auroracoin æðið.
Ég er mjög glaður með að hafa ekki gert það. Hins vegar sit ég bara hérna og bíð eftir óhjákvæmilega hruninu.
Það er frekar steikt að fiktið mitt með Auroracoin sé núna 350.000 króna virði. Úr engu.


Hef sjálfur lært það á slæman hátt að það er oft best að sitja og bíða bara. Seldi 5 btc á svipuðum tíma :(

Re: 1 BTC = 2500 $

Sent: Fös 26. Maí 2017 11:08
af C2H5OH
Fyrst þegar ég datt inn á BTC var 2013, var kannski svoldið seinn, þá kostaði 1 BTC eitthvað í kringum 113 dollara. Ég íhugaði lengi að taka heil mánaðrlaun hjá mér og versla BTC og sitja svo á því og sjá hvað myndi gerast. Ég man að það hefði gefið mér 22,3 BTC, en ég var bara of mikil gunga og þurfti á hverri krónu að halda þá.

Græt mig í svefn í dag...

Re: 1 BTC = 2500 $

Sent: Fös 26. Maí 2017 11:22
af Mug
Hugsanlega munum við gráta það eftir nokkur ár að hafa ekki keypt slatta þegar þetta var í 2500 $

Re: 1 BTC = 2500 $

Sent: Fös 26. Maí 2017 12:07
af GuðjónR
Mug skrifaði:Hugsanlega munum við gráta það eftir nokkur ár að hafa ekki keypt slatta þegar þetta var í 2500 $

Ég græt það að hafa ekki keypt á 300 kr. :crying