Síða 1 af 4

Ný altcoin veisla !

Sent: Fim 16. Mar 2017 11:10
af mundivalur
Eru ekki nokkrir hér á poloniex ? ég sé allarvegna dálítið af ísl. nöfnum þar :)
Ef menn ætla að kaupa einhver coin þá er best að gera það fljótlega ,það er mjög mikið magn af btc að fara af btc mörkuðum og flæða inn á polo
Feb 1 - 14.12%
Mar 1 - 15%
Mar 13 - 20%

og vera þolinmóð/ur

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fim 16. Mar 2017 13:06
af GuðjónR
Hmm ... ég skil ekki alveg.
Kíkti þarna inn, allt grænt og tugprósenta hækkanir á flestu...t.d.:
https://poloniex.com/exchange#btc_eth

Hvað er það sem veldur þessu?

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fim 16. Mar 2017 13:34
af mundivalur
Bitcoin pump þá hrynja altcoin niður og þá kaupir maður altcoin og núna er Bitcoin í pásu þá koma stóru kallarnir á altcoin markaðinn fyrir meira action :D
Bitcoin upp altcoin niður
Bitcoin niður Altcoins upp
Svo auðvitað er fullt af nýju fólki sem hefur verði að kaupa btc og hann hækkar ekki strax þá koma þau á altcoin markaðinn
það voru mest 11-12þ manns á polo í fyrra en farið upp í 17þ fyrir nokkrum dögum

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fim 16. Mar 2017 13:36
af Viggi
Ekki bara sama sagan og með aurana? Byrjar strong og deyr svo hægt og rólega

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fim 27. Apr 2017 20:07
af mundivalur
Nokkrum millum seinna :megasmile

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fös 28. Apr 2017 03:16
af ZiRiuS
Millur, really?

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fös 28. Apr 2017 09:13
af linenoise
Hvernig fær maður cash money út úr þessu? Ég meina, er einhver að fjárfesta fyrir pening eða bitcoin?

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fös 28. Apr 2017 11:28
af mundivalur
Já en ég þori ekki að sýna gróðann hér haha en kominn upp um 300% á þessu ári, hafði hugsað að hafa þetta sem backup fyrir elliárin en gæti endað bara sem nýja vinnan mín :) það er auðvitað fínn tími að fjárfesta meðan ískróna er há
kaupa eða selja hér https://btcdirect.eu/en-gb
Það eru markaðir sem taka USD og fleiri gjaldmiðla
Þetta tekur auðvitað tíma að læra á þetta og ég tapaði oft fyrsta árið enda hafði maður enga þolinmæði eða skoðaði kortin
Mynd

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fös 28. Apr 2017 12:04
af urban
Jahh ef að þú ert að ná í nokkrar millur á 6 vikum, þá myndi ég skoða það alvarlega að gera þetta að starfi, en geri svo sem ráð fyrir að það hægist síðan á þessu í einhvern tíman og svo komi annað svona skot eftir einhverja mánuði (eða ég les það út úr þessu korti, veit ekkert hvað neitt stendur fyrir nema tíminn.

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fös 28. Apr 2017 13:00
af mundivalur
Já þetta eru upp og niður tímabil sem maður en alltaf hægt að græða ef maður kann það og þetta er miklu léttara ef maður á nokkra BTC
það er oft sagt að sumar tíminn sé rólegastur ,þá séu hvalirnir í sumarfríi haha en það er bara svo mikið af nýjum fjárfestum og fólki að bætast við
þannig það veit einginn hvar þetta endar.
Þetta blockchain er svipað og internetið var á sínum tíma
og þetta mun gerast eins og alltaf og þegar þetta verður í öllum fréttum þá er þetta oftast í Euphoria og þeir ríku selja eftir að hafa keypt á botninum og kaupa svo aftur þegar allir eru brjálaðir
Mynd

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Lau 29. Apr 2017 15:17
af marri87
mundivalur, hvaða síður/resources myndirðu nota ef þú værir að byrja í dag. Langar að byrja á CFD trading í demo mode til að kynnast þessum heimi en er ekki að átta mig á hvaða platform sé hægt að treysta, er þægilegast í notkun oþh ef ég myndi vilja leggja pening í þetta seinna meir.
Poloniex, Plus500, Avatrade, allt virðist hafa sína gagnrýnendur og hörðu stuðningsmenn.
Hef lesið í gegnum þetta guide https://99bitcoins.com/newbies-guide-trading-bitcoins/ horft á einhver video td https://www.youtube.com/watch?v=ulbO2zTNb1c ásamt því að skoða reddit.

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Lau 29. Apr 2017 18:05
af mundivalur
Ég er frekar lélegur í því og fæ oftast allar fréttir í gegnum twitter en það eru fleiri facebook groups að bætast við, ég lærði þetta mjög hægt var að búa til tölvu snúrur og horfa á poloniex+twitter á meðan haha, Poloniex er aðal altcoin markaðurinn og traustur, Bitfenix er bara með BTC,LTC og ETH
einhverjir nota þetta https://1broker.com/?c=en/home bitcoin og stocks , maður verður að læra lest úr gögnum,fibonacci og þannig þá er maður ekki að kaupa á kolvitlausum tímum
Þetta er traustur crypto gaur og hægt að læra hjá honum en held að það sé full bókað eins og er https://www.youtube.com/channel/UCHHtN4 ... wfKhvNgPLg
Á twitter þarf maður að læra hverjir eru bullarar og bara stutt pump sem flestir tapa á nema þeir/hann
ég nota þetta https://cryptowat.ch/ og stundum https://www.tradingview.com/

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Sun 30. Apr 2017 07:37
af holavegurinn
Þetta hljómar eins og akkúrat það sem ég var að leita af! Hef verið að grinda online poker fulltime í 2 ár en langar að færa mig yfir í crypto-grind. Snilld að þér sé að ganga vona vel í þessu og vonandi kemurðu með update hér annars lagið :)

Eru engir íslenskir skype-hópar eða crypto study hópar sem er hægt að verða partur aaf?

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Sun 30. Apr 2017 11:40
af mundivalur
Þetta er FB hópurinn sem ég er í https://www.facebook.com/groups/bitstofreedom/ Crypto Picasso er með kennslu og signal service
það er ekki gott að vera í stórum opnum hópum því menn eru bara að spamma og reyna láta þig kaupa ruslið þeirra
Næsta bitcoin halving verður 2020 þá fer það úr 12 í 6 þannig að það verður dýrara að búa til btc og verðið hækkar helling en auðvitað tekið gott fakeout áður til að hræða fólk og fá ódýra btc
Það er Íslensk FB group en ekkert líf þar https://www.facebook.com/groups/226022827591087/

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Mán 01. Maí 2017 16:20
af holavegurinn
Snilld takk maður!

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Þri 02. Maí 2017 15:52
af demokritos
Ég vona að þið séuð búnir að selja alla altcoina enda er verðið á Bitcoin á leiðinni út í geim. :money

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Þri 02. Maí 2017 16:29
af marri87
Það er alltof seint að kaupa Bitcoin núna, ekki nema þú eigir bitcoin sjálfur og ert að treysta á að fólk sé akkúrat í thrill/euphoria stiginu skv myndinni sem mundivalur póstaði :evillaugh

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Þri 02. Maí 2017 20:04
af mundivalur
það er líklegt að það verði hægt að kaupa bitcoin á 1200$ ef það kemur góð dýfa en þetta mun kanski ná 1800-2000$ á þessu ári
óþarfi að æsa sig ef altcoin fer niður um 20% haha en ég fékk frekar stórann mínus en búið að lagast helling síðan í gær :megasmile
kort sem sýnir fyrstu veislu, við erum líklega í optimism á veislu 2
Mynd
EDIT*
það er smá BTC dump í gangi og á eftir að koma í ljós hvaða leið við förum en hér er ein leið og ef við förum niður þá kaupa kaupa :D
Mynd

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Mið 03. Maí 2017 13:19
af halldorjonz
Úff tapaði 20 bitcoins í þessu árið 2014, svo ég hætti í þessu (gerði samt ~5btc að 20 á nokkrum vikum) fyndið að sjá coin sem ég var að tradea með þá og þá fannst manni veltan mikil, núna var hann að tradea yfir 10 miljónir dollara á 1 degi í apríl það er rosalegt, greinilegt að það er kominn mikið action á ný þarna :) freistandi að kíkja

Shit man að þegar ég var að skoða þráðin með ETH þegar það var að starta, þá var uppboð á coins og ég hugsaði þetta er nú örugglega eitthvað svindl var eitthvað um 1500 eth fyrir 1 btc.. núna er 1 eth/usd á 74$ þannig þetta væru 111.000$ í dag hefði verið ansi sweet að kaupa eitthvað af þessu og gleyma þessu í 2-3 ár :sleezyjoe :shock:

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Mið 03. Maí 2017 14:37
af mundivalur
já haha það var svakalegt þegar mintpal var með 4000btc á sólahring svo núna polo náði 213000btc (apríl minnir mig)
Ég keypti ETH fyrir 0,5btc og seldi fyrir 4btc en þolinmæðin var ekki meiri !

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fim 04. Maí 2017 16:01
af demokritos
Mynd


Þetta er það sem mér þykir lang áhugaverðast við rafmyntir og þessa verðhækkun undanfarnar vikur. Það tók 7 ár fyrir allar rafmyntir að ná 10 milljarða dollara marketcap (að frátaldri bólunni 2013), 7 mánuði í viðbót að ná 20 milljörðum, svo 2 mánuði að ná upp í 30 milljarða og loks 5 daga að ná upp í 40 milljarða. Það er greinilega er eitthvað mikið í gangi.

Annað ótengt: hefur einhver hugmynd um hvort/hvernig eigi að borga skatta af BTC og öðrum rafmyntum á Íslandi?

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fim 04. Maí 2017 20:39
af mundivalur
Já þetta er svakalegt og mun bara verða stærra :D

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fim 04. Maí 2017 23:14
af marri87
demokritos skrifaði:Annað ótengt: hefur einhver hugmynd um hvort/hvernig eigi að borga skatta af BTC og öðrum rafmyntum á Íslandi?


Hef ekki fundið neitt sem gildir um Ísland, virðist vera misjafnt eftir löndum.
mundivalur, hefur þú einhverja þekkingu á því hvernig þetta er hérna?

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fös 05. Maí 2017 00:11
af worghal
marri87 skrifaði:
demokritos skrifaði:Annað ótengt: hefur einhver hugmynd um hvort/hvernig eigi að borga skatta af BTC og öðrum rafmyntum á Íslandi?


Hef ekki fundið neitt sem gildir um Ísland, virðist vera misjafnt eftir löndum.
mundivalur, hefur þú einhverja þekkingu á því hvernig þetta er hérna?

þú borgar ekki skatt af BTC per say, en þegar þú selur BTC og tekur gróðann inn í landið þá áttu að borga skatt því þetta eru jú bara persónulegar tekjur.

Re: Ný altcoin veisla !

Sent: Fös 05. Maí 2017 00:48
af mundivalur
Mig minnir að RSK hafi beðið fólk um að gefa upp Bitcoin eignina sýna en ekkert meira en það