Síða 2 af 2

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Mán 14. Apr 2014 10:22
af djarfur
Shit þetta er ekki enþá komið....

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Fim 24. Apr 2014 17:18
af hilmar_jonsson
Vitið þið til þess að einhver sé að vinna í því að gera íslenskan markað með BTC,ISK og AUR ?

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Fim 24. Apr 2014 18:32
af svanur08
Hvað eru menn að fjárfesta í þessu bulli, er þetta ekki allt að snarlækka? Öruggasta fjárfesting er Gull.

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Fim 24. Apr 2014 20:25
af donzo
Vantar upplýsingar með justcoin hvernig það virkar nákvæmlega, á nákvæmlega 0.85253442 bitcoin og mér vantar peninginn sem fyrst fyrir bílakaup.

Hversu langan tíma mun þetta taka að senda frá justcoin og inná reikninginn ?
Hversu mikið gjald þarf ég að borga af þessu ?

Nema einhver hefur áhuga að kaupa þetta af mér? Miðað við núverandi gengi er þetta um 45k~

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Fös 25. Apr 2014 07:07
af Gúrú
donzo skrifaði:Vantar upplýsingar með justcoin hvernig það virkar nákvæmlega, á nákvæmlega 0.85253442 bitcoin og mér vantar peninginn sem fyrst fyrir bílakaup.
Hversu langan tíma mun þetta taka að senda frá justcoin og inná reikninginn ?
Hversu mikið gjald þarf ég að borga af þessu ?

Justcoin virkar þannig að þú setur inn Bitcoins (eða aðra studda gjaldmiðla) og mátt kaupa aðra gjaldmiðla með þeim gjaldmiðil á opnum markaði, nákvæmlega eins og á Cryptsy.

Frá Justcoin og inn á reikninginn tekur yfirleitt 2-3 virka daga. Þú ert óheppinn að vera að standa í þessu á föstudegi.

Gjaldið er mjög lágt. Undir 1000 krónur í heildina.

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Mán 28. Apr 2014 18:49
af donzo
Gúrú skrifaði:

Alright ég ætla að fara taka út í kvöld eða á morgun, nota ég IBAN eða International wire transfer og hvar finn ég allar upplýsingarnar til að láta inna þetta fyrir bankabókina hjá mér ? þarf allavega vera búinn að fá peninginn fyrir á föstudaginn.

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Fim 01. Maí 2014 23:28
af sigxx
Ég hef verið að nota VirWox.com til að setja Bit-coin inná Paypal reikninginn minn. tekur um 1-2 virka daga og þeir taka 1% fyrir.

Þarft að breyta BTC -> SLL og svo SLL -> USD

cryptsy.com mun bráðlega bjóða uppá að breyta í USD og þá verður hægt að borga út AUR, BTC, LIT og allar hinar myntirnar.

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Fös 02. Maí 2014 10:09
af benediktkr
Bitcoin Blockchain er ca 30GB núna. Þannig ef þú sóttir Bitcoin Core wallet og ætlar að láta það synac sig frá byrjun þarf það að sækja 30 GB af data og validera keðjuna.

Torrentaðu frekar Blockchain Bootstrap. Það er torrent skrá af blockchain sem er gefin út reglulega. Þá þarftu bara að synca frá þeim tímapunkti sem það var búið til, sem er í mesta lagi nokkrar vikur.

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Þri 06. Maí 2014 15:20
af Arnarmar96
Hvernig virkar að nota ísl bankareikning á justcoin? eða þið vitið hvað ég meina.. hvar set ég banka upplysingarnar minar og hvernig? international wire? og hvað gef ég upp? getur eitthver sent mer pm með mynd hvernig þetta er uppsett hjá þeim? lofa 100% trúnaði getið þessvegna strikað yfir eitthverja tölustafi.. langar bara að sja hvernig þetta er sett upp!

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Þri 06. Maí 2014 20:39
af Arnarmar96
Eitthver? eða þá bara segja mér hvar ég set reikningsnr og kt?

EDIT*

Nvm, ég fiktaði mig bara áfram.. vonandi gerði ég rétt annars er ég að tapa 50 euro's :s

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Þri 06. Maí 2014 20:46
af svensven
Finnur IBAN númerið þitt í heimabankanum þínum, fer í nánari upplýsingar um reikninginn þinn minnir mig og svo er swift hjá íslandsbanka GLITISRE

Sjá twitter svar frá ISB sem ég fann á google https://twitter.com/islandsbanki/status/173378349132038144

Re: Hvar á maður að selja bitcoins?

Sent: Þri 06. Maí 2014 21:10
af Arnarmar96
Ég gerði bara international wire.. og það hleypti mer í gegn. nuna er það bara waiting to be processed