Daginn
Langaði fá smá upplýsingar varðandi þessa breytingu á dísel bílum.
Þegar búið er að gera þetta, þá sérstaklega með PDF gæjann. Hvernig ganga þá skoðanir á bílnum eftir það?
Mun hann ekki falla á mengunar testi eða álíka?
Eins líka eftir þetta, þarf þá ekki að endurforrita vélina til að reikna með að þetta sé bæði farið og taka út PFD villu kóða og fleira?
Er þetta ekki yfirleitt gert í sameiningu við að mappa bíl, gera hann aflmeiri?
Takk
EGR DPF delete Spurning
Re: EGR DPF delete Spurning
Það er bara tímaspursmál að það verði tekið almennilega á þessu í skoðun.
Það er í skoðunarhandbókinni reykþéttnimæling og sjónskoðun á mengunarvarnarbúnaði en það er ekki farið eftir því sem er ömurlegt.
Eftirlit með bifreiðarskoðun en virkilega illa viðhaldið undanfarin ár en það er einhver viðsnúningur í því.
Ég mæli sterklega gegn þessu, þetta mun bara bíta í þig seinna og þessir "tjúnarar" eru ekki að fara að gera neitt fyrir þig.

það er bara tímaspurnsmál hvenær það verður farið að athuga með virkni á þessum búnaði og þá verða ansi margir í dýrum vandamálum með að láta virkja þetta aftur og kaupa mögulega rándýra kúta og svona. svo verða einhverjir sem hafa keypt bíla í góðri trú þar sem er búið að eiga við þennan búnað og lenda kannski í því að þurfa eyða háum upphæðum til að laga það. það að fjarlægja þennan búnað er ólöglegt.