Síða 1 af 1
Bílahugleiðingar
Sent: Mán 19. Maí 2025 10:38
af Fennimar002
Sælir félagar,
Ef þið sáuð fyrri bílaþráð frá mér, þá vitiði að Volvoinn lenti í tjóni og er ég búinn að selja tryggingafélaginu bílinn
En nú er komið að þvi að leita mér að öðrum bíl til að fylla upp í tómið sem þetta atvik er hefur valdið síðustu vikur.
Er að reyna velta því fyrir mér hvernig bíl ég gæti fengið fyrir 1,5m-2m. Vill helst ssk dísel bíl, en er opin fyrir bensin, og þyrfti að vera með krók eða "ódýran" möguleika á þakbogum (roof racks) til að setja Thule hjólafestingu á.
Hvernig bílum mæla Vaktarar með að skoða? Hvaða bílar/vélar ætti ég EKKI að skoða? Hvað þarf maður að hafa í huga þegar maður fer að skoða bíl?
Hvað er of mikil keyrsla mv. aldur td?
Allar ábendingar vel þegnar

Re: Bílahugleiðingar
Sent: Mán 19. Maí 2025 11:00
af rapport
Litli bró var að setja sinn á sölu...
Hjólin fara bara í 565 lítra skottið.

- Skjámynd 2025-05-19 105807.png (2.15 MiB) Skoðað 1658 sinnum
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Mán 19. Maí 2025 12:05
af worghal
ertu þá að leitast eftir því að staðgreiða 1.5-2m? af hverju ekki bara að setja það í nýrri bíl og taka lán fyrir rest?
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Mán 19. Maí 2025 12:19
af Jón Ragnar
Sá Volvoinn í portinu hjá trygginarfélaginu þínu um daginn.
Synd, þetta var flottur bíll
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Mán 19. Maí 2025 14:07
af Fennimar002
rapport skrifaði:Litli bró var að setja sinn á sölu...
Hjólin fara bara í 565 lítra skottið.
Skjámynd 2025-05-19 105807.png
Takktakk. En aðeins of gamall fyrir mig
worghal skrifaði:ertu þá að leitast eftir því að staðgreiða 1.5-2m? af hverju ekki bara að setja það í nýrri bíl og taka lán fyrir rest?
Er enn að safna mér fyrir íbúð, þannig myndi ekki hugsa mér að taka lán fyrir nýjum
worghal skrifaði:ertu þá að leitast eftir því að staðgreiða 1.5-2m? af hverju ekki bara að setja það í nýrri bíl og taka lán fyrir rest?
Takk fyrir það, enda setti ég mikla ást og umhyggju ( og pening) í bílinn.
(tryggingafélag hins ökumanns keypti bílinn af mér)
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Mán 19. Maí 2025 18:29
af Tobbig
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Þri 20. Maí 2025 21:01
af Dropi
Þig vantar einn svona
https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 52959665eePlássið í þessum bílum er ekki eðlilegt! Minn draumabíll er svona 2014-2015 XC70, en minn 2008 V70 mun duga þangað til ég er búinn að borga íbúðarlánið. Þá fagna ég með þvi að fara til Svíþjóðar og keyri einhvern flottan V90 heim. Svo eru nokkrir V70 á bilinu 1.5-2 núna til sölu sem mér finnst fallegir, en ég er sennilega í minnihluta að finnast það.
Sorglegt að sjá hvernig fór fyrir þínum, fallegur bíll, sá myndirnar sem þú settir á volvo spjallið.
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Þri 20. Maí 2025 21:30
af Minuz1
Er dísel eitthvað útaf stíl eða ertu að keyra það mikið að það borgi sig?
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Fim 22. Maí 2025 11:49
af Jón Ragnar
Dropi skrifaði:Þig vantar einn svona
https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 52959665eePlássið í þessum bílum er ekki eðlilegt! Minn draumabíll er svona 2014-2015 XC70, en minn 2008 V70 mun duga þangað til ég er búinn að borga íbúðarlánið. Þá fagna ég með þvi að fara til Svíþjóðar og keyri einhvern flottan V90 heim. Svo eru nokkrir V70 á bilinu 1.5-2 núna til sölu sem mér finnst fallegir, en ég er sennilega í minnihluta að finnast það.
Sorglegt að sjá hvernig fór fyrir þínum, fallegur bíll, sá myndirnar sem þú settir á volvo spjallið.
Galið hvað þetta er dýrt, 11 ára gamall bíll ekið alveg slatta!
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Fim 22. Maí 2025 13:36
af worghal
Jón Ragnar skrifaði:Dropi skrifaði:Þig vantar einn svona
https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 52959665eePlássið í þessum bílum er ekki eðlilegt! Minn draumabíll er svona 2014-2015 XC70, en minn 2008 V70 mun duga þangað til ég er búinn að borga íbúðarlánið. Þá fagna ég með þvi að fara til Svíþjóðar og keyri einhvern flottan V90 heim. Svo eru nokkrir V70 á bilinu 1.5-2 núna til sölu sem mér finnst fallegir, en ég er sennilega í minnihluta að finnast það.
Sorglegt að sjá hvernig fór fyrir þínum, fallegur bíll, sá myndirnar sem þú settir á volvo spjallið.
Galið hvað þetta er dýrt, 11 ára gamall bíll ekið alveg slatta!
hægt að fá stóra nýrri bíla á minna verði, eins og þessi 2017 passat gte station, með flottu sætin og digital mælaborð
https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 9d0ce590fd
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Fim 22. Maí 2025 14:22
af Jón Ragnar
worghal skrifaði:Jón Ragnar skrifaði:Dropi skrifaði:Þig vantar einn svona
https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 52959665eePlássið í þessum bílum er ekki eðlilegt! Minn draumabíll er svona 2014-2015 XC70, en minn 2008 V70 mun duga þangað til ég er búinn að borga íbúðarlánið. Þá fagna ég með þvi að fara til Svíþjóðar og keyri einhvern flottan V90 heim. Svo eru nokkrir V70 á bilinu 1.5-2 núna til sölu sem mér finnst fallegir, en ég er sennilega í minnihluta að finnast það.
Sorglegt að sjá hvernig fór fyrir þínum, fallegur bíll, sá myndirnar sem þú settir á volvo spjallið.
Galið hvað þetta er dýrt, 11 ára gamall bíll ekið alveg slatta!
hægt að fá stóra nýrri bíla á minna verði, eins og þessi 2017 passat gte station, með flottu sætin og digital mælaborð
https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 9d0ce590fd
Já einmitt. Keypti svona nýjan svona 2018 og hann var 900k dýrari en þessi Volvo núna haha
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Fös 23. Maí 2025 08:43
af GullMoli
Þessir gömlu XC70 bílar eru algjör negla en þótt ég sé Volvo karl þá finnst mér verðið á þeim algjört rugl. Hvað veit maður nema það sé kominn tími á að endurnýja hitt og þetta í bílnum, mögulega óheppinn með eintak, sem er ekkert ólíklegt með bíl ekinn þetta mikið.
Færi allan daginn í eitthvað annað, miklu ódýrara ef þú ert að safna fyrir íbúð þar sem bílar eru svo mikil peningasóun.
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Lau 24. Maí 2025 11:04
af Zensi
https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 82087656e4Bróðir minn á svona módel, eyðir sama og engu, bilar aldrei (með eðlilegu viðhaldi), eiginlega fáránlega rúmgóður og þæginlegur að sitja í (limósínu fílingur) og mjög skemmtilegur í akstri. Aukabúnaður á par við dýra benz.
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Lau 24. Maí 2025 11:24
af GuðjónR
Zensi skrifaði:https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid=4&cid=956718&sid=983661&schid=dff2664b-321f-40e5-b016-6482087656e4
Bróðir minn á svona módel, eyðir sama og engu, bilar aldrei (með eðlilegu viðhaldi), eiginlega fáránlega rúmgóður og þæginlegur að sitja í (limósínu fílingur) og mjög skemmtilegur í akstri. Aukabúnaður á par við dýra benz.
Allt of dýr þessi, góðir bílar já, en þegar þú ferð yfir 200k þá er það tímareim, svo fljótlega eftir það þá er það túrbínan og svo spíssar...rúllar hratt upp í milljón þegar það byrjar.
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Lau 24. Maí 2025 19:34
af Frost
GuðjónR skrifaði::no
Zensi skrifaði:https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid=4&cid=956718&sid=983661&schid=dff2664b-321f-40e5-b016-6482087656e4
Bróðir minn á svona módel, eyðir sama og engu, bilar aldrei (með eðlilegu viðhaldi), eiginlega fáránlega rúmgóður og þæginlegur að sitja í (limósínu fílingur) og mjög skemmtilegur í akstri. Aukabúnaður á par við dýra benz.
Allt of dýr þessi, góðir bílar já, en þegar þú ferð yfir 200k þá er það tímareim, svo fljótlega eftir það þá er það túrbínan og svo spíssar...rúllar hratt upp í milljón þegar það byrjar.
Það er nánast eins og þú sért að tala um alla nútíma dísel bíla...
Ef þetta væri annað merki með tímareim þá þarftu samt að skipta um tímareim.
Þegar þú finnur framleiðanda sem hefur búið til spíssa sem endast líftíma bílsins (þeir eru ekki margir, BOSCH, Delphi, Continental, DENSO) máttu senda mér einkaskilaboð.
Túrbínur eru eins og bremsur, slithlutir. Þær endast ekki endalaust.
Þetta eru góðir bílar sem þægilegt er að keyra og eyða þannig séð lítið. Þeir haldast í verði vegna þess.
Þessi athugasemd frá þér er tilgangslaus.
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Lau 24. Maí 2025 23:57
af Henjo
Frost skrifaði:GuðjónR skrifaði::no

Ekki gleyma að margir bílar með tímakeðju, þegar þeir eru komnir í 200þús þá er tímakeðjan annaðhvort orðin léleg eða löngu farinn og búin að taka mótorinn með sér. Plús þá er nýbuið að skipta um tímareim í bílnum sem er verið að vitna í.
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Sun 25. Maí 2025 00:37
af elri99
Átti fyrstu kynslóð af Honda CR-V í 20 ár. Get mælt með.
https://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bi ... 99e0ede093
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Sun 25. Maí 2025 12:39
af GuðjónR
Frost skrifaði:GuðjónR skrifaði:Allt of dýr þessi, góðir bílar já, en þegar þú ferð yfir 200k þá er það tímareim, svo fljótlega eftir það þá er það túrbínan og svo spíssar...rúllar hratt upp í milljón þegar það byrjar.
Það er nánast eins og þú sért að tala um alla nútíma dísel bíla...
Ef þetta væri annað merki með tímareim þá þarftu samt að skipta um tímareim.
Þegar þú finnur framleiðanda sem hefur búið til spíssa sem endast líftíma bílsins (þeir eru ekki margir, BOSCH, Delphi, Continental, DENSO) máttu senda mér einkaskilaboð.
Túrbínur eru eins og bremsur, slithlutir. Þær endast ekki endalaust.
Þetta eru góðir bílar sem þægilegt er að keyra og eyða þannig séð lítið. Þeir haldast í verði vegna þess.
Þessi athugasemd frá þér er tilgangslaus.
Ég var ekki að rakka bílinn. Þetta eru fínir bílar, það sagði ég líka.
En þegar díselbíll er orðinn 10 ára og nálgast eða fer yfir 200k, þá fer kostnaður að hlaðast upp.
Það er ekki merkjabundið, þetta er bara eðlilegt slit.
Ég sagði þetta ekki út í loftið heldur út frá minni eigin reynslu.
Ég á Skoda dísel sem fór í túrbínu, spíssa, MAF skynjara, parkskynjara, bremsudælur og fleira, allt innan árs.
Þetta fór samtals yfir milljón í viðgerðum, þó bíllinn hafi verið í góðu ástandi og við haldið skv. bók.
Punkturinn minn er bara sá að fólk geri sér grein fyrir hvað getur verið fram undan við þennan aldur og kílómetrafjölda.
Það er ekki tilgangslaust. Það er praktískt.
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Mán 26. Maí 2025 00:45
af Zensi
GuðjónR skrifaði:Frost skrifaði:GuðjónR skrifaði:Allt of dýr þessi, góðir bílar já, en þegar þú ferð yfir 200k þá er það tímareim, svo fljótlega eftir það þá er það túrbínan og svo spíssar...rúllar hratt upp í milljón þegar það byrjar.
Það er nánast eins og þú sért að tala um alla nútíma dísel bíla...
Ef þetta væri annað merki með tímareim þá þarftu samt að skipta um tímareim.
Þegar þú finnur framleiðanda sem hefur búið til spíssa sem endast líftíma bílsins (þeir eru ekki margir, BOSCH, Delphi, Continental, DENSO) máttu senda mér einkaskilaboð.
Túrbínur eru eins og bremsur, slithlutir. Þær endast ekki endalaust.
Þetta eru góðir bílar sem þægilegt er að keyra og eyða þannig séð lítið. Þeir haldast í verði vegna þess.
Þessi athugasemd frá þér er tilgangslaus.
Ég var ekki að rakka bílinn. Þetta eru fínir bílar, það sagði ég líka.
En þegar díselbíll er orðinn 10 ára og nálgast eða fer yfir 200k, þá fer kostnaður að hlaðast upp.
Það er ekki merkjabundið, þetta er bara eðlilegt slit.
Ég sagði þetta ekki út í loftið heldur út frá minni eigin reynslu.
Ég á Skoda dísel sem fór í túrbínu, spíssa, MAF skynjara, parkskynjara, bremsudælur og fleira, allt innan árs.
Þetta fór samtals yfir milljón í viðgerðum, þó bíllinn hafi verið í góðu ástandi og við haldið skv. bók.
Punkturinn minn er bara sá að fólk geri sér grein fyrir hvað getur verið fram undan við þennan aldur og kílómetrafjölda.
Það er ekki tilgangslaust. Það er praktískt.
Fyrir forvitnissakir, hvaða powerplant var í þeim bíl og hvaða árgerð? Vélarnar frá VAG (sérstaklega dísel) hafa á köflum verið einstaklega misjafnar þegar kemur að endingu og má í flestum tilfellum rekja vandamálið til EGR og compound áhrifa þess að keyra þessa mótora stöðugt stuttar ferðir, að vera stöðugt að torque'a mótorinn undir 3.000 RPM í 1 & 2 gír (stutt milli ljósa) og að snúa þeim ekki almennilega yfir 3500 Rpm í amk 15-20 mín einu sinni í viku til að spóla út óbrenndu recycled sóti (þarsem sjálfvirki EGR "bruninn" gerir bara illt verra).
EA189 Diesel mótorinn (2.0 ltr) var t.d. ódrepandi og fer víðast í 5-600þ km án teljandi viðhalds utan olíusíuskipta og þetta venjulega, solid túrbína og vatnsdælan einföld, engin gúmmíbelti höfð í stöðugu olíubaði, solenoid spíssar sem entust yfir 300þ km ef passað var að vélin fylltist ekki af sóti, solid strekkjari og tímabúnaður osfrv.
Á sama tíma var EA188 (1.9ltr t.d.) líka sett í VAG bíla og var hún frekar léleg og bilanagjörn þrátt fyrir að hugsað væri rétt um hana.
EA288 kom svo töluvert betur út en EA188.
Þetta er bara eins og að bera appelsínur og epli saman. Ef einhver er í bílakaupshugleiðingum er best að kynna sér powerplantið vel og lesa sér til um það, jafnvel hringja í þjónustuverkstæðin eða víðar og spyrja hvað þeir hafa helst séð vera að fara í mótorum við okkar íslensku aðstæður.
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Mán 26. Maí 2025 18:49
af GuðjónR
@Zensi
Þetta er Skoda Octavia Mk2 1.6 TDI árgerð 2013 með EA189 vél og 5 gíra beinskiptur. Keyrður reglulega 20+ km leið en samt fer ýmislegt að gefa sig eftir 200k km.
Þetta tengist meira aldri og hönnun en slæmum akstri. Svona er þetta bara með þessa mótorlínu.
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Mán 09. Jún 2025 18:51
af Fennimar002
Er að skoða 2016 nissan qashqai keyrður 137k með krók. Bsk dísel 4x4.
Hvað þarf að hafa í huga þegar ég er að skoða nissan bíla? Eða bara notaða bíla yfir höfiuð?
Vélin er R9M. Samkvæmt Wiki, þá er þetta vél sem var í famleiðsu-samstarfi við Renault.
ChatGPT segir "Manual versions may need clutch/DMF replacement by 130k-160k km." væri þetta dýrt verk? hvenær myndi þurfa að láta skipta um ef ég kaupi bílinn?
Re: Bílahugleiðingar
Sent: Mán 09. Jún 2025 19:11
af Hizzman
Fennimar002 skrifaði:Er að skoða 2016 nissan qashqai keyrður 137k með krók. Bsk dísel 4x4.
Hvað þarf að hafa í huga þegar ég er að skoða nissan bíla? Eða bara notaða bíla yfir höfiuð?
Vélin er R9M. Samkvæmt Wiki, þá er þetta vél sem var í famleiðsu-samstarfi við Renault.
ChatGPT segir "Manual versions may need clutch/DMF replacement by 130k-160k km." væri þetta dýrt verk? hvenær myndi þurfa að láta skipta um ef ég kaupi bílinn?
var beðinn um að skipta um peru í framljósi á svona bíl, gekk ekki vel, mig minnir að það hafi verið gert á verkstæði