Bíllinn hurðaður

Allar tengt bílum og hjólum
Skjámynd

Höfundur
Fennimar002
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 378
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 21
Staða: Ótengdur

Bíllinn hurðaður

Pósturaf Fennimar002 » Sun 27. Apr 2025 11:14

Síðan að ég flutti í fjölbýli í HFJ í lok jan hef ég lent í að bíllinn minn fengið hurðar utan í sig tvö skipti og aldrei fengið neina tilkynningu.
Þetta eru neitt rosa slæmt, en lakkið er samt onýtt á þeim stöðum ](*,)

Hvert mæla vaktarar með að láta massa bíllinn og mun ekki kosta hálfan handlegg? :-k
Fór fyrir einhverju síðan og fékk tilboð sem var um 200k því lakkið á bílnum er svo þykkt. Er með 2016 Volvo V60 \:D/


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz


littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2426
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 156
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf littli-Jake » Sun 27. Apr 2025 20:33

Þykktin á lakkinu ætti nú ekki að vera faktor.
Að heil massa bíl þannig að það sé almennilega gert tekur marga klukkutíma. 200k er kannski í hærra lagi en þetta er alltaf að fara að vera dýrt.

Og án þess að hafa séð skemmdirnar efast ég um að mössun lagi þetta.


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180

Skjámynd

Prentarakallinn
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 379
Skráði sig: Mið 01. Jún 2011 13:22
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Prentarakallinn » Mán 28. Apr 2025 11:55

Ef við erum að tala um heilt prógram, djúphreinsun á lakki, massa og ceramic húð þá passar 200k alveg. Þetta er alveg 2-3ja daga program


TV: LG G4 | Soundbar: LG SNY7
Ryzen 5 3700X | RTX 4060ti 16GB | 32 GB Crucial Ballistix 3200Mhz

Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1595
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 138
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf audiophile » Þri 29. Apr 2025 07:48

Eftir að hafa dundað við að massa bíla sjálfur fyrir mörgum árum get ég alveg vottað þetta getur verið brjáluð vinna og tekur tíma. Glæran á bílum er mismunandi. Það er erfiðara að vinna niður rispurnar á sumum bíltegundum og tekur lengri tíma. Svo má ekki gleyma að fyrst þarf að þvo bílinn mjög vel og svo leira hann ef vel á að vera.

Annars þarf ekki endilega að heilmassa bíl út af nokkrum rispum eftir hurðum. Það er hægt að handmassa þetta sjálfur til að láta þetta líta betur út og ná allavega málningarnuddinu úr. Mæli með að kíkja í Málningarvörur og kaupa smá massa hjá þeim og púða og prófa. Kostar töluvert minna en heilmössun.
Síðast breytt af audiophile á Þri 29. Apr 2025 07:54, breytt samtals 1 sinni.


Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

Höfundur
Fennimar002
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 378
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 21
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Fennimar002 » Fös 02. Maí 2025 21:51

Jæja,
Þarf ekki að pæla í þessum rispum lengur því bíllinn var meira en bara hurðaður í dag...
volvo tjon 1.PNG
volvo tjon 1.PNG (1.7 MiB) Skoðað 6426 sinnum

volvo tjon 2.PNG
volvo tjon 2.PNG (2.09 MiB) Skoðað 6430 sinnum



Bíllinn var lagður í stæði á Hringbrautinni í 40 min. Rúta keyrir á hann 25min eftir að ég labba frá honum.

Hvernig virkar þetta með að færa bílinn? Ég ´tla ekkert að borga Krók til að færa bílinn, fyrirtækið eða tryggingin gerir það væntanlega. En vill fá hann í burt sem fyrst áður en einhver annar keyrir á hann.
Síðast breytt af Fennimar002 á Fös 02. Maí 2025 21:53, breytt samtals 2 sinnum.


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz


vesley
Kóngur
Póstar: 4266
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 196
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf vesley » Lau 03. Maí 2025 14:50

Ef búið er að gera tjónaskýrslu þá hringir þú bara í Krók og tilkynnir þeim að tryggingarfélag þess sem keyrði á þig greiði reikninginn.



Skjámynd

Jón Ragnar
</Snillingur>
Póstar: 1074
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 220
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Jón Ragnar » Mán 05. Maí 2025 08:44

Lán í óláni þarna!

Færð hann full málaðann þarna :)



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

Höfundur
Fennimar002
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 378
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 21
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Fennimar002 » Þri 06. Maí 2025 14:11

Jahh, nema ef tryggingarnar vilja greiða fyrir bílinn frekar sem ég vona ekki [-o<

Mun ég ekki pottþétt fá þessar felgur greiddar líka? Keypti þær á sirka 300k fyrir rúm 2 árum (4 felgur + dekk + tollur)


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8188
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1309
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf rapport » Mið 07. Maí 2025 09:04

Fennimar002 skrifaði:Jahh, nema ef tryggingarnar vilja greiða fyrir bílinn frekar sem ég vona ekki [-o<

Mun ég ekki pottþétt fá þessar felgur greiddar líka? Keypti þær á sirka 300k fyrir rúm 2 árum (4 felgur + dekk + tollur)


Tryggingafélagið mun bara taka tillit til markaðsvirðis bílsins og ef þau greiða hann út þá færðu held ég mest 80% af andvirði bílsins (sambærilegs bíls) en vonandi dugar það fyrir almennilegri viðgerð.

En ef tryggingafélag rútunnar er þitt tryggingafélag og notar "hámarksandvirði" bílsins skv. kaskótryggingunni gegn þér... þá er það óheimilt, það eru ekki upplýsingar um raunverulegt verðgildi bílsins, bara hvað þú ert tilbúinn að tryggja hann fyrir.



En í þessu bílaviðgerðasamhengi... sá svolítið svakalegt í gær hjá félaga mínum sem stýrir litlu fyrirtæki sem er með bílaplan fyrir viðskiptavini.

Viðskiptavinur (tengdur áhrifavöldum) skemmdi bílinn sinn á planinu því hann fór eki nógu gætilega en fyrirtækið sagði við hann "fáðu tilboð í viðgerðina og við skulum sjá hvernig við getum mætt þér í þessu".

Verkstæðið gerði tilboð í að mála hurðina á hvítum bíl... ekki beygla, bara djúp rispa... 380þ.

En þeir virðast ekki hafa fattað að það skönnuðust tvær blaðsíður og á seinni blaðsíðunni kom fram CABAS mat á sömu viðgerð 178þ.

Ég átta mig á að CABAS matið er líklega með öllum afsláttum og kjörum sem tryggingafélögin fá en þykir það eðlilegra verð fyrir viðgerðina.

En þar sem þetta er plain hvítur bíll um 10cm djúp rispa (engin beygla samt) þá hefði maður haldið að það þyrfti ekki að sprauta alla hurðina og raun betra að sprauta hana ekki alla (eða er ég bara að bulla?)




B0b4F3tt
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 324
Skráði sig: Þri 05. Ágú 2014 12:11
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf B0b4F3tt » Mið 07. Maí 2025 09:22

rapport skrifaði:En þar sem þetta er plain hvítur bíll um 10cm djúp rispa (engin beygla samt) þá hefði maður haldið að það þyrfti ekki að sprauta alla hurðina og raun betra að sprauta hana ekki alla (eða er ég bara að bulla?)

Til þess að koma í veg fyrir einhvern litamismun þá er algengt að allur body panellinn sé sprautaður og að einnig sé sprautað inn á nærliggjandi panela.



Skjámynd

Höfundur
Fennimar002
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 378
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 21
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Fennimar002 » Mið 07. Maí 2025 10:05

rapport skrifaði:
Fennimar002 skrifaði:Jahh, nema ef tryggingarnar vilja greiða fyrir bílinn frekar sem ég vona ekki [-o<

Mun ég ekki pottþétt fá þessar felgur greiddar líka? Keypti þær á sirka 300k fyrir rúm 2 árum (4 felgur + dekk + tollur)


Tryggingafélagið mun bara taka tillit til markaðsvirðis bílsins og ef þau greiða hann út þá færðu held ég mest 80% af andvirði bílsins (sambærilegs bíls) en vonandi dugar það fyrir almennilegri viðgerð.

En ef tryggingafélag rútunnar er þitt tryggingafélag og notar "hámarksandvirði" bílsins skv. kaskótryggingunni gegn þér... þá er það óheimilt, það eru ekki upplýsingar um raunverulegt verðgildi bílsins, bara hvað þú ert tilbúinn að tryggja hann fyrir.



M.v. símtal í gær við tjónafulltrúa hjá Vís (sem rútufyrirtækið er tryggt) þá sagði fulltrúinn að þetta yrði ekki viðgerðarhæft, eða allavega m.v myndyrnar. En það á samt eftir að tjónameta bílinn alveg.

Í morgun fór ég á réttingarverkstæði og fékk álit frá einum þar og sagði hann mér að bíllinn væri viðgerðarhæfur, en skiptir máli hvað varahlutirnir kosta. Sagði líka að flest tryggingarfélög greiða viðgerðir allt að 70-80% virði bílsins í viðgerðir. Ef það fer yfir, þá kaupa þeir bílinn.

Einnig sagði hann að markaðsvirði bílsins væri á bilinu 3-4m. [-o<


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz

Skjámynd

olihar
Kerfisstjóri
Póstar: 1256
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 291
Staða: Tengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf olihar » Mið 07. Maí 2025 10:38

Fennimar002 skrifaði:Jæja,
Þarf ekki að pæla í þessum rispum lengur því bíllinn var meira en bara hurðaður í dag...
volvo tjon 1.PNG
volvo tjon 2.PNG


Bíllinn var lagður í stæði á Hringbrautinni í 40 min. Rúta keyrir á hann 25min eftir að ég labba frá honum.

Hvernig virkar þetta með að færa bílinn? Ég ´tla ekkert að borga Krók til að færa bílinn, fyrirtækið eða tryggingin gerir það væntanlega. En vill fá hann í burt sem fyrst áður en einhver annar keyrir á hann.



Sjæt... Þetta er dýr viðgerð.



Skjámynd

Höfundur
Fennimar002
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 378
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 21
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Fennimar002 » Mið 07. Maí 2025 15:23

olihar skrifaði:
Fennimar002 skrifaði:Jæja,
Þarf ekki að pæla í þessum rispum lengur því bíllinn var meira en bara hurðaður í dag...
volvo tjon 1.PNG
volvo tjon 2.PNG


Bíllinn var lagður í stæði á Hringbrautinni í 40 min. Rúta keyrir á hann 25min eftir að ég labba frá honum.

Hvernig virkar þetta með að færa bílinn? Ég ´tla ekkert að borga Krók til að færa bílinn, fyrirtækið eða tryggingin gerir það væntanlega. En vill fá hann í burt sem fyrst áður en einhver annar keyrir á hann.



Sjæt... Þetta er dýr viðgerð.


Jebbs :crying


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz


Zensi
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Mán 10. Apr 2023 00:22
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Zensi » Fim 08. Maí 2025 11:44

Taktu peninginn og settu það í annan bíl ef þú hefur hugsað þér að selja þennan síðar. Lendir alltaf í major afföllum í sölu ef bíll er með stórtjón á sér eins og þetta.



Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 849
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 319
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Henjo » Fim 08. Maí 2025 17:32

Zensi skrifaði:Taktu peninginn og settu það í annan bíl ef þú hefur hugsað þér að selja þennan síðar. Lendir alltaf í major afföllum í sölu ef bíll er með stórtjón á sér eins og þetta.


Yeap, og fólk mun núna blöskra hvað ég hef að segja: Bíllinn mun hugsanlega verða skráður tjónabíll.



Skjámynd

Höfundur
Fennimar002
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 378
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 21
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Fennimar002 » Fim 08. Maí 2025 19:54

Pælingin var alltaf að eiga þennan til lengri tíma...

En tryggingarnar vildu kaupa bílinn út, og fékk ekki verðið sem ég mydni vilja.

Nú leita ég til fróðara fólki. Lét setja undir bílinn krók, sem kostaði sitt og einnig helv dýrar felgur, og eh flr. Er ekki tekið það með í útreikninginn á útborguninni á bílnum?
BTW tvö stk af nýju felgunum eyðinlögðust. Ætti ég ekki að fá það bætt líka?
Síðast breytt af Fennimar002 á Fim 08. Maí 2025 19:57, breytt samtals 1 sinni.


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8188
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1309
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf rapport » Fös 09. Maí 2025 09:34

Fennimar002 skrifaði:Pælingin var alltaf að eiga þennan til lengri tíma...

En tryggingarnar vildu kaupa bílinn út, og fékk ekki verðið sem ég mydni vilja.

Nú leita ég til fróðara fólki. Lét setja undir bílinn krók, sem kostaði sitt og einnig helv dýrar felgur, og eh flr. Er ekki tekið það með í útreikninginn á útborguninni á bílnum?
BTW tvö stk af nýju felgunum eyðinlögðust. Ætti ég ekki að fá það bætt líka?


Ég lenti í að vera með algjört gulleintak af bíl sem var um 18 ára, ekinn 60þ. alltaf verið geymdur inni á veturna og keypti hann á um milljón.

Um 6 mánuðum eftir að ég kaupi hann fékk ég í hliðina (báðar hurðirnar) eldgamlan karl á splunkunýjum forrester sem var orðinn svo hrumur að hann gat ekki hemlað almennilega, gat bara ekki ýtt nógu fast á bremsuna.

TM bauð mér 590þ. því gangverðið á svona bíl væri 800þ. ég grenjaði þetta upp í 740þ. og keypti annan svona slitinn á 690þ. og reif í varahluti og lagaði minn svo sjálfur.

En, eftir allt þetta fokki fokk þá fór sjálfskiptingin(transaxle) sumarið á eftir og þegar ég tók hana í sundur þá sást greinilega að það hafði komið högg á dekkið í árekstrinum sem hefði fært eitthvað til öxulinn og skiptingin fór að éta sig upp... til að gera langa sögu stutta ég seldi bílinn fyrir 100þ. því ég var orðinn pirraður og ný skipting eða viðgerð hefði kostað $$$.

Lærdómurinn:
Ekki láta gera við illa skemmdan bíl nema þú sért tilbúinn að taka áhættu á fleiri afleiddum bilunum, jafnvel afskrifa kaggann.

Þetta voru engar alvöru upphæðir hjá mér, bara mest eftirsjá eftir bíl sem ég hafði gaman af.

En ef þetta hefði verið bíll upp á 3-4 milljónir þá hefði ég verið mun betur settur að fá bara peninginn.


Mitt tips:
Ég mundi fara á bílasölur og finna sambærilegan bíl, verðmeta þær viðbætur sem þú greiddir fyrir.

Ég mundi svo benda tryggingafélaginu á að þú varst ekki að valda tjóninu og eigir að koma skaðlaust frá þessu, þinn tími og fyrirhöfn í þessu máli sé líka eitthvað sem kostar og þeir verði að gera þetta almennilega.

Svo bara kæra allt og vera með endalaus leiðindi. Tryggingafélög sem svíða fólk eiga ekkert gott skilið.

ps. hvaða tryggingafélag er þetta sem þú ert að díla við?



Skjámynd

Höfundur
Fennimar002
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 378
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 21
Staða: Ótengdur

Re: Bíllinn hurðaður

Pósturaf Fennimar002 » Sun 11. Maí 2025 13:43

Jaa, eftir að hafa fengið meira en viku að melta málið, þá myndi ég ekki vilja láta gera við bílinn. Bara frekar fúlt að gulleintak af bíl eyðinleggst vegna mistaka annars ökumanns.

Er að díla við tjónadeildina hjá Vís. Hef heyrt að þeir eru oft með leiðindi þegar kemur að svona tjónamálum.

Takk fyrir ábendingarnar. Mun 100p reyna að fá rétt verð fyrir bílinn og allavega fá þessar felgur bættar.


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz