Styttist í sumardekkin en það er lítill nagli í einu dekkinu hjá mér. Þrýstingurinn lækkaði hægt og rólega, úr 42 psi niður í 40 psi vikulega, mjög lítill leki, en samt þarf að laga þetta.
Dekkið er ekki á felgu sem ætti að gera viðgerðina einfaldari.
Spurning: Vitið þið hvernig dekkjaverkstæði laga svona? Nota þau frekar svepp (sem fer að innanverðu og er límdur í gegn) eða bara slímugan tappa eins og í þessum viðgerðarsettum sem hægt er að kaupa sjálfur?
Mynd af viðgerð með sveppabót:
sveppur.png (1.18 MiB) Skoðað 9038 sinnum
Mynd af viðgerð með slímugum tappa:
slímugur tappi.png (1.78 MiB) Skoðað 9038 sinnum
Hef líka séð að sumir nota bæði: fyrst tappa og svo smá bót að innan til að einangra betur (svona slöngubót).
bót að innan.png (1.37 MiB) Skoðað 9038 sinnum
Og tvær myndir af dekkinu mínu.
IMG_3433.jpeg (666.53 KiB) Skoðað 9038 sinnum
IMG_3432.jpeg (380.29 KiB) Skoðað 9038 sinnum
Video sem sýnir allskonar aðferðir.
Hvað mynduð þið gera í svona tilfelli? Er einhver kostur sem endist betur eða er öruggari?
Fyrirfram þakkir fyrir öll svör!
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mán 14. Apr 2025 16:50
af Bassi6
Ég myndi nota "Slímtappa"
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mán 14. Apr 2025 17:02
af Diddmaster
Þau dekkjaverkstæði sem hafa gert við hjá mér nota svepp að innanverðu
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mán 14. Apr 2025 17:54
af olihar
Farðu með þetta á verkstæði, þetta er öryggis atriði í bílnum hjá þér, dekkjaverkstæðin nota yfirleitt svepp í svona dekk held ég.
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Þri 15. Apr 2025 08:12
af TheAdder
Þessir "slímtappar" eru ætlaðir til bráðabirgða út á mörkinni, þar til hægt er að koma almennilegri viðgerð við, sem er sveppurinn.
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Þri 15. Apr 2025 09:39
af KaldiBoi
Ef þú ferð með dekkið felgulaust þá kostar þetta slikk. Getur sömuleiðis fengið þá til að gera þetta í leiðinni þegar þú umfelgar.
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Þri 15. Apr 2025 18:29
af einarhr
Alltaf svepp nema í neyðartilvikum. Framleiðendur samþykja ekki stunguviðgerðir en það er í lagi ef maður þarf að redda sér tímabundið og best að láta laga það seinna með sveppi. Það eru meiri líkur á að viðgert dekk vírslitni ef það er ekki notaður sveppur, vann fyrir Goodyear í mörg ár.
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mið 16. Apr 2025 13:13
af GuðjónR
Takk fyrir frábær svör!
Ég held ég sleppi því að nota slímtappa, þó það gæti virkað. Málið er að þetta er lítið gat eftir lítinn nagla, eða um 2 mm í þvermál.
Hafði samband við dekkjaverkstæðið sem mun umfelga fyrir mig og spurði hvort þeir gætu lagað þetta með svepp, en fékk þau svör að þeir noti einungis vulkaniserandi cement.
Mér skilst að þá sé bót límd innan á dekkið, sem virkar vel fyrir lítil göt. Ekki eins gott og sveppur, en betra en slímtappi og ætti að endast út líftíma dekksins.
Hver er ykkar skoðun á þessari aðferð?
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mið 16. Apr 2025 15:19
af olihar
GuðjónR skrifaði:Takk fyrir frábær svör!

Þetta er í raun það sama og sveppur.
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mið 16. Apr 2025 15:36
af GuðjónR
olihar skrifaði:

Sveppur fyllir gatið og límist að innan, en með vulcanizing cement er aðeins límd bót að innan, þannig að gatið er enn opið, sveppur innsiglar bæði og ætti því að vera öruggari, þó þessi aðferð dugi líklega vel í svona tilfelli...eða hvað?
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mið 16. Apr 2025 16:03
af rostungurinn77
Ef bótin þéttir gatið að innan jafn vel og sveppur þá græðirðu væntanlega ekkert á því að það sé einhver stilkur í gegnum gúmmíið.
En ég veit ekki neitt um þetta.
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mið 16. Apr 2025 16:15
af GuðjónR
rostungurinn77 skrifaði:Ef bótin þéttir gatið að innan jafn vel og sveppur þá græðirðu væntanlega ekkert á því að það sé einhver stilkur í gegnum gúmmíið.
En ég veit ekki neitt um þetta.
Mögulega, sérstaklega þar sem það þarf að bora og víkka þetta litla gat til að koma stilknum fyrir. Ætli það sé ekki möguleiki á því að vírslíta dekkið með svoleiðis aðgerð? Þ.e. bora í gegnum víra. Sé svo þá er bót að innan líklega vænlegri kostur.
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Fim 17. Apr 2025 18:56
af Manager1
Þú ert að pæla allt of mikið í þessu, það eru allar líkur á að tappi, sveppur og bót sé allt nógu gott til að endast út líftíma dekksins, hvaða aðferð er notuð skiptir ekki öllu máli.
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mán 21. Apr 2025 20:15
af kjartanbj
Líklega skiptir ekki miklu máli hvað er gert. dekkið á ekki það mikið munstur eftir að það muni skipta miklu
Re: lHvernig er best að laga naglagat í dekki?
Sent: Mán 21. Apr 2025 23:07
af GuðjónR
Manager1 skrifaði:Þú ert að pæla allt of mikið í þessu, það eru allar líkur á að tappi, sveppur og bót sé allt nógu gott til að endast út líftíma dekksins, hvaða aðferð er notuð skiptir ekki öllu máli.
True ... hef tilhneigingu til þess að ofhugsa aðeins. En þetta er komið á hreint, verkstæðið sem umfelgar lagar þetta í leiðinni. Græjar bót innan á, 2-3k og málið dautt.