Síða 1 af 2

Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Mið 12. Feb 2025 12:55
af netkaffi
Edit: þráður var Mælaborðskilaboð (digital) í Dacia jeppling. Þetta er gamli pósturinn:

Tölvuskjárinn í mælaborðinu segir "service check required." Á maður að fara með hann á verkstæði eða kaupa sér græju til að lesa kóða? Auðvitað kýs það sem er ódýrara, sem stendur allavega. Hefur einhver reynslu af þessu? Getur þetta ekki verið hvað sem er, eða fölsk (ekki svo mikilvæg) skilaboð? Einhver með komment á að kaupa sér kóðagræju?

Re: Mælaborðskilaboð (digital) í Dacia jeppling

Sent: Mið 12. Feb 2025 13:11
af worghal
Er ekki bara kominn tími á þjónustuskoðun?

Re: Mælaborðskilaboð (digital) í Dacia jeppling

Sent: Mið 12. Feb 2025 13:42
af netkaffi
Jú, sjálfsagt er þetta það. Mælir fólk með einhverjum bílastæðum núna?

Re: Mælaborðskilaboð (digital) í Dacia jeppling

Sent: Mið 12. Feb 2025 16:36
af mikkimás
netkaffi skrifaði:Tölvuskjárinn í mælaborðinu segir "service check required." Á maður að fara með hann á verkstæði eða kaupa sér græju til að lesa kóða? Auðvitað kýs það sem er ódýrara, sem stendur allavega. Hefur einhver reynslu af þessu? Getur þetta ekki verið hvað sem er, eða fölsk (ekki svo mikilvæg) skilaboð? Einhver með komment á að kaupa sér kóðagræju?


Ef þú sérð ekkert gult vélarljós, þá er þetta bara reglubundin áminning um að fara með hann í þjónustuskoðun.

Hvort það þurfi að vera full þjónustuskoðun hjá tiltölulega óhagkvæmara bílaumboði, eða smurning hjá ódýru bílaverkstæði, fer allt eftir því hvort bíllinn sé í ábyrgð eða ekki.

Re: Mælaborðskilaboð (digital) í Dacia jeppling

Sent: Mið 12. Feb 2025 16:39
af rapport
https://youtu.be/U25RFiDJBYE´

Þó maður fari með bílana sína í smur skv. límmiðanum í framrúðunni þá þarf maður að resetta þetta sjálfur.

Re: Mælaborðskilaboð (digital) í Dacia jeppling

Sent: Mið 12. Feb 2025 19:05
af einarhr
Hvað er þetta gamall bíll?

Re: Mælaborðskilaboð (digital) í Dacia jeppling

Sent: Fös 28. Feb 2025 04:04
af netkaffi
einarhr skrifaði:Hvað er þetta gamall bíll?

Hann fær fyrstu skoðun (1 árs skoðun eftir 15,000 kilómetra) Ágúst, 2019, hann hlýtur þá að vera frá 2018.

Re: Mælaborðskilaboð (digital) í Dacia jeppling

Sent: Lau 01. Mar 2025 23:39
af einarhr
netkaffi skrifaði:
einarhr skrifaði:Hvað er þetta gamall bíll?

Hann fær fyrstu skoðun (1 árs skoðun eftir 15,000 kilómetra) Ágúst, 2019, hann hlýtur þá að vera frá 2018.


Dacia er með 3 ára ábyrgð eða að 100 þús km svo þú þarf ekki að fara með hann á viðurkennt verkstlæði. Ég á Golf 2018 sem bað um Service, ég hringdi í Heklu og þar var mér sagt að ég ræði hvort ég myndi fara í Þjónustuskoðun eða bara fara í smurningu. Fór með hann í smurningu og þeir núlluðu tölvuna. Bíllinn er keyrður 100 þúis, ég hef engar áhyggjur af þessu þjónustuskoðunum en mun skoða tímareimaskipti ef ég verð ekki búin að selja hann.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Fim 06. Mar 2025 21:19
af netkaffi
Frábært, áður en ég næ að fara með hann í tjekk og skoðun þá allt í einu vill hann ekki fara í gang í 10 stiga frosti eitt kvöldið. Hann reynir að fara í gang en drepur á sér rétt um það bil sem vélin er að verða komin í gang. Þá prófa ég að halda lyklinum inni eins og maður var vanur að gera í gamladaga, s.s. neyða hann til að reyna að fara í gang aftur og aftur, sem oft varð til þess í gamladaga að bíll fór í gang. Maður þurfi stundum að gera þetta í frosti. En núna, þá fór hann í gang og fer svo að pípa á fullu og rautt STOP merki kemur í mælaborið og mynd af geymir í rauðu, og reykur kom úr honum að framan eins og ég hafi steykt geymirinn eða eitthvað. Þola þessir nýrri bílar ekki neitt?
Mælaborðið segir líka "warning electric system."

Allavega ég drep á honum fljótlega. Og þá hættir reykurinn. Set hann í gang aftur og enginn reykur virðist koma aftur. En hann á víst að þurfa fara strax á verkstæði ef það er rautt ljóss. Ekki er stórt STOP og píp í mælaborðinu traustvekjandi. En hann er uppí sveit hjá Árnesi, i Skeiða- og gnúpverjarepp. Það er ekki að fara vera ókeypis að láta draga hann á Selfoss. Það getur nú varla verið svo hættulegt að rafkerfið hafi grillast? Ætti allavega geta keyrt hann 40 mín á verkstæði án þess að það valdi miklum skaða? Veit annrs einhver um verkstæði í Skeiða- og Gnúpverjahrepp, helst við Árnes.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Fim 06. Mar 2025 21:51
af rapport
Í þessu frosti og þessi 1.5L DCi vél = glóðakerti sem taka mikinn straum ( ímynda ég mér).

En ég er algjör amatör í svona en er með bíl með svona vél og hef lent í alskonar, en vélin virðist ódrepandi.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Fim 06. Mar 2025 22:20
af Henjo
Er maður ekki að steikja startarann með að starta endalust og "neyða hann í gang"

kannski minna "Þola þessir bíla ekki neitt" og meira hugsa bara betur um bíllinn sinn. Þetta er auðvitað dísel þannig kannski orðið lélegt glóðakerti eða eitthvað?

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Fim 06. Mar 2025 22:33
af Steini B
Getur prufað að heyra í Þórði 698-4342, hvort hann hafi tíma til að kíkja á bílinn, hann býr í Árnesi og hefur góða kunnáttu á bílum.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Fim 06. Mar 2025 23:35
af netkaffi
Henjo skrifaði:Er maður ekki að steikja startarann með að starta endalust og "neyða hann í gang"

kannski minna "Þola þessir bíla ekki neitt" og meira hugsa bara betur um bíllinn sinn. Þetta er auðvitað dísel þannig kannski orðið lélegt glóðakerti eða eitthvað?

Ja, m.v. að ég hafi sett bíla sem vildu ekki starta í gang með því að snúa lyklinum lengur, sem gerðist yfirleitt ef kalt var úti eða lítið á geyminum, og gert það í 3 áratugi án vandræða, þá finnst mér þetta eðlileg spurning. Hinsvegar er ég alltaf til í að bæta mig í að fara betur með bíla, svo ef að þú átt lexíu að kenna mér þá geriru það.

En ég opnaði húddið með afa. Viftureymin hefur grillast og slitnað. Reykurinn hefur komið út frá því, virðist vera. Ofreynsla reim við að reyna fara í gang. Hún hefur sennilega verið slitin fyrir, þurft að skifta um hana. Þetta er ekki minn bíll svo það hefur ekki verið undir eftirliti hjá mér.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Fös 07. Mar 2025 00:02
af Henjo
Var útá landi í fyrra í -19˚c og litla i10 mín með 1.0 mótor rauk í gang á fyrstu sekondu eftir heila nótt úti. Allir bílar eiga að fara í gang auðveldlega í 10 stiga frosti, ef hann gerir það ekki þá er sterkur leikur að bíða til morguns þangað til það hlýnar, og koma honum á verkstæði til að sjá hvað er að angra hann.

Er samt auðvitað enginn séfræðingur með startara en eitt quick gúgl

"A cars starter will get hot and eventually stop working if a person does not know the “10 second on - 2 minute off” rule. This means that if an engine does not start in the first 10 seconds of the starter turning, then you have to let it cool for a full 2 minutes. It takes that long for the starter to cool"

Gott að þetta var ekkert meira en bara ónýtt viftureim. Gangi þér vel og vonandi verður hann ekki meira til vandræða.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Fös 07. Mar 2025 02:08
af netkaffi
Steini B skrifaði:Getur prufað að heyra í Þórði 698-4342, hvort hann hafi tíma til að kíkja á bílinn, hann býr í Árnesi og hefur góða kunnáttu á bílum.
Þakka.

Henjo skrifaði:"A cars starter will get hot and eventually stop working if a person does not know the “10 second on - 2 minute off” rule. This means that if an engine does not start in the first 10 seconds of the starter turning, then you have to let it cool for a full 2 minutes. It takes that long for the starter to cool"
Ó, shit, vissi þetta ekki. Hinsvegar virðist vera endalaust að læra um þessa bíla. Ég var að flýta mér, og enginn nálægt mér til að skutla, annars hefði ég mögulega ekki reynt þetta. Eins og ég sagði þá hef ég sett marga í gang með því að snúa startlyklinum aftur án vandræða.

Ég er n.b. samt nýfarinn sjálfur að eiga bíla. Maður er fljótur að komast að því að það er allt annað að eiga bíla sjálfur eða vera sá sem hugsar um þá, vs. að vera einhver sem fær þá bara lánaða stundum. Flestir gera það sem eru ekki einhverjir millar, og láta aðra sjá um allt. Ég væri alveg til í það, en held að ég myndi setja upp verkstæði samt sjálfur líka af því það er gaman að eiga við þá, upp að einhverju marki. Og bara alltaf gagnlegt. Þetta er einskonar fyrstahjálp --- nema það er ekki fyrir líkamann heldur fyrir þessa blessuðu fararmáta. Það getur verið gott að kunna á vélar og tæki sama hvað maður á mikla peninga.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Fös 07. Mar 2025 10:47
af Frussi
Henjo skrifaði:...
Er samt auðvitað enginn séfræðingur með startara en eitt quick gúgl

"A cars starter will get hot and eventually stop working if a person does not know the “10 second on - 2 minute off” rule. This means that if an engine does not start in the first 10 seconds of the starter turning, then you have to let it cool for a full 2 minutes. It takes that long for the starter to cool"



Aldrei heyrt um þessa reglu en þegar ég var að læra bifvélavirkjann var talað um 30sek max í einu og bíða svo aðeins

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Fös 07. Mar 2025 15:37
af demaNtur
Það er ekkert ólíklegt að tímareim fari sömu leið og viftureimin mjög fljótlega. Mv. aldur bíls þá er komin tími á að skipta um tímareim.

Annars er eru þetta mjög fínir bílar en það þarf að viðhalda þeim rétt eins og öllum öðrum bílum.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Lau 08. Mar 2025 18:10
af netkaffi
Já, þetta eru af minni reynslu mjög fínir bílar. Hef reyndar enga viðhaldsreynslu nema þetta, en hef af að sitja í þeim og keyra. Eins og að fljóta á skýi :D

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Sun 09. Mar 2025 15:01
af Hlynzi
Hafðu í huga að dísel bílar geta farið að lenda í vandræðum þegar það er komið þokkalegt frost útaf dísel olíunni sem kekkjast upp, það hljómar eins og þú hafir látið startarann vinna full vel fyrir launum sínum, gæti sloppið og svo rafhlöðuljós og fl. komið þegar geymirinn er tæpur.
Síðan í kulda þurfa díselbílar á glóðarkertinu að halda, svo það getur verið ágætt að svissa á hann 1-2x (5-10 sek) svo það hitni áður en þú reynir að ræsa bílinn.
En myndi samt láta athuga hann á verkstæði.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Mán 10. Mar 2025 08:10
af Alfa
Ótengt þessu þá er DCI 1.5L (Renault, Dacia, Benz) algjör hörmung ef þú býrð í litlu bæjarfélagi þar sem vélin nær lítið að hitna. Þær stíflast stanslaust af því að DPF regen nær ekki að klára sig. Það er Diesel bílar í dag, alltof mikið vera að reyna losna við mengun sem endar bara í stífluðum vélum.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Mán 10. Mar 2025 12:31
af vesley
Alfa skrifaði:Ótengt þessu þá er DCI 1.5L (Renault, Dacia, Benz) algjör hörmung ef þú býrð í litlu bæjarfélagi þar sem vélin nær lítið að hitna. Þær stíflast stanslaust af því að DPF regen nær ekki að klára sig. Það er Diesel bílar í dag, alltof mikið vera að reyna losna við mengun sem endar bara í stífluðum vélum.



Góður rúntur á Reykjanesbrautinni fram og til baka í 3 gír og leyfa bílnum að vinna aðeins fyrir kaupinu sínu gerir ótrúlega mikið fyrir svona díselbíla sem eru bara á snattinu innanbæjar. Þá kemur góður hiti í öll kerfi og brennir bíllinn vel af þessu DPF drasli.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Mán 10. Mar 2025 13:31
af netkaffi
Þetta er Dacia Duster II Essential 1.6 4WD Manual, sem tekur bensín, hérna er það sem gervigreindin hans Elon Musk hafði að segja um hann:

The Dacia Duster II Essential 1.6 4WD Manual is a rugged, no-frills compact SUV designed for practicality and affordability, launched as part of the second-generation Duster lineup in 2018. It’s paired with a 5-speed manual transmission and a part-time 4WD system, making it a capable choice for light off-road adventures or challenging weather conditions. The Essential trim keeps things basic, offering essentials like air conditioning, cruise control, and rear parking sensors, but skipping luxuries like a touchscreen infotainment system in favor of a simple DAB radio with Bluetooth and a phone mount. With a 0-62 mph time of around 12.9 seconds and a top speed of 105 mph, performance is modest, prioritizing durability and low running costs over speed or refinement.


The SCe (Smart Control Efficiency) engine is a naturally aspirated four-cylinder petrol unit producing 115 horsepower, designed for simplicity and lower upfront costs compared to the turbocharged diesel alternatives like the 1.5 dCi. While diesel variants of the Duster II are popular for their torque and fuel economy—especially in 4WD configurations—the 1.6 SCe petrol engine offers a viable non-diesel choice, sacrificing some efficiency (around 43 mpg vs. 50+ mpg for the diesel) for a cheaper purchase price and reduced maintenance complexity, as it lacks the diesel-specific components like a particulate filter or high-pressure fuel system. This petrol version suits drivers who prioritize affordability and shorter trips over the long-haul efficiency diesels are known for, though it may feel less punchy off-road due to its lower torque output (156 Nm vs. 260 Nm in the diesel).

Built on the B0 platform shared with earlier Renault models, the Duster II Essential 4WD maintains a straightforward design with a high ground clearance of 210 mm, allowing it to tackle rough terrain more effectively than many competitors in its price range. Its 445-liter boot (slightly reduced to 411 liters in 4WD guise due to the drivetrain) and boxy shape ensure decent practicality, while the soft suspension and high-profile tires provide a comfortable ride over uneven surfaces. Fuel economy hovers around 43 mpg in real-world conditions, though the lack of a turbo means it can feel underpowered on highways. Priced competitively—starting around £14,000 when new in the UK—this model appeals to budget-conscious buyers seeking a versatile workhorse, though its basic interior and dated tech reflect its value-driven ethos rather than modern sophistication.

Ég: common maintainance issues, two paragraphs

Grok 3.0: The Dacia Duster II Essential 1.6 4WD with its manual transmission is generally regarded as a reliable vehicle, thanks to its simple engineering and proven Renault-sourced components, but it does face some common maintenance issues reported by owners. One frequent concern is with the 4WD system itself, particularly the transfer case and differentials, which can develop leaks or wear prematurely if not properly maintained—especially under heavy off-road use. Owners have noted occasional issues with the clutch, such as a stiff pedal or premature wear, likely due to the added strain of the 4WD drivetrain on the 1.6-liter engine’s modest power output. Additionally, the manual gearbox may exhibit vague shifting or synchromesh wear over time, particularly if driven aggressively, though these are not widespread failures but rather wear-and-tear items that benefit from regular servicing and fluid changes.
Another area of concern involves the suspension and brakes, which, while robust for the Duster’s off-road capability, can show signs of fatigue. The soft suspension setup, designed for comfort and articulation, may lead to worn bushings or shock absorbers sooner than expected, especially on models frequently driven on rough terrain. Brake wear is another common complaint, with discs and pads needing replacement more often if the vehicle is used to tow or navigate steep inclines, a scenario where the 4WD system sees heavier use. Electrical gremlins, though rare, have been reported—such as issues with the central locking system or dashboard warning lights triggering falsely—likely tied to the basic electronics in the Essential trim. Overall, these issues are manageable with routine maintenance, and the Duster’s low repair costs and parts availability keep it a practical choice, though neglecting servicing can amplify these typical weak points.

Ég: mine gives a message saying "warning electric system"
Grok 3.0: The "warning electric system" message on your Dacia Duster II Essential 1.6 4WD MT indicates that the vehicle’s onboard diagnostics have detected a fault somewhere in the electrical system. This warning is typically linked to the car’s battery, alternator, or associated wiring and sensors, as these are critical components monitored by the engine control unit (ECU). A common culprit could be a failing battery, especially if it’s original and a few years old—Dusters from around 2018-2025 might still have their factory battery, which tends to last 3-5 years depending on usage and climate. Alternatively, the alternator might not be charging properly, leading to insufficient voltage, or there could be a loose connection or corroded terminal causing intermittent faults. Given the Essential trim’s basic electronics, it’s less likely to stem from complex features, but the warning light demands prompt attention to avoid being stranded.
To troubleshoot, start by checking the battery terminals for corrosion or looseness and ensure they’re secure—low voltage (below 12.4V when off or 13.8-14.4V when running) could trigger the alert. If you have a multimeter, test the battery and alternator output; a healthy alternator should deliver around 14V while the engine’s running. Owners on forums like Dacia Owners Club and X posts have reported similar warnings tied to faulty alternators or even a blown fuse in the engine bay fuse box, which protects circuits like the charging system. Since your 4WD model has additional electrical load from the drivetrain, a stressed system might amplify such issues. If a visual check doesn’t reveal anything obvious, it’s best to have a mechanic or dealership scan the ECU for specific fault codes (e.g., P0562 for low voltage), as the vague “electric system” message could point to anything from a sensor glitch to a short circuit. Don’t ignore it—driving with an unresolved electrical fault risks further damage or a breakdown.


Hann er búinn að standa hreyfingalaus úti í sveit í næstum allan vetur, fyrir utan nokkrar ferðir út í búð mjög stutt á þessu nýja ári, og svo eina upp Gnúpverjahrepp. Ég er n.b. að geyma þennan bíl fyrir vin, þessvegna var hann hreyfingalaus úti. Ég var því miður ekki með innigeymslu fyrir hann. En ég stakk upp á að ég myndi keyra hann eitthvað bara nýlega til að halda geyminum í lagi, þar sem ég hafði lesið á google að það væri best fyrir heilsu bíla eða geymirsins allavega að þeir væru keyrðir eitthvað á allavega 2 vikna fresti. Við hefðum kannski átt að ákveða það fyrirkomulag fyrr, ef það er ekki gott fyrir bíla að standa hreyfingalausir úti mánuðum saman. Allavega dettur mér það í hug sem ástæða fyrir að vírar gætu verið orðnir tærðir (corroded).

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Mán 10. Mar 2025 15:06
af demaNtur
Ef það eru vandamál með bílinn enn í gangi, eins og þú segir "Warning electric system" - Í guðanna bænum farðu með bílinn á verkstæði.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Mán 10. Mar 2025 15:17
af Moldvarpan
Ef að bensín bíll er að reykja svona... er þá ekki yfirleitt headdið farið eða eh álíka?

Edit;
Ja, m.v. að ég hafi sett bíla sem vildu ekki starta í gang með því að snúa lyklinum lengur, sem gerðist yfirleitt ef kalt var úti eða lítið á geyminum, og gert það í 3 áratugi án vandræða, þá finnst mér þetta eðlileg spurning. Hinsvegar er ég alltaf til í að bæta mig í að fara betur með bíla, svo ef að þú átt lexíu að kenna mér þá geriru það.

En ég opnaði húddið með afa. Viftureymin hefur grillast og slitnað. Reykurinn hefur komið út frá því, virðist vera. Ofreynsla reim við að reyna fara í gang. Hún hefur sennilega verið slitin fyrir, þurft að skifta um hana. Þetta er ekki minn bíll svo það hefur ekki verið undir eftirliti hjá mér.


Ég var ekki búinn að lesa allan þráðinn... en vá, farðu með bílinn á verkstæði.

Re: Reykur úr Dacia jeppling, vildi ekki fara í gang í 10 stiga frosti; endar með reyk og rauðum merkjum í mælaborði

Sent: Mán 10. Mar 2025 15:19
af Alfa
Þú segir sjálfur að reiminn hafi farið, það útskýrir hugsanlega reyk (ef þú meinar húddi), stop merkið segir þér að bílinn er hugsanlega ekki að hlaða ef þetta er alternator reimin. Þetta er allt eðlilegt miðað við að reimin hafi farið.

Svo gæti hún hafa farið af því eitthvað af því sem hún á að snúa sé fast.