Moldvarpan skrifaði:Nú langar mig soldið að spurja þá sem eru að tala um að Tesla sé _LANGBESTI_ bíll sem þeir hafa átt, eins og var sagt fyrr í þræðinum.
Hvað er það við Tesluna sem gerir hana að _LANGBESTA_ bíl sem þið hafið átt? Hvað hefur hún fram á að bjóða sem aðrir bílar gera ekki?
Ég á Tesla Model 3 og Volvo XC90. Hef átt TM3 í 2 ár og XC90 í 4 ár.
Af þeim bílum sem ég hef átt, þá er ég hrifnastur af Teslunni og myndi eiga erfitt með að skipta í annan bíl eins og staðan er í dag (jafnvel þó nýir rafmagnsbílar séu margir með sambærilega kosti og Model 3). Fyrir því eru nokkrar ástæður:
1. Aksturseiginleikar.
Nú eru þessir bílar þekktir fyrir að vera nokkuð hastir, og ég er ekki að tala um þá eiginleika sem eru ekki kostur. Bíllinn er að vissu leyti eins og GoCart bíll (sérstaklega á 19" dekkjunum sem ég er með hann á). Hann mætti alveg vera slatta mýkri.
En það sem ég er að tala um er að mér finnst eins og bíllinn sé "extension" af sjálfum mér þegar ég er í umferðinni. Hann gerir alltaf það sem ég vil, akkúrat þegar ég vil. Mér líður mjög öruggur með að ég þarf aldrei að bíða eftir neinu, finnst eins og inngjöfin sé orðin hluti af mér.
Ég átti eGolf áður, og það er að eitthverju leyti svipað, en þetta nær bara mun lengra. Aflrásin (power delivery) er bara svo ótrúlega controlled og náttúruleg að ég er aldrei óöruggur, þrátt fyrir allskyns erfiðar vetraraðstæður. Skrikvörnin er ótrúleg og bíllinn virkar "í stjórn" við ótrúlega erfiðar aðstæður. "Snow mode" gerir bílinn eins stýranlegan og beinskiptan ef maður er fastur í skafli. Þetta er bara mjög mörgum þrepum fyrir ofan aðra bíla sem ég hef átt og prófað.
2. Fjarhitun / fjarstýringÞetta er á flestum rafbílum og jafnvel hybrid bílum í dag. Myndi ekki kaupa mér bíl án þessa möguleika. Þurfa aldrei að skafa (a.m.k. ekki frost, nærð kannski ekki að bræða 15cm af snjó á tilsettum tíma), bíllinn alltaf notalegur með hlýtt stýri og sæti.
Fjarstýringin líka kostur -- getur gefið fólki aðgang að bílnum án þess að vera nálægt honum. Jafnvel lánað þeim, þó ég hafi bara 1x gert það.
3. Símalaust aðgengiÉg þarf aldrei að spá í hvort ég sé með lykil (kort) eða ekki. Þetta bara virkar. Síminn tengist með bluetooth við bílinn, leyfir mér að opna þegar ég kem að honum og svo keyri ég af stað. Þarf aldrei að kveikja/slökkva á bílnum. Er alltaf með kortið á mér, því manni er sagt að gera það, ef eitthvað skyldi klikka í Bluetooth, en ég hef ekki enn þurft að nota það eftir 2 ár.
4. HugbúnaðaruppfærslurBílarnir verða (oftast) betri með tímanum. Það eru nokkuð mörg atriði þ.s. bíllinn er orðinn betri en hann var frá því að ég keypti hann. Vanalega er það þannig að það eru aldrei stórar breytingar á bílum eftir að fólk kaupir þá. Þetta getur verið kostur eða galli. Hingað til man ég einungis eftir einum hlut sem varð verri, og allt hitt hefur skánað. Ég man ekki einu sinni lengur hvað það var sem varð verra (ætli það tengist ekki ultrasonic skynjurunum?), en síðasta sem varð betra var að það kom "blue light filter" í skjáinn á kvöldin. Einnig eru hlutir eins og "hljóð" sem kemur ef ljósið er grænt og þú ert ekki að fylgjast með, geta kíkt á myndavélar úr síma, "nordic headlights" (alltaf kveikt á afturljósum), breyting á stillingum í gegnum skrunhjól í stýri, blind spot camera, snjöll stefnuljós o.s.frv.
Auðvitað eru margir gallar á þessum bílum eins og öðrum, og margir hlutir sem hægt er að pirra sig á. T.d. hvernig maður stýrir þurrkuhraða. Auto er mjög fínt, nema þegar það er þurrt úti og götur blautar (classic Reykjavík) þ.s. bílar fyrir framan bleyta neðri hluta rúðunnar en myndavélin ofan á er þurr. Þá er glatað að þurfa að nota raddstýringu eða ýta á icon á skjánum til að breyta þurrkuhraða.
Ég hef 2x þurft að láta skipta út skottpumpu (innan ábyrgðar) vegna þess að í snjó/bleytu/kulda skynjaði hún ranglega einhverja mótstöðu og opnaði ekki. Líklegast einhver hönnunargalli eða léleg framleiðsla þar á ferð. Í seinna skiptið mætti Tesla bara á svæðið meðan ég var í vinnunni og unnu í bílnum á bílastæðinu fyrir utan vinnuna svo ég varð ekkert var við þá, sem var mjög flott.
Stundum kvabbar bíllinn á þig um að þú sért að nálgast bílinn fyrir framan þig óþarflega hratt. Þetta virðist oftast gerast ef augun eru ekki akkúrat á veginum (t.d. á skjánum), og hefur reyndar alveg virkað sem skildi til að brýna á athygli. Hef þó fengið nokkur skipti þ.s. engin ástæða var til.
Ég prufukeyrði Polestar 2 eftir að ég eignaðist þennan bíl, og varð fyrir miklum vonbrigðum með hann. Sérstaklega m.v. verð. Allir hafa mært þann bíl svo mikið, en mér fannst hann þröngur og með lélegt útsýni. Hann var "meira nice" að innan, með betri útfærslu á stefnuljósum, með mýkri fjöðrun, og aðeins betur hljóðeinangraður. Allt annað var verra. Hann var á pappír aflmeiri, en virkaði seinni til og latur. Útsýnið úr bílnum umtalsvert verra. Allt of lítið pláss í honum. Notandaviðmótið ekki frábært.
Þ.a. já, út frá akstursöryggi, þ.s. ég ER bíllinn þegar ég keyri í hvaða aðstæðum sem er, þá er þetta langsamlega besti bíll sem ég hef átt. Hitt fylgir fast á eftir. Það er að mestu leyti þess vegna sem ég hef áhuga á því að fá mér aðra Teslu næst, þrátt fyrir að Elon Musk sé í forsvari fyrir þetta fyrirtæki. Það væri frábært að mínu mati ef hann myndi bara hverfa á braut, en trúlega er eitthvað af þessum kostum sem ég lýsi beintengdir hans viðveru.