Síða 1 af 2

Verð á bílum

Sent: Fös 26. Mar 2021 22:56
af appel
Ég veit um marga sem eru til í og hafa keypt nýja bíla á alveg 7-8 milljónir, vinnufélagar og aðrir.

Maður verður gáttaður á þessum tölum og að menn séu tilbúnir að eyða þetta miklu í bílskrjóð. Ég á bara mína '99 toyotu og aldrei sáttari. Skil ekki hví það þarf að eyða svona miklu í að komast milli A og B.

Hvað finnst ykkur? Eruði til í að eyða svona miklu?

Re: Verð á bílum

Sent: Fös 26. Mar 2021 23:02
af JVJV
Já því miður. Ég er einmitt að bíða eftir mínum fjórða nýja bíl. Veit ekki afhverju ég geri þetta, vitandi nákvæmlega hversu miklu fjármunum ég er að henda. Eini kosturinn er að vita að ég þarf ekki að henda peningum í viðgerðir í örfá ár og jú, ég mun eiga glænýjan bíl sem enginn annar er búinn að menga með nærveru sinni :face

Re: Verð á bílum

Sent: Fös 26. Mar 2021 23:03
af osek27
langtima sparnaður, þeir sem eru á betri launum finna ekki mikið fyrir þessu og þetta borgar sig fljótt upp hjá sumum. Svo er ekki svo glötuð hugmynd að spara sér í auka ár og fá sér bara nýja teslu eða hvað sem er og vera bara sáttur. Svo er það líka smekkur. Sumir fíla betur gamla bíla og finnst gaman að fikta í bílum. Sumir vilja græjur sem nýjir bílar koma með.

Re: Verð á bílum

Sent: Fös 26. Mar 2021 23:05
af einarhr
appel skrifaði:Ég veit um marga sem eru til í og hafa keypt nýja bíla á alveg 7-8 milljónir, vinnufélagar og aðrir.

Maður verður gáttaður á þessum tölum og að menn séu tilbúnir að eyða þetta miklu í bílskrjóð. Ég á bara mína '99 toyotu og aldrei sáttari. Skil ekki hví það þarf að eyða svona miklu í að komast milli A og B.

Hvað finnst ykkur? Eruði til í að eyða svona miklu?


Hef "átt" 3 nýja bíla úr "kassanum" en þá var ég starfsmaður hjá Heklu og mér bauðst bíll á góðum kjörum í kaupleigu en myndi aldrei setja svona mikinn pening í bíl þar sem þeir eru eins og tölvubúnaður og falla frekar hratt í verði. Er núna á 2010 árgerð af Chervolett Aveo sem er keyrður 85þ og ég fékk hann á 250 þús og hann dugir okkur, hef keypt jeppling og jeppa og það er bara vitleysa nema þú eigir bensínstöð varðandi jepplinginn og bílaaðstöðu ef þú átt jeppa.

Þetta er bara tæki fyrir mig að fara frá A til B eins og þú segir en auðvita þarf maður að hugsa vel um þessar druslur og þær eru nokkuð ódýrar í viðhaldi.

Re: Verð á bílum

Sent: Fös 26. Mar 2021 23:16
af appel
Ég lít á þetta sem pjúra óþarfa kostnað að spreða svona í bíl. Mér er nokkuð sama hvernig bíl ég er á svo lengi sem hann kemur mér milli A og B og er ekki með vesen. Það eru 3 ár í að bíllinn minn nær forn-bíla aldri og það eru alveg líkur á að hann geri það. Keypti hann 18 ára nýjan og hann er búinn að vera gjöfull í endingu og kostnaði. Hef getað notað peninga í að kaupa mér fínni íbúð og svona. Á meðan eru aðrir í kringum mig búnir að skipta um bíl kannski 5-6x á sama tímabili með tilheyrandi höggi á pyngjuna.

En svo er maður doldið að upplifa fordóma að ég eigi ekkert að vera keyra um á svona druslu, ég eigi bara að kaupa mér Teslu, etc etc... jafnvel frá móður minni sem er nú ansi passasöm með budduna :)

Re: Verð á bílum

Sent: Fös 26. Mar 2021 23:20
af ChopTheDoggie
Fyrsti bíllinn minn var á sirka 110þús, næsti á 360þús..Eiginlega sami bíll bara með betri vél og er voðalega sáttur með hann.
Ég myndi persónulega aldrei eyða 7mil - 8mil fyrir bíl, sem lengi og hann er "snöggur", ódýr og kemur mér frá A til B þá er ég nógu sáttur.

Þetta eru basically bara eins og farsímar að mínu mati, sem lengi og hann getur hringt, SMS-að og spilað tónlist þá er ég nógu sáttur.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 00:11
af worghal
ég fór úr 99 lancer í 2015 golf og bensín sparnaðurinn miðað við akstur var meiri en ég er að borga í lánið :lol:

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 00:21
af Manager1
Bíll er ein versta fjárfesting sem þú getur gert, ég myndi alltaf reyna að kaupa lítið notaðan bíl frekar en glænýjan. Ég skil samt upp að vissu marki þá sem kaupa nýjan bíl, það er ákveðin tilfinning sem fylgir því að eiga glænýjan bíl og ákveðin þægindi að þurfa ekki að hafa eins miklar áhyggjur af bilunum og fleiru.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 00:27
af DaRKSTaR
fer bara mikið eftir hvað fólk vill og hvað það hefur á milli handana,, ég t.d borgaði 7.7m fyrir minn bíl.

hljómar sem mikið en þetta eru bara peningar.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 00:59
af Henjo
Fyrir mér er þetta peningasóun, en fer eftir fólki. Ef einhver er á góðum launum og hefur vel efni á að versla sér nýjan bíll þá flott, go for it.

En mér finnst fátt sorglegra en að sjá fólk sem er kannski ekki alveg það skarpasta þegar það kemur að þessu og er að kaupa sér ekki endilega nýlegan bíll heldur bara ópraktíska bíla. 17 ára guttar að kaupa sér 10-15 ára gamla BMW bíla sem bila eftir þrjá mánuði og þeir hafa varla efni að kaupa bensín á bíllinn, hvað þá að láta laga hann.

bah!

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 02:22
af daremo
Fólk er bara að kaupa sér hamingju þegar það kaupir dýran bíl.
Þetta er það sem lífið snýst um. Leitin að hamingju.

Dýrir og flottir bílar færa sumu fólki hamingju, en annað fólk fær hamingjuna sína annars staðar.
Launaseðíllinn skiptir engu máli held ég.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 04:05
af Hjaltiatla
Nope, myndi ekki kaupa mér nýjan bíl. Afföllin við það eitt að keyra bílinn út af bílasölu eru það mikil.
Myndi annað hvort kaupa mér nokkra ára gamlan bíl eða hræódýran A til B bíl.
Er kominn með nett ógeð að taka strætó þessa dagana en veskið kvartar minna. Ef það kemur af því að ég versli mér bíl á næstunni verður það eflaust ódýr Yaris.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 09:44
af Predator
Manager1 skrifaði:Bíll er ein versta fjárfesting sem þú getur gert, ég myndi alltaf reyna að kaupa lítið notaðan bíl frekar en glænýjan. Ég skil samt upp að vissu marki þá sem kaupa nýjan bíl, það er ákveðin tilfinning sem fylgir því að eiga glænýjan bíl og ákveðin þægindi að þurfa ekki að hafa eins miklar áhyggjur af bilunum og fleiru.

Þarna er einmitt algengur misskilningur á ferð. Bílar eru neysluvara en ekki fjárfesting.

En það þarf einhver að kaupa nýja bíla svo við hin getum keypt notaða. En það að kaupa bíla getur verið hobby hjá mörgum eða stöðutakn.

Svo er ákveðið öryggi í því að vera á nýjum bíl. Myndi ekki vilja lenda í slysi á 99 Lancer sem er örugglega að hrynja í sundur vegna ryðs... Já og margir sem eyða miklum tíma í bílnum sínum svo að vilja líða vel á meðan farið er frá a til b er mjög skiljanlegt.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 12:03
af GullMoli
Er að sumu leiti sammála; myndi ekki kaupa nýjan bíl á næstu árum, frekar 2-3 ára sem hefur tekið á sig mestu afföllin. Annars finnst mér verð á bílum hafa snarhækkað síðustu ár. Ég veit reyndar að mengunartaxtar spila þar mikið inn í.

Við keyptum 2 ára bíl í fyrra því von var á fyrsta barninu. Eigum þá 2005 sparibauk sem fékk 5 stjörnur í EuroNCAP á sýnum tíma og núna einnig 2018 jeppling sem fékk 5 stjörnur í EuroNCAP það árið, það er aukið öryggi í því að sitja hærra uppi sem er meðal annars ástæða fyrir jeppling.

Ef svo ólíklega vill til að við lendum í óhappi, þá vil ég ekki þurfa að líta aftur og hugsa til þess að útkoman hefði mögulega verið önnur í nýrri bíl.

Annars hef ég mjög gaman að því að keyra og það sem bætir upplifunina eru bílar með skemmtilega akstureiginleika, nýlegheit, ýmsan lúxus og svo ég tali nú ekki um góðar hljómflutningsgræjur. Svipað og við viljum góða upplifun í tölvunni eða í einhverju öðru áhugamáli.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 13:49
af GuðjónR
Predator skrifaði:Þarna er einmitt algengur misskilningur á ferð. Bílar eru neysluvara en ekki fjárfesting.

Þar greinir mönnum á :happy

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 14:04
af mikkimás
Keypti nýjan bíl 2016.

Góður bíll þá, góður bíll nú, og óendanlega betri sem sá sem ég átti.

En kikkið við að eiga nýjan bíll var fljótt að fjara út og samviskubitið að taka við.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 14:08
af rapport
Þrír bílar á heimilinu, meðalaldur 11 ár, 2002, 2011 og 2017.

Eknir samtals innan við 200þ. km. þó Poloinn minn frá 2011 sé einn 120þ. km.

Heildarvermæti c.a 3,2 milljónir.

Vil fyrir alla muni forðast að taka lán og veðja frekar á eintök sem eru lítið ekin og vel við haldið.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 17:34
af sigurdur
Ég keypti tæplega 2 ára Skoda Octaviu á gengistryggðu láni árið 2004. Kláraði að borga bílinn 10 árum síðar. Hann fór í pressu í vetur. Staðgreiddi 10 ára gamlan metanbreyttan Hyundai i10 á 350.000 í staðinn. Aldrei aftur bílalán!

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 17:38
af B0b4F3tt
Ég er einmitt að panta mér nýjan bíl núna sem kostar 10 milljónir. Er núna að fara í jeppling (Volvo XC60) eftir að hafa keypt nýjan Kia Optima SW 2017. Mig langaði í jeppling núna til þess að geta komist eitthvað aðeins lengra heldur en Kian. Geri mér grein fyrir því að það eru til mun ódýrari nýjir jepplingar en þetta. En mér finnst Volvoinn bara flottur :) Þetta verður fjórði bíllinn sem ég kaupi nýjan. Hef alltaf verið meðvitaður um það að maður er ekki að fara að græða á þessum bílakaupum. En mér finnst eiginlega alltaf betra að kaupa nýjan bíl heldur en notaðann. Þá fæ ég bílinn alltaf eins og ég vill hafa hann.
Erum reyndar líka með 2007 módel af BMW 320D sem frúin notar í vinnuna. Erum bara búin að eiga hann í rúmt hálft ár en hann hefur samt kostað helling í viðgerðir þrátt fyrir að vera keyrður lítið miðað við aldur (130þ km).

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 17:46
af Viktor
Fer þetta ekki bara eftir tekjum hvers og eins?

Ef fólk vill nýjan bíl er kannski ekki mikill munur á að eyða 5 eða 7 milljónum ef þú færð stærri bíl sem hentar betur.

Ég man fyrir nokkrum árum þegar gengi krónunnar hækkaði, var verið að setja meira á notaða BMW X5 F15 á Bilasolur.is en þeir kostuðu nýjir frá umboðinu.

Fyrir suma munar engu hvort þeir kaupi nýjan eða notaðann, þó það muni nokkrum milljónum.

Ég kaupi blöndunartæki á 12K en sumir kaupa blöndunartæki á 100K.

Ég kaupi list fyrir 10K á ári en aðrir kaupa málverk á 1-2 milljónir.

That’s life :)

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 17:55
af danniornsmarason
Ég keypti mér splunku nýjann bíl úr kassanum í fyrra, ég ætlaði aldrei að kaupa nýjan bíl, hef átt umþb 10 bíla og aldrei borgað yfir 150k og flestir bílarnir voru undir 100k og þeir duguðu allir vel.
En síðan sá ég bíl á 3 mil nýr og gat sett verðlausan bíl upp í og fengið 500k afslátt þar sem ég gat keyrt drusluna til þeirra

Þetta var auðveld ákvörðun þar sem gamli bíllinn eyddi 13l/100km en sá nýji 5.3l/100km og ég eyddi umþb 70k í bensín á mánuði

Þannig ég er í raun að spara mér með því að kaupa nýjan bíl á bæði viðgerðar og bensínkostnaði, síðan er bara auka lúxus á að vera á nýjum bíl

held að ef fólk eigi efni á dýrum bíl mun fólk örugglega kaupa dýran bíl.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 18:04
af halipuz1
Sé ekkert að því að kaupa nýjann bíl, ert laus við viðhald og óþarfa kostnað næstu 3+ árin. Ef það er hægt að stgr nýjann bíl, afhverju ekki? Ert þá væntanlega með launin sem svara þá lúxus lífinu.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 20:11
af Mossi__
Fyrsti bíllinn minn var ódýr drusla (Lada Samara sem ég sakna enn).

Síðan þá hef ég alltaf bara keypt nýja bíla, og hef alltaf átt þá í circa áratug og svo þegar ég öðlaðist smá peningavit, borgað lánið niður.

Svo í nokkur og þónokkur ár á ég viðhaldslítinn bíl í góðu standi, allt þar til kominn er tími á eitthvað major viðhald og þá skipti ég :)

Og af því ég fæddist og ólst upp í Lödum svo mér dugar beisikk A til B bílar.

Við feðgar erum á no frills Aygo núna. Eg get in theory klárað að borga hann niður innan við ári frá kaupum og átt hann þá áhyggjulaust í.. hvað.. 7 ár og svo þá næstu ár þar á eftir í bílahugleiðingum fyrir næstu 10 árin.

Svo þú veist. Peningalega séð er hægt að diskútera hvort þetta borgi sig.

En það hjálpar þessu fyrirkomulagi mínu auðvitað staðreyndin að eg er frekar boring manneskja :D

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 20:37
af Lexxinn
Ætli það sé ekki hægt að heimfæra þetta yfir á tölvubúnaðinn sem notendur hér spreða í?

Margir mundu nú ekki verða neitt voðalega sammála því að eyða 200k+ í tölvuna sína á hverju ári - sérstaklega miðað við suma sem kaupa alltaf nýjasta skjákortið og örrann og fara þá með tap upp á 300k á ári kannski.

Re: Verð á bílum

Sent: Lau 27. Mar 2021 21:21
af gunni91
Þetta er auðvitað alltaf smekksatriði, held að flestir hér fyrir ofan séu búnir að tækla flest "point of view"

Sem starfsmaður bílaumboðs þá hvet ég að sjálfsögðu alla til að kaupa nýja bíla :sleezyjoe