Síða 1 af 1

Gúmmímottur í bíla?

Sent: Mán 10. Ágú 2020 13:04
af Alfa
Sælir

Hvar í fjáranum finn ég gúmmímottur í bíla? Umboðið vill bara panta að utan og ég veit það mun kosta helling, ég finn mjög takmarkað á Ali og Ebay fyrir þessa týpu Mözdu CX-5. Og t.d vefverslun N1, bílanaust osfv eru mjög lélegar með þetta. Er einhver sem "sérhæfir" sig í þessu hér á landi? Finnst það nokkuð magnað ef svo er ekki miðað við veðurfarið.

Re: Gúmmímottur í bíla?

Sent: Mán 10. Ágú 2020 13:18
af Jón Ragnar
Costco hafa verið með mottur sem passa í flesta bíla

Re: Gúmmímottur í bíla?

Sent: Mán 10. Ágú 2020 14:07
af Pandemic
Ég keypti mínar að utan frá Weathertech og er mjög sáttur.

https://www.weathertech.com/mazda/2017/ ... igitalfit/

Re: Gúmmímottur í bíla?

Sent: Þri 11. Ágú 2020 11:09
af pattzi
Ég hef keypt á ebay í skoda octaviur allavega 2006 2005 og 2012 arg..

En til universal í bílabúðunum t.d stillingu

Re: Gúmmímottur í bíla?

Sent: Þri 11. Ágú 2020 11:44
af Alfa
Pandemic skrifaði:Ég keypti mínar að utan frá Weathertech og er mjög sáttur.

https://www.weathertech.com/mazda/2017/ ... igitalfit/


Ég var einmitt búin að skoða þetta mjög flottar, en 46 þús finnst mér frekar dýrt, þó það það sé með flutningi. Nb þarf allavega að https://www.weathertecheurope.com/ núna, hitt shippar lénið shippar bara í bjánaríkjum.

Re: Gúmmímottur í bíla?

Sent: Þri 11. Ágú 2020 12:00
af techseven
Jón Ragnar skrifaði:Costco hafa verið með mottur sem passa í flesta bíla


Ég keypti Michelin mottur í Costco og það kom mér á óvar hversu mikið drasl þær eru, kom fljótlega gat (ca 2 vetur).

Re: Gúmmímottur í bíla?

Sent: Þri 11. Ágú 2020 14:29
af Pandemic
Alfa skrifaði:
Pandemic skrifaði:Ég keypti mínar að utan frá Weathertech og er mjög sáttur.

https://www.weathertech.com/mazda/2017/ ... igitalfit/


Ég var einmitt búin að skoða þetta mjög flottar, en 46 þús finnst mér frekar dýrt, þó það það sé með flutningi. Nb þarf allavega að https://www.weathertecheurope.com/ núna, hitt shippar lénið shippar bara í bjánaríkjum.


Að mínu mati vel þess virði þar sem allar þessar 3rd partý mottur eru algjört drasl og þetta sparar manni þvílíkan tíma í þrifum. Sleppur líka við fúkkalyktina á veturna þegar slabbið fer inn í bíl.
Þeir shippa til Íslands þú þarft bara að hafa samband við þá.

Re: Gúmmímottur í bíla?

Sent: Þri 11. Ágú 2020 14:41
af GullMoli
Í mínu tilfelli er ódýrara að versla gúmmímottu í skottið í umboðinu (BL) en á weathertecheurope. 22k vs 26k og virðast vera mjög sambærilegar.