Síða 1 af 1

Ískur í bremsum

Sent: Fim 21. Maí 2020 11:09
af Tonikallinn
Er með 2005 Grand Cherokee sem ískrar helvíti í bremsum, og hljóðið fer þegar ég stíg létt á bremsunar. Ískrið er líka meira á meiri hraða. Mér var sagt að ískrið var útaf lélegum klossum sem var á bílnum, en hljóðið er ennþá eftir nýja klossa. Veit einhver hvað þetta gæti verið?

Re: Ískur í bremsum

Sent: Fim 21. Maí 2020 11:21
af nonesenze
ískur kemur yfirleitt útaf örfínum titring í klossunum, það eru járn fóðringar á sitthvorum endanum og oft á bakhliðinni líka til að hindra þetta, einn fastur pinni getur valdið þessu líka. sumar tegundir klossa virðast samt alltaf ískra og sóta meira en aðrir

bremsu viðgerðir eru oftast meira en bara skipta um klossa og málið dautt, mikið meira

Re: Ískur í bremsum

Sent: Fim 21. Maí 2020 11:59
af Tonikallinn
nonesenze skrifaði:ískur kemur yfirleitt útaf örfínum titring í klossunum, það eru járn fóðringar á sitthvorum endanum og oft á bakhliðinni líka til að hindra þetta, einn fastur pinni getur valdið þessu líka. sumar tegundir klossa virðast samt alltaf ískra og sóta meira en aðrir

bremsu viðgerðir eru oftast meira en bara skipta um klossa og málið dautt, mikið meira

Maðurinn á verskstæðinu skoðaði bremsunar, og sagði að þetta væru klossarnir. Hefði hann ekki séð ef þetta væru fóðringarnar? Verð víst bara að spyrja hann úti þetta...

Re: Ískur í bremsum

Sent: Fim 21. Maí 2020 12:13
af audiophile
Vanur maður á verkstæði ætti að vera með á hreinu að passa fjaðrirnar, færslupinnana og að allt sé smurt rétt með réttum efnum. Ef að þetta var gert á verkstæði ættir þú að kíkja aftur til þeirra og láta kíkja betur á þetta. Það er ábyrgð á svona vinnu.

Re: Ískur í bremsum

Sent: Fim 21. Maí 2020 12:23
af nonesenze
audiophile skrifaði:Vanur maður á verkstæði ætti að vera með á hreinu að passa fjaðrirnar, færslupinnana og að allt sé smurt rétt með réttum efnum. Ef að þetta var gert á verkstæði ættir þú að kíkja aftur til þeirra og láta kíkja betur á þetta. Það er ábyrgð á svona vinnu.


mikið rétt, en stundum eru sumir bílar bara erfiðari með þetta þótt allt sé gert rétt, alltof mörg verkstæði fúska þetta samt og gera þetta ekki almennilega og þar liggur oftast munurinn á að borga 5.000 eða 25.000 (bara svona sem dæmi um einhver verð til að sýna mun)