Síða 1 af 1

Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Fös 08. Maí 2020 03:24
af steinihjukki
Sælir netverjar. Veit einhver hvernig bílaleigurnar þjónusta bílana sína. Keypti bíl um daginn af bílasölu í Reykjanesbæ sem var áður í eigu Blue carrental. Í smurbók er samviskusamlega fyllt inn smurþjónusta en ekkert annað. Hvergi skrifað hvað var gert og hvernig þjónustu bíllinn fékk. Veit td ekki hvort bíllinn fékk olíu á gírkassa sem skv umboði á að fara fram í 90000 km, ? með bremsuvökva, kælivökva, hugbúnaðaruppfærslur omf. Bíllinn sem um ræðir keyrður 104000 km. Heyrði að sumar leigur væru með samning við umboðin en mættu ekki skrá í bók það sem gert er. Eitthvað til í þessu ?

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Fös 08. Maí 2020 08:16
af Viktor
Ertu búinn að hafa samband við bílaleiguna?

Hvernig á fólk út í bæ að vita hvað þeir gera?

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Fös 08. Maí 2020 08:19
af nonesenze
fékk mér bíl frá blue einmitt líka og spurði um þetta allt saman, allt er gert og viðurkent og heldur ábyrð, bílasalinn og bílageirinn staðfestu það

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Fös 08. Maí 2020 20:11
af mikkimás
steinihjukki skrifaði:Sælir netverjar. Veit einhver hvernig bílaleigurnar þjónusta bílana sína. Keypti bíl um daginn af bílasölu í Reykjanesbæ sem var áður í eigu Blue carrental. Í smurbók er samviskusamlega fyllt inn smurþjónusta en ekkert annað. Hvergi skrifað hvað var gert og hvernig þjónustu bíllinn fékk. Veit td ekki hvort bíllinn fékk olíu á gírkassa sem skv umboði á að fara fram í 90000 km, ? með bremsuvökva, kælivökva, hugbúnaðaruppfærslur omf. Bíllinn sem um ræðir keyrður 104000 km. Heyrði að sumar leigur væru með samning við umboðin en mættu ekki skrá í bók það sem gert er. Eitthvað til í þessu ?

Þú getur grafið upp með hjálp bílasalans hvar bíllinn hefur verið þjónustaður og haft samband við verkstæðin beint. Verkstæði sem heldur ekki skráningu yfir verk framkvæmd ætti ekki að vera í rekstri.

Sumar tegundir, Mazda t.d., koma ekki með smurbók því allt er skráð rafrænt í miðlægt kerfi Mözdu í útlöndum.

Veit ekki hvort fleiri framleiðendur séu eins.

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Fös 08. Maí 2020 21:01
af steinihjukki
Takk fyrir svörin. Hef ekki hringt beint í Blue en sent þeim fyrirspurnir á netfangið sem þeir gefa upp en ekki fengið nein svör. Allar smurningar eru stimplaðar af Blue Carrental en hvergi vísbending um hvaða verkstæði um ræðir. Voða spúkí finnst mér. En væri gott að fá upplýsingar um td gírolíu, bemsuvökva oþh áður en ég fer út í að panta rándýra þjónustuskoðun :) Ef "nonesenze" hefur upplýsingar um hvernig best er að hafa samband við Blue væri snilld að fá þær :)

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Fös 08. Maí 2020 21:07
af steinihjukki
Skv bílasalanum er Blue með sitt eigið verkstæði, veit einhver hvar eða hvernig ég finn það ef þetta er rétt ?

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Lau 09. Maí 2020 00:36
af demaNtur
Get staðfest það að Blue þjónusta bílana sína vel, ég tengist þeim ekkert en hef áreiðanlegar heimildir :)

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Lau 09. Maí 2020 01:30
af steinihjukki
Takk fyrir demaNtur, líður betur að heyra þetta. O:)

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Lau 09. Maí 2020 07:33
af krissdadi
Get staðfest að Blue er með sitt eigið verkstæði, ég veit að þeir leggja mikið uppúr að halda bílunum sínum vel við
Ég þekki aðeins til, ég myndi allan daginn kaupa bíl af Blue

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Lau 30. Maí 2020 09:10
af steinihjukki
Svona til að ljúka þessum þræði þá er staðan svona: Umrædd bílaleiga hefur skv smurbók framkvæmt olíuskipti á 15 þús km fresti. Þeir geta hins vegar ekki séð (vegna takmarkana í tölvukerfinu) hvort bíllinn fékk smur á drif og gírkassa sem á að gerast á 45 þús km fresti. Ekkert um hvort skipt var um kælivökva, bremsuvökva eða viftureim. Bíllinn er slæmur af yfirborðsryði á undirgrind og byrjað að falla á stýrisstöng og lið og líka á plötu við pedala. Hugsanlega hefur þessi bíll lent í einhverju ss að vera keyrt í á eða lent í miklum raka? En frábær í keyrslu og þægilegur. Rúsínan í pylsuendanum er svo sú að Toyota Reykjanesi fékk bílinn einhverntíma í vetur/vor og þar hefur líklega ekkert verið tékkað á bílnum, var enn í verksmiðjuábyrgð meðan þeir áttu hann.
Takk fyrir svörin sem sendu.

Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.

Sent: Lau 04. Júl 2020 10:59
af Hlynzi
Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þessu er háttað hjá bílaleigunum, en svona mín persónulega regla ef fólk segir að eitthvað hafi verið gert (eða fyrirtæki) tek ég því þannig að það hafi EKKI verið gert, nema með fylgi reikningur eða annarskonar staðfesting á vinnunni (svosem augljóslega nýlegur íhlutur)

Það kæmi ekki á óvart að bíllinn hafi ekið í gegnum grjótbarinn veg, eða eitthvað lent í botninum, þar sem túristar fara oft töluvert lengra en lágir bílar ráða við, spurning hvort það sleppi ekki að gera við þetta (veit ekki með ábyrgð, mjög erfitt að sanna svona lagað), en myndi annars fara með bílinn á áreiðanlegt verkstæði (sem helst þekkir tegund/týpuna) og sjá hvað þeir segja um þetta.