Síða 1 af 1

Grand Cherokee WK

Sent: Mið 29. Apr 2020 18:52
af Tonikallinn
Daginn, er einhver sem hefur tilturlega reynslu á WK Grand Cherokee 5.7 Hemi? Langar að henda í kaup á einu ágætu eintaki. Myndi aðallega vera notaður sem auka bíll og vetrar bíll, myndi mögulega hækka um 2'' og henda stærri dekkjum undir.

Aðal pælingar eru hvort þetta geta verið ágætlega traustir bílar, eða hvort hvert einasta eintak er bara hrein peninga sóun.
1200px-3rd-Jeep-Grand-Cherokee.jpg
1200px-3rd-Jeep-Grand-Cherokee.jpg (253.48 KiB) Skoðað 1758 sinnum

Re: Grand Cherokee WK

Sent: Mið 29. Apr 2020 20:28
af demaNtur
Eina sem ég þekki af þessum bílum er að þetta eyðir ágætlega en bilar mjög lítið.. Hef átt 1 svona cherokee og einn srt8 cherokee.. Báðir mjög fínir í eign, myndi mæla með.

Re: Grand Cherokee WK

Sent: Mið 29. Apr 2020 20:50
af Tonikallinn
demaNtur skrifaði:Eina sem ég þekki af þessum bílum er að þetta eyðir ágætlega en bilar mjög lítið.. Hef átt 1 svona cherokee og einn srt8 cherokee.. Báðir mjög fínir í eign, myndi mæla með.

Það er þá bara að finna einn á ágætu verði, sem er í góðu ástandi.... Wish me luck!

Re: Grand Cherokee WK

Sent: Fim 30. Apr 2020 13:18
af MuffinMan
ég veit að 4.7 er bara með vesen með undirlyfturnar í mótorinum og sumir með rafmagns vesen en 5.7 veit ekkert með en hann eyðir ekki undir 18L innan bæjar en mjög þægilegur og senni bílarnir 2009-2010 voru betri man ekki alveg afhverju