Síða 1 af 1

Er einhver sjálfvirk bílþvottastöð betri en aðrar? (NT)

Sent: Lau 08. Des 2018 12:13
af Raskolnikov
Nt

Re: Er einhver sjálfvirk bílþvottastöð betri en aðrar? (NT)

Sent: Lau 08. Des 2018 14:10
af vesley
Forðast skal allar burstaþvottastöðvar, það segir sig nokkuð sjálft.

Löður snertilausu stöðvarnar geta verið "ágætar" ef bíllinn er ekki of skítugur. Hafa þarf líka í huga að ef stöðin gæti þrifið mökk skítugan bíl án þess að snerta hann að ég myndi þá forðast hana, efnin væru alveg gríðarlega sterk og gætu þá skaðað plast.

Re: Er einhver sjálfvirk bílþvottastöð betri en aðrar? (NT)

Sent: Lau 08. Des 2018 17:56
af Kreg
Finnst bónstöðin í grjóthálsi mjög góð, reyndar ekki sjálfvirk en ekkert svo dýr (3500-4500 eftir stærð minnir mig )

Re: Er einhver sjálfvirk bílþvottastöð betri en aðrar? (NT)

Sent: Lau 08. Des 2018 22:31
af Sydney
Kreg skrifaði:Finnst bónstöðin í grjóthálsi mjög góð, reyndar ekki sjálfvirk en ekkert svo dýr (3500-4500 eftir stærð minnir mig )

Verst hvað það er oft klikkuð röð þar.

Re: Er einhver sjálfvirk bílþvottastöð betri en aðrar? (NT)

Sent: Lau 08. Des 2018 22:40
af Arena77
Fór á Löður við Kentucky í Kópavogi og pantaði Gullþvott, það var engin tjöruþvottur og ekkert bón bara bunur, og bíllin var næstum alveg eins, þýðir ekkert að kvarta algjörir aular þarna.

Re: Er einhver sjálfvirk bílþvottastöð betri en aðrar? (NT)

Sent: Fös 14. Des 2018 13:25
af Halli25
Hef verið sáttur við Lindina ef bílinn er algjörlega mökkaður, renni stundum í gegnum snertilausu við grjótháls frá löðri ef lítill skítur