Síða 1 af 1

bestu ódýru bílarnir

Sent: Þri 30. Okt 2018 21:02
af Ahs97
hæhæ er að leita mér af ódýrum "skólabíl" má helst ekki kosta meira en 700 þúsund. og ekki mikið viðhald.
Er eitthvað búin að skoða yaris. en er ekki alveg viss þar sem ég kann ekkert á bíla, getið þið mælt með einhverjum?

Re: bestu ódýru bílarnir

Sent: Þri 30. Okt 2018 21:21
af Viktor
Honda Accord

Re: bestu ódýru bílarnir

Sent: Þri 30. Okt 2018 21:29
af Henjo
Nýlegir lítinn smábíl með eins lítra mótor (ekki eldra en t.d. 2013,) Aygo t.d. (eða C1, I10, Up!, Citigo..) Eyða litlu, einfaldir í viðhaldi og bila lítið.

Re: bestu ódýru bílarnir

Sent: Mán 05. Nóv 2018 10:40
af Danni V8
Up! og Citigo hafa verið að koma mjög vel út á bílaleigunni sem ég vinn hjá. Bila nánast ekki neitt, og okkar bílar eru eknir frá 2000km-160.000km

Re: bestu ódýru bílarnir

Sent: Mán 05. Nóv 2018 15:29
af pattzi
Mæli með corollum en það er bara ég :-)

Á einmitt eina 1993 ekinn 363xxx og aðra 1996 ekinn 250 c.a

Svo á ég skoda og ekinn einhvað um 220 í dag keypti hann í 150 en diskóljós í mælaborði eins og i öllum skodum að maður er orðinn ónæmur fyrir því

Re: bestu ódýru bílarnir

Sent: Mán 12. Nóv 2018 02:46
af cozened
Sammála með rollurnar , virðast bara virka , fékk eina á 170þ um daginn. En þurfti alveg að shoppa soldið around , mikið af illa förnum bílum.

Re: bestu ódýru bílarnir

Sent: Mán 12. Nóv 2018 10:09
af pattzi
cozened skrifaði:Sammála með rollurnar , virðast bara virka , fékk eina á 170þ um daginn. En þurfti alveg að shoppa soldið around , mikið af illa förnum bílum.


Aðalega bensíntankurinn og burðarbitinn sem fer í þessum bílum

Búinn að skipta og láta skipta um þónokkra misjafnlega vel gert samt sem áður sumir dugðu bara árið og aðrir enn í lagi 4-5 árum seinna

Nenni þessu btw ekki í dag finnur ser bara annan a 100-200 þa kall ef mikið er sett út á í skoðun

Búinn að eiga 25 + corollur á 5 árum haha reyndar oftast bara þvi mer vantar pening en svo vantar manni alltaf bíl aftur

Re: bestu ódýru bílarnir

Sent: Mán 12. Nóv 2018 10:51
af KristinnK
Þriðji maðurinn hér með Toyota Corolla. Mín er 2005 árgerð, nýlega skipt um bremsudiska og bremsudælur, og það er smá ryð sem ég ætla að gera við fljótlega. Annars er ekkert að bílnum og hann kostaði bara 400 þúsund í fyrra.

Re: bestu ódýru bílarnir

Sent: Mán 12. Nóv 2018 21:48
af rattlehead
Sumir fá óbragð þegar minnst er á Corollur. Búinn að vera með bílbróf í 23 ár og hef átt 2 bíla á þessum tíma. bæði Corollur 96 og 06. Fyrri var bílaleigubíll greiddi 750.000 fyrir hanasem bilaði aldrei. Fyrir utan venjulegt viðhald og einn árekstur gekk hún eins og klukka. átti hana í hátt í 10 ár. Fór í 06 og sama sagan þar. Er enn á henni, aldrei bilað.

Re: bestu ódýru bílarnir

Sent: Þri 13. Nóv 2018 17:28
af pattzi
rattlehead skrifaði:Sumir fá óbragð þegar minnst er á Corollur. Búinn að vera með bílbróf í 23 ár og hef átt 2 bíla á þessum tíma. bæði Corollur 96 og 06. Fyrri var bílaleigubíll greiddi 750.000 fyrir hanasem bilaði aldrei. Fyrir utan venjulegt viðhald og einn árekstur gekk hún eins og klukka. átti hana í hátt í 10 ár. Fór í 06 og sama sagan þar. Er enn á henni, aldrei bilað.

Var þín svona þessi er einmitt 96 búið að setja 6 gíra kassa og svona fínerí
Mynd

á líka 93 modelið af si rollu nema hún fer bara í gang þegar henni hentar :-k
Mynd