Síða 1 af 1

Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Þri 03. Júl 2018 00:04
af razrosk
Jæjja er einhver hér sem getur frætt mig um þetta... hvernig er það með þessa sportbíla eins og Golf R eða bara bíla með stórar vélar, svo sem V8 með slatta af hestöflum... eins og Camaro, Charger, Challenger, Mustang og þannig bíla (nýja bíla frekar en gamla)... er fólk að setja 95 OKT bensín á þetta allt saman eða hvað?

Ég fór í Heklu um daginn og spurðitil gamans úti Golf R og mér var sagt, "jájá 95 er bara fínt fyrir þessa bíla".
Eyðileggur það ekki vélina ef það er ætlast til að nota 98 eða en svo er 95 notað í staðinn?

Ég spyr því ég sé hvergi annað en 95 OKT bensín til sölu á íslandi... gsmbensin.is hjálpar mannig nú ekki mikið heldur.

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Þri 03. Júl 2018 00:34
af russi
Þú kemst allavega lengra á Costco bensíni,,, eða svo var almannarómur fyrir rúmi ári síðan

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Þri 03. Júl 2018 00:40
af pepsico
Þú vilt að bensínið sé af oktani sem er jafn hátt eða hærra en framleiðandinn hannaði vélina fyrir því annars getur það sprungið fyrr en það á að gera og ollið skaða. 95 oktan sem við erum vön á Íslandi er frekar hátt svo það er ótrúlega sjaldan sem einhver þarf að pæla í þessu. Þrátt fyrir það eru vissulega til bílar með vélum sem krefjast hærra oktans en nýjir bílar eru með skynjara sem fatta ef oktanið er of lágt og hamla þá bara vélinni og þú færð þá hvorki jafn góð afköst né eyðslu. Dæmi um það væri Porsche Macan GTS sem er hannaður fyrir 98 oktan en skynjar og hamlar ef þú keyrir hann á 95 oktan, en ef þú reynir of mikið á þessa hömlunareiginleika með því að nota lægra og lægra oktan endarðu auðvitað alltaf á því að blandan byrjar stundum að springa of snemma og það skemmir þá vélina. Bílar sem krefjast hærra en 95 oktan fyrir hámarksafköst, og hvað þá fyrir öryggi vélarinnar vegna fyrrnefndra skynjara, eru ekki jafn algengir og þig þig grunar: Ég held að allt nema sérútgáfur af öllum þessum bílum sem þú nefndir séu með meðmæli upp á 91-95 oktan og þær sérútgáfur geta án vafa hamlað sig fyrir 95 oktan.

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Þri 03. Júl 2018 03:06
af DaRKSTaR
keypti mér nýja hondu civic type r gt um daginn.. stendur í bensínlokinu 98 og 95 okt.

er með 98 á honum þar sem ég kemst í 98 oct.. ef það er ekki í boði nota ég bara 95.

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Þri 03. Júl 2018 09:18
af Jón Ragnar
Allir bílar í dag eru optimized fyrir 95 oktan.

Ef þú ert með eitthvað race dæmi þá ertu kannski með eitthvað annað

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Þri 03. Júl 2018 11:05
af slapi
Það ættu allir bílar að vera 95 í dag fyrir utan eitthvað ofur dæmi. Fyrsta kynslóð VW TSi var tildæmis 98okt hvort það komst til skila til kúnnana er annað mál

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Þri 03. Júl 2018 21:05
af razrosk
DaRKSTaR skrifaði:keypti mér nýja hondu civic type r gt um daginn.. stendur í bensínlokinu 98 og 95 okt.

er með 98 á honum þar sem ég kemst í 98 oct.. ef það er ekki í boði nota ég bara 95.


Og hvar er hægt að fá 98 okt á íslandi? (höfuðborgarsvæðið) - og ertu þá að blanda 95 og 98 eða læturu bílinn vera nánast bensínlausan áður en þú dælir öðru oktani ?

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Þri 03. Júl 2018 23:12
af trausti164
razrosk skrifaði:
DaRKSTaR skrifaði:keypti mér nýja hondu civic type r gt um daginn.. stendur í bensínlokinu 98 og 95 okt.

er með 98 á honum þar sem ég kemst í 98 oct.. ef það er ekki í boði nota ég bara 95.


Og hvar er hægt að fá 98 okt á íslandi? (höfuðborgarsvæðið) - og ertu þá að blanda 95 og 98 eða læturu bílinn vera nánast bensínlausan áður en þú dælir öðru oktani ?

Getur fengið 98 á olís í skeifunni held ég

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Mið 04. Júl 2018 01:08
af DaRKSTaR
razrosk skrifaði:
DaRKSTaR skrifaði:keypti mér nýja hondu civic type r gt um daginn.. stendur í bensínlokinu 98 og 95 okt.

er með 98 á honum þar sem ég kemst í 98 oct.. ef það er ekki í boði nota ég bara 95.


Og hvar er hægt að fá 98 okt á íslandi? (höfuðborgarsvæðið) - og ertu þá að blanda 95 og 98 eða læturu bílinn vera nánast bensínlausan áður en þú dælir öðru oktani ?


blanda því ekki.. myndi bara nánast klára bensínið á honum og fylla hann af 95.

ef þú kaupir nýjann svona bíl þá bara keyrirðu hann þángað til að hann er kominn vel neðarlega og fyllir hann af 95.

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Mið 04. Júl 2018 10:26
af Minuz1
Var hægt að fá 102 eða 105 okt bensín á litlu stöðinni í skógarhlíð, veit ekki hvort það er lengur hægt.
Notaði það á gamalt mótorhjól sem hafði verið borað út, það lagaði ganginn í vélinni sem "knock-aði" á 95/98

Re: Spurning varðandi sportbíla og bensín

Sent: Mið 04. Júl 2018 17:03
af pepsico
Það er engin hætta falin í því að blanda 95 og 98 eftir hentisemi á vél sem er hönnuð fyrir þetta svigrúm svo ég mæli á móti öllu stressi með það. Þetta er allt saman bara eldsneyti (sem springur ekki of snemma) fyrir bílnum og það eina sem er þess virði að pæla í er endanlegt verð á kílómetranum eftir neyslunni og verðinu á sitt hvoru á gefnum tíma, nú eða afköstunum ef menn uppgötva Autobahn á hálendinu.