Síða 1 af 1

EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Þri 03. Apr 2018 20:05
af GönguHrólfur
Hæ, veit nokkuð einhver hvað þessi partur kallast á góðri íslensku?

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Þri 03. Apr 2018 20:12
af DJOli
EGR Ventill?

Edit:
Sé að EGR stendur fyrir exhaust gas recirculation.
Getur ekki verið að svarið sé bara útblásturshringrásaventill?

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Þri 03. Apr 2018 20:15
af GönguHrólfur
DJOli skrifaði:EGR Ventill?

Já ókei þannig að engin á bílaversktæði er að fara að lifta augabrún ef ég orða það þannig?

DJOli skrifaði:Edit:
Sé að EGR stendur fyrir exhaust gas recirculation.
Getur ekki verið að svarið sé bara útblásturshringrásaventill?

Það er nokkuð til í að kalla þetta það, en ef maður googlar þetta þá kemur bara ekkert upp...

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Þri 03. Apr 2018 20:43
af roadwarrior
GönguHrólfur skrifaði:
DJOli skrifaði:EGR Ventill?

Já ókei þannig að engin á bílaversktæði er að fara að lifta augabrún ef ég orða það þannig?

Neibb EGR ventlar eru þekkt vandamál á díselbílum þannig að enginn verkstæðis maður sem þekkir sitt fag á að verða hissa, en fyrir forvitnissakir hvernig bíll er þetta?

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Þri 03. Apr 2018 21:26
af Frost
Alltaf talað um EGR ventla bara.

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Þri 03. Apr 2018 21:48
af littli-Jake
Held að orðið sem er gefið upp í tækniorða bókinni sé afgas eða útblásturs ventill. En það eru ekki hugtök sem eru notuð frekar en smáskilaboð eða tónhlaða

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Þri 03. Apr 2018 22:02
af audiophile
Það vita allir bifvélavirkjar hvað EGR ventill er og þarft ekki að kalla það neitt annað. Það yrði frekar litið asnalega á þig ef þú færir að reyna að bera upp einhverja heimabruggaða íslenska þýðingu á orðinu :)

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Þri 03. Apr 2018 22:34
af Frussi
Afgasventill er svarið en eins og aðrir hafa sagt, EGR ventill er málið

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mið 04. Apr 2018 00:59
af olihar
Ertu nokkuð með vél framleidda af VW?

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mið 04. Apr 2018 09:03
af raggos
afgasventill gæti átt við um EGR valve , blow-off valve og wastegate valve ef út í það er farið. EGR-ventill er ágætt

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mið 04. Apr 2018 10:16
af GullMoli
Talandi um.. djöfull er þetta óþolandi drasl. Þetta festist opið á gamla Volvoinum mínum, virkaði sem risastór vacum leki :)

Lokaði einfaldlega fyrir og boom, allt í tip top nema bíllinn framleiðir aðeins meira af köfnunarefni <.<

EDIT: Svo er þetta alveg extra skemmtilegt á dísel bílum, hvað þá ef þeir eru aldrei eknir yfir 3þús snúningum.

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mið 04. Apr 2018 10:16
af worghal
audiophile skrifaði:Það yrði frekar litið asnalega á þig ef þú færir að reyna að bera upp einhverja heimabruggaða íslenska þýðingu á orðinu :)

Hvað um Closing Valve? Loka Loki. :fly

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mið 04. Apr 2018 11:11
af rapport
Þetta er bara borðliggajndi...
gas.JPG
gas.JPG (24.13 KiB) Skoðað 4063 sinnum

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mið 04. Apr 2018 14:10
af GönguHrólfur
rapport skrifaði:Þetta er bara borðliggajndi...
gas.JPG

Ég fór til læknis um daginn og sagði honum frá nákvæmlega þessu vandamáli en hann sagði að það virkaði allt eins og það á að gera.

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mið 04. Apr 2018 22:33
af Danni V8
Þegar ég lærði bifvélavirkjann þá fórum við einmitt yfir svona tækniorð. Tíminn fór eiginlega bara í að gera grín af þessu og hvað það er asnalegt að íslenska þessi orð. EGR er einn ef þessum hlutum sem var ekki til þegar æðið stóð sem hæst að íslenska þessi orð, og það er ekki til íslenskt orð fyrir hann.

En ætli það væri ekki "afgasfæðiventill" þar sem þessi ventill sér um að fæða inntak vélarinnar með pústinu. Tilgangurin er tvíþættur, að minnka hættulegar stóttegundir með því að brenna þær í sprengingunni, og að koma heitu pústlofti í vélina þegar hún er köld til þess að hún hitni hraðar og fari að menga minna fyrr.

Bölvað vesen á þessu samt og oftar en ekki stíflar þetta inntakið á vélum þegar þær eru orðnar nokkra ára gamlar.

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mán 09. Apr 2018 20:14
af GönguHrólfur
Ókei ég aftengdi EGR ventilinn í dag og keyrði smá um, en stuttu seinna hvað haldiði að hafi gerst? Bíllinn drepur á sér í miðri keyrslu u.þ.b 5. Mín eftir að ég kveikti á honum. Vélin byrjaði líka að hökta smá áður en hann gafst upp, vitiði nokkuð hvað í skrattanum gæti verið í gangi?

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mán 09. Apr 2018 20:18
af rapport
GönguHrólfur skrifaði:Ókei ég aftengdi EGR ventilinn í dag og keyrði smá um, en stuttu seinna hvað haldiði að hafi gerst? Bíllinn drepur á sér í miðri keyrslu u.þ.b 5. Mín eftir að ég kveikti á honum. Vélin byrjaði líka að hökta smá áður en hann gafst upp, vitiði nokkuð hvað í skrattanum gæti verið í gangi?

Líklega er búið að aftengja EGR ventilinn... :guy

Spurning um að tengja hann aftur ASAP

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mán 09. Apr 2018 20:22
af GönguHrólfur
rapport skrifaði:

I catch your drift, no pun intended. Ég gerði það, og ég hefði aldrei aftengt kvikindið hefði ég ekki fengið grænt ljós (....) um að það væri í lagi og ætti að skera úr um hvort EGR ventillinn væri sökudólgurinn. Þ.e.a.s, að vandamálið ætti að leysast og hann ætti að keyra eðlilega ef EGR ventillinn væri vandamálið, en í staðin þá versnaði það bara og ég veit ekkert hvað ég get tekið frá því. :-k

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mán 09. Apr 2018 21:02
af roadwarrior
Ertu til í að fræða okkur hvaða tegund og gerð þessi bíll er :D

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mán 09. Apr 2018 21:10
af GönguHrólfur
roadwarrior skrifaði:Ertu til í að fræða okkur hvaða tegund og gerð þessi bíll er :D

Vectra Caravan '99

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mán 09. Apr 2018 21:36
af rapport
GönguHrólfur skrifaði:
rapport skrifaði:
GönguHrólfur skrifaði:Ókei ég aftengdi EGR ventilinn í dag og keyrði smá um, en stuttu seinna hvað haldiði að hafi gerst? Bíllinn drepur á sér í miðri keyrslu u.þ.b 5. Mín eftir að ég kveikti á honum. Vélin byrjaði líka að hökta smá áður en hann gafst upp, vitiði nokkuð hvað í skrattanum gæti verið í gangi?

Líklega er búið að aftengja EGR ventilinn... :guy

Spurning um að tengja hann aftur ASAP

I catch your drift, no pun intended. Ég gerði það, og ég hefði aldrei aftengt kvikindið hefði ég ekki fengið grænt ljós (....) um að það væri í lagi og ætti að skera úr um hvort EGR ventillinn væri sökudólgurinn. Þ.e.a.s, að vandamálið ætti að leysast og hann ætti að keyra eðlilega ef EGR ventillinn væri vandamálið, en í staðin þá versnaði það bara og ég veit ekkert hvað ég get tekið frá því. :-k

Það var einhver loftflæði/loftþýstingsskynjari (IAC ef ég man rétt) í mínum bíl sem ég gat tekið út og sett tappa í staðinn á meðan ég beið eftir varahlut.

Hugsanlega er það málið?

Það var MAP sensor, sorry...

https://www.youtube.com/watch?v=FOTgpxYead8

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Mán 09. Apr 2018 21:51

Takk fyrir viðleitnina, en ég las þessa grein hérna sem segir að sé þetta málið þá myndi bíllinn ekki standast mengunarpróf, og minn kom nýlega úr skoðun án vandræða hvað það snertir.

https://www.yourmechanic.com/article/sy ... map-sensor

3. Failed emissions test
A bad MAP sensor will cause your vehicle to fail an emissions test. Your tailpipe emissions may show a high level of hydrocarbons, high NOx production, low CO2, or a high level of carbon monoxide.

Re: EGR valve, íslensk þýðing?

Sent: Þri 10. Apr 2018 12:59
af raggos
Búnaðurinn sem er hjá skoðunarstöðunum í dag er ekki svona fullkominn. Þ.e. bílar sem er búið að blokka EGR kerfið standast skoðun. Innflutningur á bílum aftur á móti sem ekki standast kröfurnar er bannaður og erfitt að komast framhjá.