Síða 1 af 1

Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Sun 18. Feb 2018 22:16
af GuðjónR
Ég setti bílinn í gang einn morguninn fyrir stuttu til að hita hann, það var 6 stiga frost úti og blásturinn var á rúðuna, þegar ég kom svo í bílinn c.a. 40 mín síðar þá var framrúðan sprungin. Mér finnst líklegt að það hafi verið einhver áverki á henni fyrir jafnvel þó það sé ekki sýnilegt. Verð oft fyrir grjótkasti á Vesturlandsveginum þar sem malbikið er að leysast upp.

Ég er með rúðutryggingu eins og flestir, hvar er best að láta skipta um rúðu? Er ekki langbest að fara í umboðið og fá original rúðu eða skiptir Hekla ekki um rúður í Skoda?

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Sun 18. Feb 2018 22:35
af Cascade
Ég lenti í þessu fyrir tæpum 2 mánuðum með nýlegan Skoda. Hringi í umboðið, þeir mældu með Orka, þeir gera þetta víst ekkert sjálfir, sögðu mér að þeir nota þetta fyrirtæki

https://ja.is/orka/

Er á stórhöfða

Hef ekkert út á það að setja. Fór með bílinn kl. 8 til þeirra og sótti eftir vinnu. Veit svosem ekkert mikið um framrúðu skipti en þetta virðist vera vel gert

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Sun 18. Feb 2018 22:40
af Viktor

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Mán 19. Feb 2018 08:52
af Black
Myndi fara til þeirra í Orku uppá stórhöfða, topp þjónusta

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Mán 19. Feb 2018 14:55
af vesley
Bæði farið í orku og Poulsen. Skíta vinnubrögð hjá Poulsen sá á bílnum og rúðan fékk sprungu í sig sólarhring seinna út frá einum kanntinum.
Mjög flott vinnubrögð hjá orku og mæli ég með þeim.

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Mán 19. Feb 2018 22:27
af kassi
Ef þú villt hafa þetta 100prósent þá talaru við AMG bílrúðuður það er lang klárasti gæin í bílrúðum á landinu!
Ég tala af reynslu er að láta skipta um böns áf rúðum fyrir mig á ári og ef ég er með fína dýra bíla tala ég alltaf við þennan!

https://www.facebook.com/AMG-B%C3%ADlr% ... 856283053/

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Lau 10. Mar 2018 09:33
af pattzi
Sorrý
Ætla ekki að skemma þráðinn
En vitiði með fornbíla er hægt að láta tryggingar borga fyrir rúðu í þannig ?

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Lau 10. Mar 2018 10:03
af Danni V8
pattzi skrifaði:Sorrý
Ætla ekki að skemma þráðinn
En vitiði með fornbíla er hægt að láta tryggingar borga fyrir rúðu í þannig ?

Það er hægt ef hann er á venjulegum tryggingum. Ef hann er á fornbílatryggingum er það ekki hægt.

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Lau 10. Mar 2018 10:08
af pattzi
Danni V8 skrifaði:
pattzi skrifaði:Sorrý
Ætla ekki að skemma þráðinn
En vitiði með fornbíla er hægt að láta tryggingar borga fyrir rúðu í þannig ?

Það er hægt ef hann er á venjulegum tryggingum. Ef hann er á fornbílatryggingum er það ekki hægt.
Er á fornbílatryggingum
En stendur Bílruðutrygging.

Mynd

Sent from my SM-A520F using Tapatalk

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Lau 10. Mar 2018 11:13
af Danni V8
Þetta sýnist mér bara vera upplýsingar sem er hægt að nálgast á síðunni þeirra. Þú þarft að finna vátryggingaskírteinið þitt (sennilega hægt að nálgast það í gegnum Mitt Vís) og athuga hvort Bílrúðutrygging sé skilgreind á því.

Þetta stendur í skilmálunum þeirra fyrir lögbundna tryggingu:
"Bílrúðutrygging er innifalin ef hún er tilgreind á
vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun."

Það er mjög ólíklegt að það sé bílrúðutrygging með fornbílatryggingu enda er fornbílatrygging hugsuð fyrir bíla sem eru geymdir inni í skúr alla daga og fara ekki út nema á sérstökum dögum ef það er gott veður, enda er mjög algengt að það er kílómetra takmark á svoleiðis tryggingum, hef heyrt að sum tryggingafélög vilja ekki að bíll sé ekinn meira en 2000km á ári til að hann fái að halda fornbílatryggingu.

Re: Hvar er best að láta skipta um framrúðu?

Sent: Lau 10. Mar 2018 11:19
af pattzi
Danni V8 skrifaði:Þetta sýnist mér bara vera upplýsingar sem er hægt að nálgast á síðunni þeirra. Þú þarft að finna vátryggingaskírteinið þitt (sennilega hægt að nálgast það í gegnum Mitt Vís) og athuga hvort Bílrúðutrygging sé skilgreind á því.

Þetta stendur í skilmálunum þeirra fyrir lögbundna tryggingu:
"Bílrúðutrygging er innifalin ef hún er tilgreind á
vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun."

Það er mjög ólíklegt að það sé bílrúðutrygging með fornbílatryggingu enda er fornbílatrygging hugsuð fyrir bíla sem eru geymdir inni í skúr alla daga og fara ekki út nema á sérstökum dögum ef það er gott veður, enda er mjög algengt að það er kílómetra takmark á svoleiðis tryggingum, hef heyrt að sum tryggingafélög vilja ekki að bíll sé ekinn meira en 2000km á ári til að hann fái að halda fornbílatryggingu.

Þetta var inná mitt vís
Inná vatryggingarskirteini þegar ég ýtti á bílinn og já veit með þessa 2000km en hefur ekki skipt hingað til keyri hann svona 8-10þ og aðalbílinn um 30þkm

Sama trygging virðist gilda um báða .
Þarf að skoða það betur tými ekki að borga 60þ eða meira fyrir rúðu


Sent from my SM-A520F using Tapatalk