Síða 1 af 1

Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 01:18
af appel
Hvert á maður að fara?

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 07:40
af littli-Jake
áður en lengra er haldið. Hvernig bíl og hversu miklu ertu tilbúinn að eiða í sprautun?

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 09:19
af brain
Mæli hiklaust með Bifreiðaverkstæði Jónasar

Hef látið bæði alsprauta bíl þar, svo og viðgerðir.
Alltaf 100 %

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 09:34
af Moldvarpan
Er ekki kominn tími á að setja Avensisinn í þjöppuna? :lol:

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 09:43
af kiddi
Moldvarpan skrifaði:Er ekki kominn tími á að setja Avensisinn í þjöppuna? :lol:


Það er svo grænt og rétt að gera við gamla hluti og halda þeim gangandi =D>

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 11:50
af Haukursv
Tek undir með með bifreiðaverkstæði Jónasar, Toppgaurar og snögg og góð þjónusta

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 14:50
af Viktor
Ertu með einhvern safngrip í höndunum?

Ef ekki er best að sleppa því.

Mynd

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 15:53
af appel
Það er svo stutt í fornbílaaldurinn (tax free babí) að maður þarf að velta þessu fyrir sér. Efast samt um að maður láti verða af þessu, en samt, ef það kostar hluta af verði nýs bíls þá kannski pælir maður í því.

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 16:04
af Viktor
Það kostar ekki undir milljón að heilsprauta bíl. Borgar sig upp á 50 árum. Nei bíddu...

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 16:11
af kiddi
Það er satt að það kostar morðfé að láta heilsprauta bíl, enda felst hellingur í vinnunni og útkoman verður æði. Annar „valmöguleiki“ er að fara inn í bílskúr með spreybrúsa og helling af málningateipi :D

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 18:23
af appel
Vonandi eignast maður einhverntímann bílskúr svo maður geti dundað sér við þetta sjálfur í ellinni.

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 19:39
af vesi
En að "wrappa" bílinn í staðin fyrir að sprauta, er enginn að því á Íslandi?


Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 19:57
af Viktor
vesi skrifaði:En að "wrappa" bílinn í staðin fyrir að sprauta, er enginn að því á Íslandi?

[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=[/youtube]


Jú, VIP :o

https://www.facebook.com/v.i.p.filmur/p ... =3&theater

https://www.facebook.com/v.i.p.filmur/p ... =3&theater

https://www.facebook.com/v.i.p.filmur/p ... =3&theater

https://www.facebook.com/v.i.p.filmur/p ... =3&theater

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 20:16
af appel
Áhugavert. Þetta lítur út fyrir að vera mun meira straight-forward heldur en hitt. Hvað ætli svona kosti?

Re: Taka bílinn í gegn.. sprautun og allt..

Sent: Þri 13. Feb 2018 21:36
af Dúlli
appel skrifaði:Áhugavert. Þetta lítur út fyrir að vera mun meira straight-forward heldur en hitt. Hvað ætli svona kosti?


Að wrappa bíl kostar svipað og að mála og endinginn er 3-4 ár max. Hef prufað og verið að leika mér í þessu, hef prufað og séð VIP wrappið virka og hef prufað sömu vörur þetta skemmist hratt við grjótkasst.

Og að gera þetta við heilan bíl er heilmikil vinna og ef bílinn er byrjaður að ryðga mun hann halda áfram að ryðga undir nema það sé lagað fyrst.