Síða 1 af 1

Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 18:24
af GuðjónR
Er ekki í lagi að blanda saman tveim 5w30 olíum saman?
Keypti Castrol olíu í gær, 4l og á Elf olíu upp í hillu, málið er að bíllinn tekur um 4.5l af olíu, Castrol er í 4l brúsa ég þyrfti því að bæta 0.5l af Elf eða kaupa annan brúsa af Castrol.

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 18:49
af slapi
Skiptir engu máli, mátt alveg blanda þeim saman

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 18:51
af GuðjónR
slapi skrifaði:Skiptir engu máli, mátt alveg blanda þeim saman

Mig grunaði það af því að þetta eru eins spekkaðar olíur.
Var samt að velta fyrir mér hvort svona blöndun skemmdi eiginlega olíunnar.

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 18:53
af slapi
Nei grunnurinn er alltaf sá sami og getur oft komið frá sama framleiðanda. Síðan er grunnurinn keyptur og einhverjum íblöndunar efnum bætt við og síðan setja þeir límmiðan sinn á.

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 19:05
af loner
Það er ekki mælt með að blanda saman synitískum olíum saman frá sitt hvorum framleiðanda,
vegna bætiefnana í þeim, þar sem eitt bætiefni gæti unnið á móti öðru.
Þar af leiðandi missir olían eiginleika sína sem náðst hefur með bætiefnum.

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 21:37
af GuðjónR
Hmm í lagi segir enn en ekki segir annar ... getur 0.5l af einni olíu skemmt eiginlega hinnar?

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 21:44
af urban
Helltu þessu saman.

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 22:18
af loner
Ég mundi allavegana ekki hlaupa til og skipta um olíu, en ef ég ætti bílinn þá mundi ég stytta tímann aðeins milli olíuskipta í þessu tilviki.

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 22:24
af Viktor
Þegar það er bætt við olíu á bíl sem brennur olíu, þá er bara sett olía sem passar á bílinn. Hef aldrei heyrt af því að það þurfi að vera frá sama framleiðanda, heldur bara það sem hendi er næst.

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 22:46
af GuðjónR
Ég skipti yfirleitt um olíu á 10.000 - 12.000 km fresti þrátt fyrir að talað sé um að olían eigi að endast í 15.000 km+
Já ég sulla þessu bara saman. :)

Re: Að blanda saman olíu frá mismunandi framleiðendum

Sent: Mið 24. Maí 2017 23:47
af loner
Ég mundi segja að 10k-12k milli skipta væri heldur mikið fyrir venjulega notkun bíls hér á landi og væri til þess að minnka líftíma vélar.
Annað en úti þar sem langar vegalengdir eru keyrðar í einu.

Ef vél er orðin slitin og brennir smurolíu þá er notuð þykkari smurolía, olíur þynnast mismunandi mikið við hækkandi hitastig vélar.