Síða 1 af 1

Rétta plast (beygla í stuðara)

Sent: Sun 22. Jan 2017 14:47
af FriðrikH
Geta vaktarar mælt með stað til að skoða með að rétta dæld í plaststuðara. Það er beygla í honum en plastið er ekki sprungið.
Það mundi ekki vera verra ef sami staður gæti mögulega reddað 2 litlum ryðblettum.

Re: Rétta plast (beygla í stuðara)

Sent: Sun 22. Jan 2017 16:12
af Jonssi89

Re: Rétta plast (beygla í stuðara)

Sent: Sun 22. Jan 2017 16:54
af RassiPrump
Þú gætir prófa að fara út með hárblásara eða hitabyssu og hitað svæðið smá (alls ekki of mikið samt!) og svo farið innundir stuðarann og bara ýtt beyglunni út, samt ekki með of miklum krafti. Ég gerði það á fyrsta bílnum mínum því ég átti það til að keyra mikið í ruðninga og beygla plastið nokkuð oft.
Annars fór ég með nýja bílinn minn til Smáréttinga útaf hagkaupsbeyglu á hurðinni og borgaði 30þúsund fyrir, plús hann smeygði mér inn á milli því ég var kominn utan af landi. Hann er algjör fagmaður og ég mæli klárlega með honum, topp þjónusta alla leið!

Re: Rétta plast (beygla í stuðara)

Sent: Sun 22. Jan 2017 17:41
af C3PO
FriðrikH skrifaði:Geta vaktarar mælt með stað til að skoða með að rétta dæld í plaststuðara. Það er beygla í honum en plastið er ekki sprungið.
Það mundi ekki vera verra ef sami staður gæti mögulega reddað 2 litlum ryðblettum.


Myndi prófa að nota heitt vatn og réttan svo stuðaran. Passa bara að ofhita ekki plastið.

Kv. D

Re: Rétta plast (beygla í stuðara)

Sent: Sun 22. Jan 2017 17:51
af FriðrikH
Takk fyrir þetta, ég prófa hitann.

Hef því miður ekki allt of góða reynslu af smáréttingum, fór einmitt með bílinn til hans út af þessum 2 litlu ryðbólum í haust, það er núna farið að ryðga upp úr þeim báðum :(

Re: Rétta plast (beygla í stuðara)

Sent: Sun 22. Jan 2017 19:20
af RassiPrump
FriðrikH skrifaði:Takk fyrir þetta, ég prófa hitann.

Hef því miður ekki allt of góða reynslu af smáréttingum, fór einmitt með bílinn til hans út af þessum 2 litlu ryðbólum í haust, það er núna farið að ryðga upp úr þeim báðum :(


Ah ég skil. Hann allavega reddaði hagkaupsdældinni þannig að það sést ekkert þar sem hún áður var og ég svaka hamingjusamur. En þú gætir tekið dúkahnífsblað og kroppað ryðið upp með oddinum á því, eða ef þú býrð svo vel að eiga að hafa aðgang á agnarsmáum handfræs, farið svo í umboðið og fengið málningu þar og blettað. Þurfti að bletta í eina rispu eftir ferðatösku á afturstuðaranum hjá mér, fór í Heklu þar sem þetta er Heklubíll, gaf upp númerið og fékk sett sem var málning og glæra fyrir bílinn á 1400 kall.