Síða 1 af 2

Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 21:14
af GuðjónR
Ég gerði tilraun í dag, var búinn að keyra í klukkutíma og hitinn á vatnskassa var 90 gráður og olíuhitinn var 92 gráður. Hitinn úti var um 0 gráður og mikill vindur. Ég stoppaði bílinn og setti miðstöðina á heitt og í botn. Ég horfði á hitatölurnar lækka hratt, 20 mín síðar var olíuhitinn kominn niður í 56c og vatnshitinn í eitthvað svipað. Smá stund síðar var olíuhitinn --- eða líklega minni en 50c.

Þá prófaði ég að ýta á innihitann, þ.e. miðstöðin á fullu blasti á heitu en notar loftið í bílnum í stað þess að taka ferkst loft, þá fór hitinn upp, 10 mín siðar voru hitatölurnar komnar yfir 70c. Slökkti þá á miðstöðinni og þá tóku tölurnar aftur kipp ... 5 mín síðar 77c en þá nennti ég ekki lengur.

Nú er ég farinn að skilja af hverju það virkar ílla að kveikja á bílnum í frosti og setja hitablásturinn í botn, þá einfaldlega hitnar bíllinn seint og ílla, en þetta á bara við um þegar vélin er í hægagangi ~1000 rpm ... um leið og ég fer að keyra þá rýkur hitinn upp.

Er þetta eðlilegt?

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 21:24
af vesley
Er hann oft svoldið kaldur þegar verið er að keyra hann ?

Ef vatnslás er orðinn lélegur í bílnum er hann oft lengi að hita sig ef miðstöðin er á fullu, lenti í því sama með bíl hjá mér og þá var vatnslásinn slappur og var oft fastur opinn.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 21:28
af viddi
Alveg eðlilegt kælivatnið á vélinni hitar miðstöðina og hún virkar sem kæling á vatnið ef þú botnar hana í hita.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 21:32
af arons4
Vinnubíllinn minn er með olíufír með klukku, bara hægt að stilla það hálftíma áður en maður fer af stað og bílinn er heitur og fínn.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 21:35
af GuðjónR
vesley skrifaði:Er hann oft svoldið kaldur þegar verið er að keyra hann ?

Ef vatnslás er orðinn lélegur í bílnum er hann oft lengi að hita sig ef miðstöðin er á fullu, lenti í því sama með bíl hjá mér og þá var vatnslásinn slappur og var oft fastur opinn.
Nahh...bíllinn er þriggja ára. Hann var svona í fyrravetur líka og hann verður mjög heitur, tekur bara langan tíma.

viddi skrifaði:Alveg eðlilegt kælivatnið á vélinni hitar miðstöðina og hún virkar sem kæling á vatnið ef þú botnar hana í hita.
Já hugsanlega, hef reyndar ekki tekið eftir svona stóru droppi áður en þetta er reyndar fyrsti dísel bíllinn minn. Kannski eru þeir eitthvað öðruvísi. Verð bara að nota innihitann þegar ég hita hann á morgnanna, eini gallinn er móðan sem kemur innan á gluggana.

arons4 skrifaði:Vinnubíllinn minn er með olíufír með klukku, bara hægt að stilla það hálftíma áður en maður fer af stað og bílinn er heitur og fínn.
Það er lúxus, væri til í svoleiðis en það kostar handlegg...og fót.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 22:01
af Manager1
Miðstöðin tekur hita frá vélinni, þannig að það er eðlilegt að miðstöðin blási köldu á meðan vélin er köld og það er eðlilegt að vélin sé lengur að hitna þegar miðstöðin er í botni á heitu.

Þegar þú ferð að keyra eykst snúningurinn á vélinni og þar með hitamyndunin þannig að vélin hitnar hraðar, þetta eru engin geimvísindi, bara smá eðlisfræði :)

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 22:37
af pattzi
Alls ekki setja miðstöðina í botn þegar bíllinn er kaldur gæti skemmt heddpakkninguna t.d


En ég er með Tvo bíla annar þeirra hitnar strax en vetrarbíllinn 4x4 baleno er ábyggilega með ónýtan vatnslás hitnar bara ekki neitt ef ég er með miðstöðina í gangi þar af leiðandi hitnar miðstöðin seint og illa .

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 22:57
af Klaufi
Hérna..

Hafðirðu ekkert betra að gera í 35 mínútur?

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 23:24
af stefhauk
Svo heyrði ég að bíllinn getur verið lengur að hitna ef þú ert með of mikil frostlög á bílnum en ráðlagt er

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fim 17. Nóv 2016 23:36
af GuðjónR
Klaufi skrifaði:Hérna..

Hafðirðu ekkert betra að gera í 35 mínútur?

hehehehe .... nei! hef svo gaman að því að gera tilraunir. :)

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fös 18. Nóv 2016 07:37
af littli-Jake
pattzi skrifaði:Alls ekki setja miðstöðina í botn þegar bíllinn er kaldur gæti skemmt heddpakkninguna t.d .



Sem mentaður bifvélavirki ætla ég að setja stórt spurningamerki við þessa staðhæfingu



Það er alveg eðlilegt að dísel bílinn þinn sé svoltið lengur að hitna. Til dæmis vegna þess að þeir fara með minna eldsneiti i gegnum sig per min. Auk þess er meiri massi af málmi sem þarf að hita upp.

En forvitni. Ertu með eitthvað forrit til að monitor hitan í gráðum?

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fös 18. Nóv 2016 08:22
af audiophile
Eg hef átt dísil bíl og hann var alltaf eilífð að hitna.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fös 18. Nóv 2016 13:12
af Halli25
audiophile skrifaði:Eg hef átt dísil bíl og hann var alltaf eilífð að hitna.

Minn dísill er alltaf eldsnöggur að hitna... fínt að eiga skúr :)

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fös 18. Nóv 2016 14:16
af GullMoli
Veit ekki hversu oft ég hef rekist á fólk sem setur miðstöðina á hæsta hita og mesta blástur þegar bíllinn er ískaldur.. þar sem að það heldur að bíllinn hitni fyrr þannig #-o

Ef þú vilt hita bílinn sem fyrst þá skaltu slökkva á miðstöðinni!

En annars;


Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Fös 18. Nóv 2016 17:59
af brain
littli-Jake skrifaði:
pattzi skrifaði:Alls ekki setja miðstöðina í botn þegar bíllinn er kaldur gæti skemmt heddpakkninguna t.d .



Sem mentaður bifvélavirki ætla ég að setja stórt spurningamerki við þessa staðhæfingu



Það er alveg eðlilegt að dísel bílinn þinn sé svoltið lengur að hitna. Til dæmis vegna þess að þeir fara með minna eldsneiti i gegnum sig per min. Auk þess er meiri massi af málmi sem þarf að hita upp.

En forvitni. Ertu með eitthvað forrit til að monitor hitan í gráðum?



Sammála, aldrei heyrt um að miðstöðin geti haft áhrif á hedd pakningu.

pattzi hvar heyrðiru um þetta ?

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 00:47
af pattzi
brain skrifaði:
littli-Jake skrifaði:
pattzi skrifaði:Alls ekki setja miðstöðina í botn þegar bíllinn er kaldur gæti skemmt heddpakkninguna t.d .



Sem mentaður bifvélavirki ætla ég að setja stórt spurningamerki við þessa staðhæfingu



Það er alveg eðlilegt að dísel bílinn þinn sé svoltið lengur að hitna. Til dæmis vegna þess að þeir fara með minna eldsneiti i gegnum sig per min. Auk þess er meiri massi af málmi sem þarf að hita upp.

En forvitni. Ertu með eitthvað forrit til að monitor hitan í gráðum?



Sammála, aldrei heyrt um að miðstöðin geti haft áhrif á hedd pakningu.

pattzi hvar heyrðiru um þetta ?


Mér var sagt þetta fyrir einhverjum árum síðan af bifvélavirkja hélt að þetta væri rétt kannski var bara verið að rugla í mér ..

En Bíllin er allavega mjög lengi að hitna ef þú setur miðstöðina í botn maður á bara að hafa slökkt á henni þangað til bíllinn hitnar almennilega annars kemur bara kaldur blástur :)

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 06:23
af Danni V8
Díselbílar eru oft þannig að þeir bara halda ekki hita í lausagangi. Á einum vinnustaðnum sem ég vann á fyrir nokkrum árum vorum við með Toyota HiAce bíla og nýrri bílarnir voru með takka sem maður ýtti á til að hita bílinn upp. Þá hækkaði lausagangurinn uppí svona ca 1500rpm. Man ekki nákvæmlega.

Hef aldrei lent í svona veseni á bensínbíl samt, þeir bara hitna uppí vinnsluhita og eru þar þar til það er drepið á.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 09:53
af slapi
Eitt sem ég hef ekki skilið að hafi orðið vinsælla á Íslandi er mótorhitari og hitablásara combo sem tengist í 230v eins og er mjög vinsælt í skandinavíu.
Þetta er ódýrt (Miðaðvið dísel/bensínfýringu), einfalt í ísetningu og miklu umhverfisvænna og ódýrara að hita bílinn.
http://www.defa.com/en/automotive/warmu ... ts/warmup/

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 11:57
af Lexxinn
Danni V8 skrifaði:Díselbílar eru oft þannig að þeir bara halda ekki hita í lausagangi. Á einum vinnustaðnum sem ég vann á fyrir nokkrum árum vorum við með Toyota HiAce bíla og nýrri bílarnir voru með takka sem maður ýtti á til að hita bílinn upp. Þá hækkaði lausagangurinn uppí svona ca 1500rpm. Man ekki nákvæmlega.

Hef aldrei lent í svona veseni á bensínbíl samt, þeir bara hitna uppí vinnsluhita og eru þar þar til það er drepið á.


Ég var með svona á tveimur Yaris Diesel sem ég hef átt! Það var virkilega hentugt og takkinn var nánast alltaf í gangi þar sem ég bjó á Reykjavíkursvæðinu og aksturinn var sjaldan það langur að bíllinn náði að hitna almennilega.

Ég hugsaði alltaf að þetta hefði sömu virkni og "choke" á mótorhjólum :?:

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 14:54
af GuðjónR
Ég átti Subaru Impreza á undan og hann var alltaf orðinn funheitur á ~15 mín, sama þótt það væri 12 stiga frost úti.
Miðað við svörin sem hafa komið á þráðinn þá er þetta greinilega eðlilegt af dísel bíl, hann er með litlu 1600 vélinni og það hjálpar örugglega ekki.
Veit einhver hvað svona rafhitun kostar?

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 17:15
af slapi
Hér í Svíþjóð eru kittin með kælivatnselementi og hitablásara inní bíl frá svona 2.800skr (~ 34.000iskr) til 4.000skr (~49.000iskr) fyrir venjulega bíla þar sem þarf ekki mikið föndur til að koma þessu í. Þetta getur verið komið í fyrir sirka 6.000skr oft á tíðum(~73.500iskr).

Síðast þegar ég vissi er Stilling með umboð fyrir Calix sem er sænskur framleiðandi sem ég hef notað mikið frá og er þokkalega ánægður með.
Síðan ætti Mekonomen að getað pantað kit hannað fyrir bílinn (bæði Calix og Defa), man eftir að séð þetta í catalognum frá þeim.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 17:36
af IL2
Hvað með að profa að setja pappaspjald fyrir allan eða halfan vatnskassan? Einhverntiman heyrði maður af þvi þjoðraði fyrir diselbila i miklum kuldum.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 17:40
af slapi
IL2 skrifaði:Hvað með að profa að setja pappaspjald fyrir allan eða halfan vatnskassan? Einhverntiman heyrði maður af þvi þjoðraði fyrir diselbila i miklum kuldum.

Það bjargar ekki miklu í upphitunartíma þar sem að vatnslásinn hleypir vatninu ekki inn á vatnskassann fyrr en á ákveðnum hitastigi þegar vatnslásinn opnar. Þar til því er náð hringsólar vatnið innan vélar og síðan miðstöð.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 19:38
af littli-Jake
IL2 skrifaði:Hvað með að profa að setja pappaspjald fyrir allan eða halfan vatnskassan? Einhverntiman heyrði maður af þvi þjoðraði fyrir diselbila i miklum kuldum.



slæm hugmynd. vatnslásin í bílnum sér til þess að þú ert aðeins að hita það kælivatn sem er innan vélar þangað til að það nær hita. Síðan þegar þú værir kominn með heitan bíl ertu búin að snarminka getu bílsins til að kæla sig niður. Mundi aldrei gera þetta.

Re: Að hita upp bílinn í köldu veðri

Sent: Lau 19. Nóv 2016 21:00
af Sam
GuðjónR skrifaði:Ég átti Subaru Impreza á undan og hann var alltaf orðinn funheitur á ~15 mín, sama þótt það væri 12 stiga frost úti.
Miðað við svörin sem hafa komið á þráðinn þá er þetta greinilega eðlilegt af dísel bíl, hann er með litlu 1600 vélinni og það hjálpar örugglega ekki.
Veit einhver hvað svona rafhitun kostar?


Rotor er með verð á svona kerfi á heimasíðunni.

http://www.rotor.is/verslun/h%C3%BAsvag ... arar-220v/