Síða 1 af 1

Að hreinsa myglu úr bíl.

Sent: Mið 28. Sep 2016 19:44
af robbi553
Hæ hæ. ég er með gamla mözdu sem er búinn að sitja úti í eitthvað um 4 ár og það er myglu-paradís innan í henni, bara svona að pæla hvernig ég á að losa mig við þetta ógeð áður en bíllinn fer aftur í notkun, horfði á eitthvað myndband á YouTube og þá sagði kallin að maður ætti að nota eitthvað sem heitir biological cleaner, en ég veit ekki hvað sambærilegt efni væri kallað á Íslensku.

Re: Að hreinsa myglu úr bíl.

Sent: Mið 28. Sep 2016 19:46
af littli-Jake
Ég mundi allan daginn fara með þetta í fagmann. Hrikaleg vinna að hreinsa upp myglu.

Mundi byrja á Hreinsanda á Eldhöfðanum. Bjöggi sem rekur staðinn er rosalega hress og hjálplegur. Hjálpar líka að hann er bifreiðasmiður.

Re: Að hreinsa myglu úr bíl.

Sent: Mið 28. Sep 2016 20:05
af rattlehead
sammála

láta pro þrífa þetta. Ekki taka séns eða fara styttri/ódýru leiðina. Mygla er nasty stöff og getur farið illa með heilsuna.

Re: Að hreinsa myglu úr bíl.

Sent: Mið 28. Sep 2016 22:29
af Bartasi
littli-Jake skrifaði:Ég mundi allan daginn fara með þetta í fagmann. Hrikaleg vinna að hreinsa upp myglu.

Mundi byrja á Hreinsanda á Eldhöfðanum. Bjöggi sem rekur staðinn er rosalega hress og hjálplegur. Hjálpar líka að hann er bifreiðasmiður.

Mikið rett. Bjoggi er mjog hress. Eins og þu segir þa er hann bifriðasmiður og gæti þa sagt til um hvað væri hægt að þrifa og hvað ekki miðað við lýsinguna.

Hreinsandi er flott fyrirtæki. :happy
For með rum dýnuna mina þangað eitt sinn i þrif. Og hun kom einsog ny til baka.. mundi ekki hve hvitar dynur eiga vera.. fannst eg hafi verið að kaupa nýja :megasmile