Síða 1 af 1

Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Þri 14. Okt 2014 22:20
af GuðjónR
Púströrið fór í sundur fyrir framan hvarfakútinn, líklegast er nóg að skipta um rör þaðan og að kút eða henda þessum hvarfakút og setja aðeins lengra rör.
Hvar er ódýrast að láta gera svona?

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Þri 14. Okt 2014 22:23
af I-JohnMatrix-I
Þegar ég fór með bílinn minn í púst fyrr á árinu hringdi ég á milli staða, og fékk besta tilboðið hjá BJB í hafnarfirði. Ég hef núna farið þangað tvisvar og verið mjög sáttur með þjónustuna, mæli með þeim :happy

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Þri 14. Okt 2014 22:23
af Yawnk
GuðjónR skrifaði:Púströrið fór í sundur fyrir framan hvarfakútinn, líklegast er nóg að skipta um rör þaðan og að kút eða henda þessum hvarfakút og setja aðeins lengra rör.
Hvar er ódýrast að láta gera svona?

Pústverkstæði Einars í smiðjuhverfinu, langbestur.
Ef þú tekur hvarfakútinn þá færðu ekki skoðun, hafðu það í huga.

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Þri 14. Okt 2014 23:06
af kizi86
Yawnk skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Púströrið fór í sundur fyrir framan hvarfakútinn, líklegast er nóg að skipta um rör þaðan og að kút eða henda þessum hvarfakút og setja aðeins lengra rör.
Hvar er ódýrast að láta gera svona?

Pústverkstæði Einars í smiðjuhverfinu, langbestur.
Ef þú tekur hvarfakútinn þá færðu ekki skoðun, hafðu það í huga.

það er að segja ef bíllinn er yngri en '95 módel.. Benzinn minn er 92 árgerð og fyrrum eigandi tók hvarfakútana undan, og fékk samt skoðun..

en já back to topic, verð að vera sammála Yawnk með pústverkstæði Einars, mjög sanngjarn, hraðvirk þjónusta og góð

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Þri 14. Okt 2014 23:07
af halli7
Pústverkstæði Einars. Yfirleitt lang ódýrastur.

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Þri 14. Okt 2014 23:21
af Viktor
Mæli með Kvikk Þjónustunni í HFJ.

Þess má geta að þetta er Einar hjá Pústverkstæði Einars:


Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Þri 14. Okt 2014 23:25
af Tiger
Einar áttavilti eins og hann er kallaður (sjá youtube-myndband ) er bestur í þessu.

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Mið 15. Okt 2014 07:37
af sakaxxx
Pústverkstæði einars er gott. Pústið mitt brotnaði við hvarfakút, það kostaði 7 þús að gera við það hjá pústverkstæði einar

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Mið 15. Okt 2014 10:49
af GuðjónR
Er þetta þessi Einar sem þið eruð að tala um?
http://pustkerfi.is/

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Mið 15. Okt 2014 11:05
af andrespaba
Já, mæli með Einari. Skipti alveg um pústkerfi hjá mér í vor. Kostaði mikið minna en ég bjóst við!

edit. Einnig mjög snögg þjónusta.

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Mið 15. Okt 2014 11:43
af jonsig
Þessi verkstæði sem auglýsa sig með "ódýrustu þjónustuna" eru með crap púströr sem endist ekki út árið . Ætla ekki að nefna nein nöfn :)

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Mið 15. Okt 2014 16:06
af Garfield
Mæli með BJB í Hafnarfirði alltaf fengið gott verð og góða þjónustu.

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Mið 15. Okt 2014 16:20
af lukkuláki
BJB Hafnarfirði get mælt með þeim ... það sem þeir gera er líka gert til að endast það er amk. mín reynsla.

Re: Hvar er ódýrasta pústþjónustan?

Sent: Mið 15. Okt 2014 17:18
af Yawnk
GuðjónR skrifaði:Er þetta þessi Einar sem þið eruð að tala um?
http://pustkerfi.is/

Jább.
Hann var að enda við að skipta um hvarfakút, barka og smíðaði nýtt rör frá hvarfakút að næsta kút fyrir aftan, þetta kostaði mig í heild 28þ, ódýrasta sem ég fann annarsstaðar var minnir mig Fjöðrin pústverkstæði og þar var verðhugmyndin 35-40þ kr bara fyrir hvarfakútsskipti. ( Geri mér nú reyndar grein fyrir því að þetta er ódýr hvarfi og ódýrt efni, en hann er mjög sanngjarn og heiðarlegur )
Plús það, þá er bíllinn oftast tilbúinn samdægurs.