Síða 1 af 1

[Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 13:25
af GuðjónR
Varð fyrir því óláni að brjóta hausinn af annari skrúfunni sem heldur rammanum utan um númeraplötuna.
Ramminn var brotinn og ætlaði ég að skipta um hann, skrúfurnar haugriðgaðar og önnur gaf sig.
Hvernig er best að leysa þetta?

Önnur skrúfan virkar vel, spurningin er hvort maður bori gat og setji bara skrúfu í gegnum plastið/stálið og leysi það þannig eða hvort það sé til lím sem hægt væri að nota til að festa rammann við stuðarann.
Held það sé útilokað að ætla að borga út skrúfuna án þess að eyðileggja skrúfuganginn þar í.

Kannski er lausnin að bora út skrúfuna og þvínga síðan sverari skrúfu þar í?

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 13:32
af Nariur
Nærðu skrúfunni ekki með töng?

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 13:34
af GuðjónR
Nariur skrifaði:Nærðu skrúfunni ekki með töng?

Nei, hausinn er farinn og leggurinn er eftir inn í, ekkert til að grípa í.

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 13:37
af playman
Ertu búin að skoða á bakvið skrúfuna hvort að hún gangi eitthvað út þar?
þá gætirðu hugsanlega notað "wise grip" töng og skrúfað hana úr þannig.

Eða prufað þetta.
http://www.madelectrical.com/workshop/b ... olts.shtml
http://diyhousehelp.com/how-to/repair-m ... -lag-bolt/

Annars gætirðu svosem auðvitað borað í gegn og sett svo bara bolta og ró.

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 13:39
af slapi
Mynd
Sé ekki betur nema þú getir sett borskrúfu þarna.
Ég myndi sleppa þessum festingum og notast bara við borskrúfur
Þú ert aldrei að fara að ná boltanum eitthvað heilum held ég, þetta er besta lausnin.

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 13:40
af Lezer
Sennilega er auðveldast fyrir þig að fá þér bara svokallaða boddyskrúfu, og skrúfa þannig beint í boddy-ið. Ef þú nennir þá er hægt að taka t.d. 4-5mm bor (ef þetta er 6mm skrúfa) og bora þannig út skrúfuna. Ég myndi samt ekki nenna að standa í því, skella frekar boddyskrúfu í þetta :happy

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 13:42
af GuðjónR
Prófaði að hringja á verkstæði og kanna hvort það væri lausn á þessu, hann sagði að best væri að fá sér litla skrúfu (bodyskrúfu )og skrúfa hana í gegnum plastið sem heldur númerinu og í gegnum plastið á stuðaranum. Skiptir engu máli þó það sé aukagat þar sem þetta er alltaf falið á bak við númeraplötuna.
Held ég láti bara vaða á það!!

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 13:50
af Black
Ég hef fest plötur á bílana mína með frönskum rennilás,nautsterkt límið a þeim en samt hægt að taka plöturnar af :guy

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 13:53
af dori
Nærðu ekki lítilli skurðarskífu á dremel þarna inn til að gera rauf í skrúfuna sem þú getur náð út með "venjulegu" skrúfjárni?

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 14:00
af GuðjónR
Sterkt epoxy lím hefði örugglega virkað, það er ekki hægt að koma skurðarskífu að þessu nema rústa plastinu á stuðaranum.
Bodyskrúfa er málið, lím/franskur rennilás hefði líka virkað þar sem önnur skrúfan virkar og heldur þessu á sínum stað.

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 14:21
af konice
Bora með litlum bor og nota svo öfugugga? http://www.fossberg.is/?prodid=843
Þarf nátturulega mikið af riðolíu svo þetta losni

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 14:51
af Jon1
það er hægt að sjóða við skrúfuna og nota svo töng til að snúa hana úr , ef þú kemst í þannig græjur

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 15:11
af kizi86

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 15:16
af littli-Jake
Jon1 skrifaði:það er hægt að sjóða við skrúfuna og nota svo töng til að snúa hana úr , ef þú kemst í þannig græjur



Þú ert ekki að fara að hita mikið í kringum stuðarann. Plús að skrífan er svona 6mm. Ervitt fyrir óvanan að sjóða í það.

konice skrifaði:Bora með litlum bor og nota svo öfugugga? http://www.fossberg.is/?prodid=843
Þarf nátturulega mikið af riðolíu svo þetta losni


Þetta er lang gáfulegasta lausnin. Þarft samt að vanta þig mjög mikið og helst að byrja á því að kjörna (gera littla dælt í miðjuna þar sem þú ætlar að bora með verkfæri)

Byrjaðu samt á að drekkja þessu í riðolíu og leifa henni að vinna.

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 15:27
af GuðjónR
Ég reddaði þessu eins og sannur trésmiður!!!
Fann litlar tréskrúfu inn í bílskúr og skrúfaði plastið beint við stuðaraplastið!!
Svínvirkar, þarf ekketr svakalegt hald þar sem ekkert hvílir á þessu og boltinn hægra megin er í fínu formi.
Gaman að fá lausnirnar frá ykkur, ekki vantar hugmyndaflugið hjá sumum, franskur rennilás finnst mér snilld, efast samt um að hann héldi hérna í Kjalarnes rokinu :)

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 15:46
af worghal
dori skrifaði:Nærðu ekki lítilli skurðarskífu á dremel þarna inn til að gera rauf í skrúfuna sem þú getur náð út með "venjulegu" skrúfjárni?

þetta hefði líklegast gengið líka.

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 16:05
af beatmaster
Þú getur líka fengið öfugugga hjá Sindra http://sindri.is/%C3%B6fuguggasett-ibtjgaw0501

Samt hefðirðu bara átt að vera grand á þessu og laga þetta með gengjuviðgerðarsetti http://sindri.is/gengjuvi%C3%B0ger%C3%B ... btjgad130a

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 16:12
af GuðjónR
799. kr. fyrir fimm öfugugga, það er gjöf en ekki gjald.
Kaupi þetta sett næst þegar ég kíki við í Sindra.

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Fös 03. Okt 2014 19:22
af einarhr
Svo er náttúrulega klassi að Hnoða númerið bara á bílinn :8) helst með ryðfríu svo löggi geti ekki klippt af bílnum

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Lau 04. Okt 2014 05:11
af littli-Jake
Svosem allt í lagi að skrúfa þetta bara í. Er svo gott sem alltaf gert að framan

Re: [Brainstorm] Brotin skrúfa í númeraplötufestingu

Sent: Lau 04. Okt 2014 21:15
af jonsig
Í rafvélavrikjunninni rafsauð maður tein við brotnu skrúfuna og snéri síðan úr . Plastið yrði flott eftir rafsuðuna hehe