Síða 1 af 1

Hvar er ódýrast/best að kaupa dekk fyrir veturinn?

Sent: Þri 30. Sep 2014 14:29
af Klemmi
Sælir herramenn,

nú þarf ég að fara að setja ný dekk undir bílinn og vaknar þá upp spurningin hvert sé bezt að snúa sér? Um ræðir litla Toyotu Corolla 2003 árgerð, get sett inn frekari upplýsingar um dekkin ef þess þarf.

Ég vil auðvitað komast sem ódýrast frá þessu en horfi þó til lengri tíma litið, vil frekar kaupa dýrari dekk sem endast betur heldur en ódýrari sem endast skemur og valda víbringi og leiðindum.

Er skynsamlegt að kaupa heilsársdekk svo ég þurfi ekki að umfelga aftur næsta sumar eða er sniðugara að kaupa bara góð vetrardekk og góð sumardekk og nota hvor um sig þegar við á?

Þar sem ég er alveg grænn í þessu og veit ekkert hvaða merki eru betri en önnur, þá biðla ég til ykkar :) Er tryggður hjá Sjóvá og með einhvern hefðbundinn afslátt í gegnum þá, en ef það er einhver lítil búð sem keyrir í staðin á lægri álagningu sem ég get átt viðskipti við í staðin og komið út á svipuðu verði, þá væri það frábært.

Beztu kveðjur,
Klemmi

Re: Hvar er ódýrast/best að kaupa dekk fyrir veturinn?

Sent: Þri 30. Sep 2014 14:36
af Halli25
Þessir hafa verið að koma fínt út http://www.dekkverk.is
Ef þú ert bara í bæjarsnatti þá er heilsársdekk alveg nóg en á sumrin eyðast þau mun hraðar en sumardekk svo kannski ekki mikill sparnaður ef þú keyrir meira en í bæjarsnatti

Re: Hvar er ódýrast/best að kaupa dekk fyrir veturinn?

Sent: Þri 30. Sep 2014 14:40
af MatroX
Halli25 skrifaði:Þessir hafa verið að koma fínt út http://www.dekkverk.is
Ef þú ert bara í bæjarsnatti þá er heilsársdekk alveg nóg en á sumrin eyðast þau mun hraðar en sumardekk svo kannski ekki mikill sparnaður ef þú keyrir meira en í bæjarsnatti

það er samt alveg hægt að kaupa góð heilsársdekk sem endast bæði vel á sumrin og veturnar,

Re: Hvar er ódýrast/best að kaupa dekk fyrir veturinn?

Sent: Þri 30. Sep 2014 15:18
af Viktor
Dekkverk!

Re: Hvar er ódýrast/best að kaupa dekk fyrir veturinn?

Sent: Þri 30. Sep 2014 15:27
af cartman
Dekkverk ekki spurning

Re: Hvar er ódýrast/best að kaupa dekk fyrir veturinn?

Sent: Þri 30. Sep 2014 16:40
af einarhr
Þetta er svoldið eins og með annan búnað, þú færð það sem þú borgar fyrir.

Goodyear, Michelin, Bridgstone, og Continental eru stæðstu merkin með góða en frekar dýra vöru. Flestir ef ekki allir þessir framleiðendur eru með ódyrari undirmerki, td Goodyear er með Kelly og Sava sem undirmerki og oftar en ekki þá erfa þessi undirframleiðendur eldri hönnunir frá risunum.

Ég versla nánast alltaf við Hjólbarðaverkstæði Sigurjón (Geira) í Hátúninu, hann býður uppá á dekk frá helstu framleiðendum í öllum verðflokkum. Ég veit lítíð um Dekkverk en það fyrirtæki virðist vera með mikið úrval af tegundum en ég vill benda á að sum þessara ódýrari dekkja geta verið frekar hörð, ss hart gúmmí í þeim og hentar það ekki vel í miklum kulda þar sem þau eru gerð fyrir mildara lofstlag en aftur á móti kanski góð yfir sumartíma og slitna minna.

Um að gera að kíkja í Dekkverk og biðja um tilboð, einnig að fá tilboð hjá fleiri verkstæðum.

Ss. ekki spara of mikið, það kemur oftast í bakið á mann fyrr en síðar.

Re: Hvar er ódýrast/best að kaupa dekk fyrir veturinn?

Sent: Þri 30. Sep 2014 18:07
af Klemmi
Þakka kærlega fyrir svörin!

Mér lýst vel á Dekkverk, þá sérstaklega þegar ég fór að googla ákveðnar týpur af dekkjum og datt inn á síður sem innihalda hundruði af customer reviews.

Þó svo að þeir sem vinni á dekkjaverkstæðum viti slatta, þá hafa þeir auðvitað ekki prófað að keyra á öllum týpum af dekkjum í öllum aðstæðum, svo það hjálpaði mikið að geta litið yfir hvað mikið magn notenda voru að segja :happy

Panta mér tíma hjá Dekkverk og klára þetta fljótt og örugglega :)