nú þarf ég að fara að setja ný dekk undir bílinn og vaknar þá upp spurningin hvert sé bezt að snúa sér? Um ræðir litla Toyotu Corolla 2003 árgerð, get sett inn frekari upplýsingar um dekkin ef þess þarf.
Ég vil auðvitað komast sem ódýrast frá þessu en horfi þó til lengri tíma litið, vil frekar kaupa dýrari dekk sem endast betur heldur en ódýrari sem endast skemur og valda víbringi og leiðindum.
Er skynsamlegt að kaupa heilsársdekk svo ég þurfi ekki að umfelga aftur næsta sumar eða er sniðugara að kaupa bara góð vetrardekk og góð sumardekk og nota hvor um sig þegar við á?
Þar sem ég er alveg grænn í þessu og veit ekkert hvaða merki eru betri en önnur, þá biðla ég til ykkar

Beztu kveðjur,
Klemmi