Síða 2 af 9

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 22:00
af Frantic
Dúlli skrifaði:
Frantic skrifaði:
Dúlli skrifaði:
Frantic skrifaði:
Dúlli skrifaði: djöfulsins fáviti ! sæll, hefðir ekki átt að hleypa hann framhjá. Hef lent í svona einstaklingum og þetta er bara sorglegt að fólk lætur svona og verður að negla að bremsur. Líka það að hann leyfði þér ekki fara á vinstri akrein, sá að þú varst að skipta og það gerði hann líka ](*,)

En þetta er mjög flott vona að sjá fleiri myndbönd, hvernig græju ertu að nota í þetta ? hvernig upplausn ? hvernig endist batterý-ið ? hvernig er þetta í myrkri ?

Þetta er ekkert sérstök myndavél sem ég er með en hún lítur svona út.
Virkar ekkert sérstaklega vel í myrkri en ég held að maður sjái samt alveg hvað er að gerast enda nóg af infrared perum á þessu.
Það er batterí í tækinu en ég er bara alltaf með það í sambandi. Nenni ekki að spá í að hlaða þetta alltaf.
Kveiknar á henni þegar ég starta bílnum og slökknar líka þegar ég drep á honum.
Getur örugglega fundið betri hér.

Er akkurat búin að vera að skoða svona græjur eftir að mótorhjóla gaur svinaði á mig og ég keyrði næstum því yfir hann. Búin að vera að skoða þetta á AliExpress og DX.com þetta er allt eithvað kína dót og maður vonast að hitta á eithvað sem virkar :)

Ég einmitt splæsti í þessa vél því að það var náungi sem keyrði næstum því á mig tvisvar sinnum.
Fáránleg tilviljun að ég hitti hann aftur vikum seinna og hann tók næstum því húddið af bílnum hjá mér í annað skiptið.
Þá hugsaði ég með mér að það væri fáránlegt að vera ekki með svona myndavél í bílnum.

Þetta er bara að breytast í rússland þar sem svona tæki er bara must í bíl. Að auki ef eithvað skeður þá er þetta bara sönnun um að maður sé í rétti.

Algjörlega, vona að það séu fleiri hérna sem geta deilt myndböndum úr umferðinni.
Eru ekki einhverjir atvinnubílstjórar hérna?

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 23:49
af Olafst
biturk skrifaði:Hafa þetta â gangstéttum og eins helvítis reiðhjólin, þau eiga ekkert erindi á götur og enn síður þjóðvegi landsins!

Indriði úr fóstbræðrum skrifaði:Og hver ber ábyrgð á ofnunum hérna!!? Það er alltaf eitthvað bank í þeim!!

https://www.youtube.com/watch?v=XTXQXNRBvAA#t=57

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 00:16
af worghal
Frantic skrifaði:Eru ekki einhverjir atvinnubílstjórar hérna?

því miður eru svo margir atvinnubílstjórar sem vita ekkert um umferðalög!

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 13:52
af Jón Ragnar
hagur skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:
rapport skrifaði:Það heyrist ekkert í þessum vespum og m.v. hraðann og að að þau ættu að vera gefa þeim inn þarna, þá er ég nokkuð viss um að þetta er rafmagns.

Mér finnst þessir stígar vera fyrir fólk sem er að hjóla á takmörkuðum hraða en ekki í einhverjum keppnisgír enda eiga hjólreiðamenn ekki að hjóla þannig að það geti valdið gangandi hættu eða óþægindum.

Þessi gæji er nú ekki að hjóla hratt. Örugglega bara að hjóla heim til sín

Málið er að vespunar eiga ekki vera á göngustígum

Ekki alveg rétt ... Það er slatti af bensínvespum í umferð sem eru takmarkaðar við 30km/h og eru ekki skráningarskyldar og því ekki á númerum. Þær mega vera á gangstígum rétt eins og rafmagnsvespur og reiðhjól.

Ok það er rétt.

En það er þó lágmark að menn virði umferðarreglur á þeim

og það hafa oft bensínvespur tekið frammúr mér þegar ég er á 20+ hraða, augljóslega á MUN meiri hraða en 30 :)

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 14:13
af Jón Ragnar
worghal skrifaði:
Frantic skrifaði:Eru ekki einhverjir atvinnubílstjórar hérna?

því miður eru svo margir atvinnubílstjórar sem vita ekkert um umferðalög!

Þeir ættu að vita meira um umferðarlög þar sem í meiraprófinu er farið mjög ítarlega í umferðarlög :)

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 14:36
af worghal
Jón Ragnar skrifaði:
worghal skrifaði:
Frantic skrifaði:Eru ekki einhverjir atvinnubílstjórar hérna?

því miður eru svo margir atvinnubílstjórar sem vita ekkert um umferðalög!

Þeir ættu að vita meira um umferðarlög þar sem í meiraprófinu er farið mjög ítarlega í umferðarlög :)

"Atvinnubílstjóri" merkist ekki við meirapróf og það að hafa meirapróf læknar fólk ekki af ökuníð.

Atvinnubílstjórar eru líka þeir sem keyra sendibíla og eru þeir með verra fólki í umferðinni.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 15:38

Mjög stór hluti sendibílstjóra eru nú með meirapróf þótt þeir séu á minnaprófsbílum

Þekki alveg óhemjumagn af sendibílstjórum og þeir eru alveg jafn misjafnir og aðrir :)

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 16:55
af Dúlli
Er spenntur fyrir fleiri myndböndum :happy

Annars það var eithvað rugl myndband á netinu þar sem eithver silfurlitaður Toyota Land Cruiser er að flýja lögguna og löggan endar við að klessa bílinn að hann flippast. Minnir að ég hafi séð það á LiveLeak video.

Bætt Við :

hérna er það http://www.liveleak.com/view?i=d54_1317854396 :happy

Kann því miður ekki að ná í þetta myndband og pósta því á youtube.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 21:43
af urban
worghal skrifaði:
Frantic skrifaði:Eru ekki einhverjir atvinnubílstjórar hérna?

því miður eru svo margir atvinnubílstjórar sem vita ekkert um umferðalög!

stærstur hluti atvinnubílstjóra eru leigubílstjórar, þeir eru annsi margir frekar grófir í umferðinni.

en endilega samt ekki segja að menn sem að keyra um og yfir 100þús km kunni ekki umferðarreglurnar.

Alveg merkilegt t.d. hversu margir virðast t.d. vilja að drepast þegar að þeir fara í bilið fyrir framan bílinn hjá manni og átta sig ekki á því að það þarf smá pláss til þess að stoppa 44 - 49 tonn

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 21:45
af Danni V8
Það er allt í lagi því myndbandið er á fyrstu síðunni sem youtube linkur :D

En ég verð að vera sammála því sem Frantic sagði hérna fyrr í þræðinum, með hinmaríki og að keyra í Þýskalandi. Ég er að vísu búinn að keyra á hraðbrautum í nokkrum Evrópulöndum og það er næstum alveg eins í þeim öllum sem ég hef keyrt í, vinstri akreinin er fyrir þá sem fara hraðar og þeir sem eru ekki að fara hraðar eru ekki á vinstri akrein. Það er algjör unaður að keyra á hraðbrautum úti. Það er gamaldags hugsun í okkur Íslendingum að halda að hraðakstur sé eitt stærsta vandamálið í umferðinni.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 21:53
af urban
langstærsti gallinn við umferðina hérna á íslandi er hreinlega að það er alltof auðvelt að fá bílpróf.

ég myndi skjóta á að ca 30% af fólki sem að er með bílpróf ætti aldrei að hafa fengið það, 20% í viðbót ætti ekki að vera með það núna.

íslendingar eru upptil hópa bara því miður fávitar í umferð, sjá ekkert nema sjálfan sig og dettur ekki til hugar að gefa neinum réttinn.
tannhjóla/rennilása akstur á gatnamótum eða aðreinum er t.d. eitthvað sem að sést alltof sjaldan hérna og það að hægja á sér til þess að hleypa einhverjum inná akrein er alltof fátítt, það er einna helst gefið í þannig að bíllinn komist ekki.

Síðan er náttúrulega stefnuljósanotkun landans alveg sér á báti í fáránleika

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fös 22. Ágú 2014 21:54
af Viktor
Ástæðan fyrir því að hálft Rússland er komið með dashcams í bílana sína er hversu algengt þetta tryggingasvindl er á 0:30:

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 18:50
af oskar9
urban skrifaði:langstærsti gallinn við umferðina hérna á íslandi er hreinlega að það er alltof auðvelt að fá bílpróf.

ég myndi skjóta á að ca 30% af fólki sem að er með bílpróf ætti aldrei að hafa fengið það, 20% í viðbót ætti ekki að vera með það núna.

íslendingar eru upptil hópa bara því miður fávitar í umferð, sjá ekkert nema sjálfan sig og dettur ekki til hugar að gefa neinum réttinn.
tannhjóla/rennilása akstur á gatnamótum eða aðreinum er t.d. eitthvað sem að sést alltof sjaldan hérna og það að hægja á sér til þess að hleypa einhverjum inná akrein er alltof fátítt, það er einna helst gefið í þannig að bíllinn komist ekki.

Síðan er náttúrulega stefnuljósanotkun landans alveg sér á báti í fáránleika

ég bý á Akureyri og umferðin í RVK er bara hátíð miðan við hvernig hún er hér á AK, enginn veit hvernig tvöfalt hringtorg virkar, ef maður þarf að komast yfir á aðra akrein þá gefur hinn bíllinn oft í bara svo maður komist ekki fyrir framan hann, það er enginn vakandi yfir því að hleypa einhverjum inná sínar akreinar eða yfir á að eða fráreinar.
Þegar það kemur grænt ljós, þá ákveður fólk að setja símann í vasann og setja í fyrsta gír og lulla af stað, það komast sirka 3-4 bílar yfir gatnamótin á hverju grænu ljósi.
Á Glerárgötunni sem er tvöföld þá keyrir fólk á 50 á báðum akreinum. og svona mætti lengi telja ](*,)

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 19:17
af biturk
Og uvernig er vandamal að menn seu a 50 a baðum akreinum......þu matt ekki keira hraðar svo vandamalið er ekkert vinur

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 19:33
af beatmaster

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 19:40
af oskar9
biturk skrifaði:Og uvernig er vandamal að menn seu a 50 a baðum akreinum......þu matt ekki keira hraðar svo vandamalið er ekkert vinur

þá keyrir þú bara á 50 á hægri akrein og hefur vinstri lausa fyrir hraðari umferð eins og tíðkast allstaðar, hvernig heldur þú að stappan yrði í rvk ef þrír bílar röðuðu sér upp þvert yfir miklubrautina og keyrðu ekki einn Km/h yfir hámarskhraða, hvað ætli liði langur tími þangað til einhver myndi liggja á flautunni fyrir aftan vinstri akreinina

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 20:08
af Yawnk
beatmaster skrifaði:Talandi um atvinnubílstjóra...

https://www.facebook.com/photo.php?v=10204501419672532

Vinnandi menn eiga nú bara að fá vinnufrið frá þessum leikaraskap :snobbylaugh

0:04 - þetta öskur í manninum, er hann að deyja? meira ruglið hahaha

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 20:20
af biturk
oskar9 skrifaði:
biturk skrifaði:Og uvernig er vandamal að menn seu a 50 a baðum akreinum......þu matt ekki keira hraðar svo vandamalið er ekkert vinur

þá keyrir þú bara á 50 á hægri akrein og hefur vinstri lausa fyrir hraðari umferð eins og tíðkast allstaðar, hvernig heldur þú að stappan yrði í rvk ef þrír bílar röðuðu sér upp þvert yfir miklubrautina og keyrðu ekki einn Km/h yfir hámarskhraða, hvað ætli liði langur tími þangað til einhver myndi liggja á flautunni fyrir aftan vinstri akreinina

Þetta er ekki rvk og a þessari tilteknnu gotu liggja akreinar utfra henni an þess að hun breikki i þrjar og þar með utilokar það að hun se huxuð fyrir hraðakstur serstaklega

Þu matt samt ekki keira hraðar en 50 og ef einhver er að flauta af þvi hann vill keira ologlega verður hann bara að taka chill pill og læra umferðalog

Þar að auki er þessi tiltekna gata svo stutt tvibreið að hun er huxuð til að liðka umferp en ekki fyrir þa sem hafa ekki þolinmæði i rett um kilometer að keira a 50

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 20:57
af Gúrú
biturk skrifaði:Þu matt samt ekki keira hraðar en 50 og ef einhver er að flauta af þvi hann vill keira ologlega verður hann bara að taka chill pill og læra umferðalog

Þegar þú eða einhver sem er þér kær verður fyrir slysi eða óhappi og þarf nauðsynlega að komast leiðar sinnar vona ég að þú verðir jafn tillitssamur
í garð þeirra sem brjóta 14. grein umferðarlaga og hindra greiða ferð umferðar um vegi landsins og þú ert að vera núna.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 22:43
af biturk
Það er allt allt annað, þetta eru útúrsnúningar, þér ber skylda að víkja fyrir forgangsumferð og menn gera það þá alveg eins og á einbreiðu....eða eigum viða að loka umferð a einbreiðu til að forgangsokutæki komist orugglega?

Þetta snyst eingongu um það að ef það er 50 km hamarkshraði þa ma hinn almenni borgari ekki fara a vinstri akgrein bara til að geta komist a 60-70 af þvi honum liggur a

Aftur a moti er vinstri akgrein ekki til þess að keira hægar en hamarkshraði segir til um og menn sem keira hægar eiga að virða það og halda sig a hægri akgrein

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 23:16
af Gúrú
biturk skrifaði:Það er allt allt annað, þetta eru útúrsnúningar, þér ber skylda að víkja fyrir forgangsumferð og menn gera það þá alveg eins og á einbreiðu....eða eigum viða að loka umferð a einbreiðu til að forgangsokutæki komist orugglega?

Þú ert að snúa út úr.

Ég veit ekki hvaða svindlkóða þú ert með til að láta sjúkrabíl birtast þegar slys ber að höndum en í allmörgum tilfellum er fólk að ferðast á einkabílum sem hafa ekki blá ljós né sírenur.

Það er viðurkennt af öllum virðingaverðum aðilum að það skapar hættu að nota vinstri akreinar í annað en að aka fram úr.

Vegagerðin, lögregluembættin, ökuskólar og fleiri fyrirbæri væru bara alls ekki sammála þér. Taktu því eins og þú vilt.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 23. Ágú 2014 23:40
af Dúlli
Gúrú skrifaði:

Þetta er flott umræðu efni en hvað með að taka U-Beygju og fara á upphafs innlegið :D

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Sun 24. Ágú 2014 10:04
af biturk
Gúrú skrifaði:
biturk skrifaði:Það er allt allt annað, þetta eru útúrsnúningar, þér ber skylda að víkja fyrir forgangsumferð og menn gera það þá alveg eins og á einbreiðu....eða eigum viða að loka umferð a einbreiðu til að forgangsokutæki komist orugglega?

Þú ert að snúa út úr.

Ég veit ekki hvaða svindlkóða þú ert með til að láta sjúkrabíl birtast þegar slys ber að höndum en í allmörgum tilfellum er fólk að ferðast á einkabílum sem hafa ekki blá ljós né sírenur.

Það er viðurkennt af öllum virðingaverðum aðilum að það skapar hættu að nota vinstri akreinar í annað en að aka fram úr.

Vegagerðin, lögregluembættin, ökuskólar og fleiri fyrirbæri væru bara alls ekki sammála þér. Taktu því eins og þú vilt.

Æi gúrú ekki vera svona vitlaus

Á þessari götu keira allir á hægri akgrein á 50 á vinstri akgrein eru möguleikar á vinstri beygju nokkrir á skömmum tíma án afreina

Ef að allir á hægri akgrein keira á 50 þá má ekki taka frammúr á vinstri því að þá ertu að brjóta umferðalog með hraðaakstri

Þannig að ef allir keira á hægri á 50 þá er umferðateppa þar en vinstri tóm af því samkvt þínum rökum má bara taka frammúr á þeirri akgrein

Vinstri akgrein á þessum stað er til að liðka umferð en ekki fyrir þá sem geta ekki keirt a 50

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Sun 24. Ágú 2014 10:07
af biturk
Og já ef þú ert á einkabíl sem er hvorki með blikkljós eða sírenur þá mâttu ekki beita forgangi nema vera með veifu útum gluggan og þá þarftu að gera skil á þínum lögbrotu. Við fyrsta tækifæri á lögreglustoð og þeir meta hvort það hafi verið réttlætanlegt

Forgangstæki eru merkt, önnur verða að að fylgja umferðalögum og anda með nefinu

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Sun 24. Ágú 2014 10:57
af beatmaster
14 gr. er samt ekkert rosalega flókinn...

14. gr. Ökumaður skal vera með ökutæki sitt eins langt til hægri og unnt er með tilliti til annarrar umferðar og aðstæðna að öðru leyti.