2 video sem ég á. Það fyrra náði ég í fyrra (dagsetningin er rétt) Það fyndna er að ég var að prófa upptökuvélina í fyrsta skipti. Munaði engu að ég fengi bílinn á vinstra framhornið hjá mér
Seinna videoið er síðan í sumar, (dagsetningin er röng) Þetta er svona camper bílaleigubíll sem ákveður alltí einu að hann sé á rangri leið
Re: Ökuníðingar á Íslandi
Sent: Mið 22. Okt 2014 20:53
af Gislinn
roadwarrior skrifaði:Eruð þið ekki að grínast, er þetta virkilega hér á Íslandi??
Nei.
Re: Ökuníðingar á Íslandi
Sent: Mið 22. Okt 2014 20:58
af Frantic
Gislinn skrifaði:
roadwarrior skrifaði:Eruð þið ekki að grínast, er þetta virkilega hér á Íslandi??
Reyndar ekki á Íslandi, en samt frekar nett....eða þannig.
Re: Ökuníðingar á Íslandi
Sent: Mið 27. Maí 2015 13:17
af Frantic
Myndband af bíl frá AÞ-Þrif að fara yfir á eldrauðu:
Þetta er næstum því nákvæmlega það sama og gerðist hérna: (Sömu gatnamót, séð hinum megin frá) 00:24
Re: Ökuníðingar á Íslandi
Sent: Mið 27. Maí 2015 14:57
af steinarorri
Frantic skrifaði:Þetta er næstum því nákvæmlega það sama og gerðist hérna: (Sömu gatnamót, séð hinum megin frá) 00:24
Maður fer að huga að því hvort maður þurfi að hafa svona myndavél í bílnum :/
Re: Ökuníðingar á Íslandi
Sent: Fim 28. Maí 2015 14:13
af Frantic
Ef maður nær bara einu slysi þar sem annar ökumaðurinn ætlar að vera með leiðindi þá hefur þetta borgað sig. Konan sem keyrði yfir á rauðu i árekstrinum ætlaði að vera með leiðindi þar til henni var tjáð það að þetta væri á upptöku.
Væntanlega er bílstjórinn að fara að fá himinháa sekt eða að missa bílprófið. Held að ég fengi engan afslátt ef lögreglan væri með myndband af mér að keyra yfir gangstétt og framhjá rauðu ljósi og bílstjóri ráðherra á ekki að fá neinn heldur.
Spurning bara hvort að embættið borgi, ráðherrann persónulega eða bílstjórinn persónulega.
Re: Ökuníðingar á Íslandi
Sent: Sun 16. Ágú 2015 23:35
af dori
Lastu ekki fréttina? Það er viðtal við lögregluna. Sekt við því að keyra yfir gangstétt er 5000/15000 kr. eftir því hvort hann telst vera að valda hættu með athæfinu og svo er matsatriði hvort það sé kært fyrir að fara yfir á rauðu ljósi en það væri 15000 kr. sekt og punktur á ökuferilsskrá.
Það er s.s. líklega 30 þúsund krónur og punktur í ökuferilsskrá. Það er hvorki himinhá sekt né missir á bílprófi.
Re: Ökuníðingar á Íslandi
Sent: Mán 17. Ágú 2015 00:47
af capteinninn
dori skrifaði:Lastu ekki fréttina? Það er viðtal við lögregluna. Sekt við því að keyra yfir gangstétt er 5000/15000 kr. eftir því hvort hann telst vera að valda hættu með athæfinu og svo er matsatriði hvort það sé kært fyrir að fara yfir á rauðu ljósi en það væri 15000 kr. sekt og punktur á ökuferilsskrá.
Það er s.s. líklega 30 þúsund krónur og punktur í ökuferilsskrá. Það er hvorki himinhá sekt né missir á bílprófi.
Annaðhvort er búið að bætast við fréttina frá því að ég sá hana fyrst fyrr í kvöld eða ég skimmaði hana of hratt og sá ekki þegar talað var um sektirnar og punktinn. Annars er samt áhugavert að vita hvort einkabílstjórinn þurfi að borga sektina sjálfur eða hvort embættið geri það.