Síða 8 af 9

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Lau 30. Ágú 2014 00:28
af KermitTheFrog
rapport skrifaði:Fattaði í morgun hvað pirrar mig mikið þegar fólk ákveður að nota strætóakreinina á miklubreutina sem sína privat akrein bara því það þarf að beygja inn hjá 365.

Sá einn seinasta vetur sem fór næstum yfir MH krakka þarna á ljósunum þegar hann ætlaði að skjóta sér áfram en fattaði ekki að það var rautt á gönguljósunum.

Eg hef séð lögregluna markvisst vera að sekta fólk fyrir nákvæmlega þetta á þessum stað.

Fólk er líka að stunda þetta á nýju strætóakreininni á hafnarfjarðarvegi milli Garðabæjar og Kópavogs í átt að Reykjavík á morgnanna. Alveg óþolandi.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Sun 07. Sep 2014 22:24
af Dúlli
Er eithvað nýtt myndband komið ?

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mán 08. Sep 2014 16:03
af einarhr
Mig langaði að leggja smá orð í pung í þessari umræðu um akreinar. Ég bjó í um 8 ár í Svíþjóð og þar eru skýrar reglur um framúrakstur á vinstri og hægri akreinum . Ss. ef hámarkshraði er -50 km/klst og tvær akreinar þá má halda sig á bæði hægri eða vinstri en fólk hvatt til að halda sig vinstrameginn. Ef hámarkshraði er hærri en 50 km/klst þá er vinstri akrein íeingöngu fyrir framúrakstur og fólk hiklaust sektað og litið hornauga af öðrum bílsjórum og oftar en ekki tilkynnt af þeim til lögreglu. fyi þetta á við akreinar með 2 brautir í sömu átt.

Mér líst vel á þetta kerfi og ætti það alveg að geta virkað hér á landi, en þar sem við Íslendingar erum svo Rebel þá finnst okkur ekkert mál að brjóta umferðareglur og hvað þá að leggja ólöglega.

Lausnin er háar sektir! Að leggja ólöglega í Svíþjóð kostar lágmark 800 sek sem gera tæplega 15 þús isk og ef fólk fer að fá svona háar sektir þá á það erftir að íhuga vel næst þegar leggja ska td. á tónleikum. Það er enginn afsökun að það sé kreppa og að fólk sé blankt, bara virða lög og reglur og þá er ekert vandamál.

Peace :fly

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mán 15. Sep 2014 13:11
af Dúlli
Var að versla sambærilega myndavél, er að bíða spenntur, væri snild að sjá fleiri myndbönd :)

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Sun 28. Sep 2014 19:56
af rapport
Mynd

Félagi minn var að pósta þessu á FB...

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mán 29. Sep 2014 00:49
af capteinninn
rapport skrifaði:Mynd

Félagi minn var að pósta þessu á FB...

Þetta hlýtur að vera einhver ellismellur að stytta sér leið. Hef aldrei séð neinn undir 50 sem keyrir þessar Hondur.

Það á að draga svona bíla bara burt sem fyrst og þá lærir fólk, þoli ekki svona fífl.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mán 29. Sep 2014 00:54
af MatroX
rapport skrifaði:Mynd

Félagi minn var að pósta þessu á FB...

þessi félagi þinn er bara fáviti, gaurinn sem er skráður fyrir bílnum er 83-84 ára og kannski átti hann bara erfitt með að komast inn eða eitthvað, það eru alltaf 2 hliðar af öllum málum

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mán 29. Sep 2014 00:57
af dori
MatroX skrifaði:þessi félagi þinn er bara fáviti, gaurinn sem er skráður fyrir bílnum er 83-84 ára og kannski átti hann bara erfitt með að komast inn eða eitthvað, það eru alltaf 2 hliðar af öllum málum

Þess vegna lagði hann þannig að farþeginn kemst beint að rampinum en ekki hann sjálfur. Það meikar bara engan sense. Og það er líka hrikalega dónalegt gagnvart öðrum sem eru í svipaðri stöðu. Ég trúi ekki að þú reynir að réttlæta svona hegðun.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mán 29. Sep 2014 01:02
af trausti164
dori skrifaði:

Var hann ekki bara að grínast?

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mán 29. Sep 2014 01:05
af MatroX
dori skrifaði:
MatroX skrifaði:þessi félagi þinn er bara fáviti, gaurinn sem er skráður fyrir bílnum er 83-84 ára og kannski átti hann bara erfitt með að komast inn eða eitthvað, það eru alltaf 2 hliðar af öllum málum

Þess vegna lagði hann þannig að farþeginn kemst beint að rampinum en ekki hann sjálfur. Það meikar bara engan sense. Og það er líka hrikalega dónalegt gagnvart öðrum sem eru í svipaðri stöðu. Ég trúi ekki að þú reynir að réttlæta svona hegðun.

haha kannski var hann farðeginn en hann er ekki fyrir neinum þarna var að skoða þetta á google maps....
Mynd

Mynd

get bara ekki séð hvernig það sé hægt að kvarta yfir þessu... ég veit að það er mega pirrandi að þegar fólk leggur fyrir inngöngum en þarna sé ekkert að þessu ef t.d einstaklingurinn átti erfitt með að komast inn,

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Þri 30. Sep 2014 10:07
af Frantic
Árekstur við Háaleitisbraut.
Lét vita að þetta væri til á myndbandi og konan sem var í rétti er með símanúmer.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Þri 30. Sep 2014 11:20
af Dúlli
Já sæll, hvað var þessi jeppinn var í svo miklum órétti að það er ekki fyndið, þetta var eldrautt myndi ég segja.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 01. Okt 2014 09:00
af Frantic
Konan sem var í litla bílnum er bara heppin að jepplingurinn byrjaði ekki að bremsa örlítið seinna.
Hefði farið miklu verr.
Jepplingurinn nær að draga fáránlega mikið úr hraðanum á fáránlega stuttum tíma.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 01. Okt 2014 10:17
af FriðrikH
Hvaða máli skiptir að maðurinn á hondunni hafi verið gamall? Þá sérstaklega ætti hann að gera sér grein fyrir því að það er fullt af fólki í hans sporum sem þarf að fara þarna inn og út, en hann er þá greinilega það merkilegur að hann mál leggja þarna fyrir framan og skilja bílinn svo bara eftir og hindra för annarra. Það er einmitt svona hugsunarháttur sem er svo einkennandi fyrir marga íslendinga í umferðinni.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 01. Okt 2014 10:25
af AntiTrust
Horfiru með sömu augum á 25 ára og 83 ára einstakling?

Ég geri það ekki. Ef ég sé 25 ára einstakling leggja svona þá væri heldur betur stuttur þráðurinn og maður væri ekki lengi að kalla hann vitleysing í persónu og segj'onum að drulla sér annað. Ef ég sé 83 ára gamlann mann leggja þarna væri maður líklega heldur blíðari á manninn.

Þú þarft að vera special kind of dick til að uppefna 83 ára gamlann mann fyrir e-ð sem er oftast hægt að tengja við elliglöp. Note bene, ég veit það vel að það eru til fullt af gömlu fólki sem eru líka fávitar, en það er líka til fullt af gömlu fólki sem er ekkert nema það, gamalt - og hegðar sér eftir því.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 01. Okt 2014 10:51
af FriðrikH
Sjitt hvað ég vona að 83 ára maður með elliglöp sé ekki að skutlast sjálfur fram og til baka af Landakoti :)

Ef hann var farþegi, þá náttúrulega leggur ökumaðurinn þar sem hann hindrar ekki för annarra gamalmenna og aðstoðar 83 ára farþegan við að komast inn. Ef það er of erfitt þá veit ég að það er stutt að ná í hjólastól inni á Landakoti og lítið mál að skjótast á eftir honum á meðan sá gamli bíður.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 01. Okt 2014 21:30
af Glazier
Var þetta ekki þráður um ökuníðinga, ekki "verst lagði bíllinn"
Það er sér grúppa á facebook fyrir þá sem vilja væla um hver sé með verst lagða bílinn, FriðrikH... ættir að athuga það ;)

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 01. Okt 2014 21:31
af MatroX
FriðrikH skrifaði:Sjitt hvað ég vona að 83 ára maður með elliglöp sé ekki að skutlast sjálfur fram og til baka af Landakoti :)

Ef hann var farþegi, þá náttúrulega leggur ökumaðurinn þar sem hann hindrar ekki för annarra gamalmenna og aðstoðar 83 ára farþegan við að komast inn. Ef það er of erfitt þá veit ég að það er stutt að ná í hjólastól inni á Landakoti og lítið mál að skjótast á eftir honum á meðan sá gamli bíður.

já en hann lagði fyrir einum af 3 aðgöngum að þessari hurð þannig að hann var tæknilega séð ekki fyrir neinum....

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 01. Okt 2014 21:51
af rapport
MatroX skrifaði:
FriðrikH skrifaði:Sjitt hvað ég vona að 83 ára maður með elliglöp sé ekki að skutlast sjálfur fram og til baka af Landakoti :)

Ef hann var farþegi, þá náttúrulega leggur ökumaðurinn þar sem hann hindrar ekki för annarra gamalmenna og aðstoðar 83 ára farþegan við að komast inn. Ef það er of erfitt þá veit ég að það er stutt að ná í hjólastól inni á Landakoti og lítið mál að skjótast á eftir honum á meðan sá gamli bíður.

já en hann lagði fyrir einum af 3 aðgöngum að þessari hurð þannig að hann var tæknilega séð ekki fyrir neinum....

Það er barnabílstóll aftan jeppanum hjá þessum gamla...

Held að barnabörnin hljóti að hafa verið ´abílnum og hann inniliggjandi á Landakoti enda eru þar nær eingöngu öldrunardeildir.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 02. Okt 2014 04:47
af Danni V8
Ég var að spóla í hringtorgi um daginn og hvað haldiði að hafi gerst. Það bara gönnaði einhver Polo inní hringtorgið! Og ég þurfti að hætta að spóla í smá stund.

Helvítis ökuníðingar ](*,)

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 02. Okt 2014 07:23
af KermitTheFrog
Svona Fyrir utan það að hann var ekki að blokka eina aðgengið að hurðinni þá sé ég hvergi merkingu um að það sé bannað að leggja þarna.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 02. Okt 2014 08:49
af FriðrikH
Það er ekki heldur merki sem bannar að leggja á umferðareyjum borgarinnar.... Eins og þú vonandi veist, þá er ekki leyfilegt að leggja allstaðar þar sem ekki er skilti sem bannar það.
En já, þessi umræða er komin svolítið off-topic þó að þessi gamli kall sé greinilega óstjórnandi ökuníðingur :megasmile

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 22. Okt 2014 17:11
af Frantic
Þetta hlýtur að vera eitthvað djók!

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 22. Okt 2014 17:40
af roadwarrior
Frantic skrifaði:Þetta hlýtur að vera eitthvað djók!

Eruð þið ekki að grínast, er þetta virkilega hér á Íslandi?? :wtf

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 22. Okt 2014 18:32
af Glazier
Spurning hversu sterkum lyfjum maður þurfi að vera á til að gera þónokkrar tilraunir til að flippa bílnum við á þennan hátt... :roll: