Síða 1 af 9

Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 14:20
af Frantic
Langaði að vita hvort það væri áhugi á þræði (Thread of shame) með myndböndum af ökuníðingum á Íslandi.
Veit ekki hvort þetta hafi verið gert áður eða hvort þetta brjóti einhverjar reglur. (Einhver sem getur svarað því? Þarf að blörra númeraplötur?)

Ég væri til í að sjá öll myndbönd úr umferðinni en takmarka okkur bara við Ísland.
Endilega sendið myndbönd sem þið vitið um á YouTube.
Eins og t.d. myndbönd úr lögreglubílum og af ökuníðingum.
Ég get sjálfur sett inn eitt myndband til að starta þessu úr bílnum mínum. (Þegar ég veit að ég er ekki að brjóta einhver lög eða reglur)

Ef þú vilt vera memm þá er hægt að kaupa DashCam á Ebay.
Ég á svona myndavél og virkar ágætlega.

Ef þú lumar á myndbandi þá máttu endilega henda því á YouTube og deila því með okkur.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 16:00
af rapport

Veit samt ekki hver er níðingurinn, krakkarnir eða hjólagaurinn...

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 16:09
af Jón Ragnar
rapport skrifaði:

Veit samt ekki hver er níðingurinn, krakkarnir eða hjólagaurinn...

Krakkadjöflanir sem eiga ekki að vera á þessum fucking vespum á göngustígum.

Sýndist þetta allt vera bensínvespur sem eiga heima á götum

Fer alveg endalaust í tauganar á mér að sjá krakka á þessu á göngu/hjólastígum

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 16:47
af rapport
Það heyrist ekkert í þessum vespum og m.v. hraðann og að að þau ættu að vera gefa þeim inn þarna, þá er ég nokkuð viss um að þetta er rafmagns.

Mér finnst þessir stígar vera fyrir fólk sem er að hjóla á takmörkuðum hraða en ekki í einhverjum keppnisgír enda eiga hjólreiðamenn ekki að hjóla þannig að það geti valdið gangandi hættu eða óþægindum.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 17:15
af snaeji
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=7

Gæjinn sem á þennan hefði drepið mig eða gæjann á hinni akreininni, ef ég hefði ekki bremsað og farið út í malarkantinn þegar hann tók fram úr okkur á svona 180 í átt að ártúnsbrekkunni undir brúnni hjá húsgagnahöllinni

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 19:26
af Jón Ragnar
rapport skrifaði:Það heyrist ekkert í þessum vespum og m.v. hraðann og að að þau ættu að vera gefa þeim inn þarna, þá er ég nokkuð viss um að þetta er rafmagns.

Mér finnst þessir stígar vera fyrir fólk sem er að hjóla á takmörkuðum hraða en ekki í einhverjum keppnisgír enda eiga hjólreiðamenn ekki að hjóla þannig að það geti valdið gangandi hættu eða óþægindum.

Þessi gæji er nú ekki að hjóla hratt. Örugglega bara að hjóla heim til sín

Málið er að vespunar eiga ekki vera á göngustígum

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 19:50
af slapi
Hefði einhverju breytt að hann hefði mætt 3 strákum á hjóli

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 20:05
af Viktor

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 21:03
af gardar
Helstu níðingarnir eru þeir sem ekki kunna að keyra á vinstri akrein.
Vinstri akrein er bara fyrir frammúrakstur en ekki til þess að keyra á í lengri tíma.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 22:46
af rapport
gardar skrifaði:Helstu níðingarnir eru þeir sem ekki kunna að keyra á vinstri akrein.
Vinstri akrein er bara fyrir frammúrakstur en ekki til þess að keyra á í lengri tíma.

Líka þeir sem vilja keyra á 120 á vinstri þar sem er 80 hámarkshraði.
Hef verið á 100 upp ártúnsbrekkuna með fávita alveg í rassgatinu á mér sem svo stóð dolluna sína á miðakreininni þegar loks var hægt að skipta um akgrein í stað þess að leyfa mér að færa mig.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 22:56
af hagur
Jón Ragnar skrifaði:
rapport skrifaði:Það heyrist ekkert í þessum vespum og m.v. hraðann og að að þau ættu að vera gefa þeim inn þarna, þá er ég nokkuð viss um að þetta er rafmagns.

Mér finnst þessir stígar vera fyrir fólk sem er að hjóla á takmörkuðum hraða en ekki í einhverjum keppnisgír enda eiga hjólreiðamenn ekki að hjóla þannig að það geti valdið gangandi hættu eða óþægindum.

Þessi gæji er nú ekki að hjóla hratt. Örugglega bara að hjóla heim til sín

Málið er að vespunar eiga ekki vera á göngustígum

Ekki alveg rétt ... Það er slatti af bensínvespum í umferð sem eru takmarkaðar við 30km/h og eru ekki skráningarskyldar og því ekki á númerum. Þær mega vera á gangstígum rétt eins og rafmagnsvespur og reiðhjól.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 22:59
af appel
Þetta er pirrandi.

En maður veltir þessu fyrir sér þó. Ekki myndi maður vilja að þessir krakkar væru á umferðargötum innan um trukka og jeppa á 60-80 km hraða, held að það sé mun hættulegra fyrir alla aðila heldur en að krakkarnir séu á göngustígum.

Ég myndi frekar vilja breyta þessum rafvespum þannig að það heyrist í þeim, einsog er skylt með rafmagnsbíla, og einnig skylda krakkana að vera með skellinöðrupróf, setja 15 ára aldurstakmark á þetta. Maður hefur séð 10 ára krakka á þessu með tvo aðra farþega, enginn með hjálm, farandi yfir götur án þess svo mikið sem líta til hliðanna (án gríns, ég þurfti einu sinni að hemla nokkuð vel til að hleypa svona vitleysingum yfir).

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 23:02
af Frantic
gardar skrifaði:Helstu níðingarnir eru þeir sem ekki kunna að keyra á vinstri akrein.
Vinstri akrein er bara fyrir frammúrakstur en ekki til þess að keyra á í lengri tíma.

Þetta! :happy
Ég hélt að ég væri dáinn og farinn til himna þegar ég keyrði á autobahn-anum í Þýskalandi.
Þar hlýtur ökukennslan að vera á öðru stigi en hér því það er algjörlega frábært að ferðast á bíl þarna.
Svo kom ég aftur hingað og ég hef ekki ennþá náð að venjast aftur vitleysingunum á vinstri akrein.
Það kemur að því að ég kaupi mér one-way ticket til Deutschland.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Mið 20. Ágú 2014 23:53
af capteinninn
Frantic skrifaði:

Ég vill meina að það eigi að breyta kerfinu hérna þannig að maður fari í ökumat á 3-5 ára fresti.
Það myndi vera bara eitthvað lögbundið hvað það mætti kosta mikið (~5000) og það yrði ekki tekið af manni prófið eða neitt þótt maður næði því ekki (nema auðvitað að maður væri alvarlega vanhæfur til aksturs). Ef maður næði ekki ökumatinu þyrfti maður bara að taka það aftur innan 2 vikna eða eitthvað álíka.
Við 60 ára aldur myndi tíminn milli ökumata minnka niður í 2-3 ár.

Þetta ökumat yrði aðallega til að impra á atriðum eins og að keyra bara á vinstri akrein ef maður er að taka framúr og að færa sig ef einhver kemur að aftan hraðar en maður er sjálfur að keyra á og allskonar fleiri hluti.

Ökumatið fyrir eldra fólkið yrði líka betra því þá þyrfti ekki að standa í því veseni að láta fjölskyldu og ættingja sannfæra þau sem ekki geta keyrt lengur um að gefa upp prófið sitt. Ég veit um mörg dæmi sem það hefur farið illa fyrir utan það að eldra fólk í umferðinni kann oft ekki nógu vel umferðareglur og sér ekki jafn vel (að minni hlutdrægu og persónulegu reynslu, gef frískot á mig fyrir að nota persónulega reynslu en ekki nein statistics hér). Því finnst oft að það sé verið að taka af því ákveðið frelsi og sjálfstæði og það er auðvitað að einhverju leyti rétt en ég myndi telja að það væri auðveldara ef það væri gert af einhverju kerfi frekar en af fjölskyldunni eða af þeirra eigin ákvörðun.

Bílpróf er ekki nein grundvallarmannréttindi og það ætti ekkert að vera að því að borga svona smáa upphæð með nokkurra ára millibili, ég held að þetta myndi líka bæta umferðarmenninguna talsvert því þá myndi fólk fá ábendingar um hvað betur mætti fara í akstri hjá þeim án þess að stress kæmi með því að þú gætir misst prófið eða neitt slíkt.
Ég er annars með réttindi á nokkrar gerðir af farartækjum og ég myndi glaður borga þennan smápening til að bæta umferðarmenninguna hérna.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 00:32
af rapport
capteinninn skrifaði:

Sammála...

Að hafa gild ökuréttindi er ekki sjálfgefið.

Öryrkjar þurfa að koma í mat oftar en ökumenn (þetta var skrítin setning)

En sjá t.d. frétt - http://www.visir.is/einfaettur-regluleg ... 0660303072

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 00:54
af AntiTrust
Staðreyndin er bara sú að eini raunhæfi staðurinn fyrir svona rafvespur eru hjólastígar. Þá er ég að tala um hjólastíga sem eru nær eingöngu hjólastígar. Ekki umferðargötur, og EKKI gangstéttir! Það að það sé afskaplega lítið af hjólastígum á Íslandi er auðvitað vandamál út af fyrir sig en þar til þeir eru gerðir þá eiga þessar rafvespur ekki að vera leyfðar hérlendis. Ekki er þetta tæki til að hjálpa krökkum í dag að halda sér í kjörþyngd sem er nógu alvarlegt og útbreitt vandamál út af fyrir sig.

Þetta eru alltof þung og hröð tæki til þess að eiga nokkuð erindi á gangstéttir, ekkert frekar en önnur vélhjól, hljóðlaus eða ekki. Það er bara tímaspursmál þar til það verður alvarlegt slys af slíkri vespu, og þá fyrst munum við sjá reglugerðir í kringum þetta.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 08:01
af biturk
Hafa þetta â gangstéttum og eins helvítis reiðhjólin, þau eiga ekkert erindi á götur og enn síður þjóðvegi landsins!

Já eða banna þetta þar til það eru komnir hjólreiðastígar, ótryggð ökutæki eiga ekki heima með almennri umferð

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 11:51
af stefhauk
Var nú bara að labba útí bíl heima hjá mér í gær þegar það kemur maður á rafvespu á bullandi ferð á móti mér á gangstéttinni hann var að keyra mun hraðar en bílarnir á götunni og þarna er 30 km/h. stórhættuleg kvikindi.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 13:33
af rapport
stefhauk skrifaði:Var nú bara að labba útí bíl heima hjá mér í gær þegar það kemur maður á rafvespu á bullandi ferð á móti mér á gangstéttinni hann var að keyra mun hraðar en bílarnir á götunni og þarna er 30 km/h. stórhættuleg kvikindi.

Ef einhver svona mælist á meira en 25, þá ætti að vera feit sekt, enda ógnar viðkomandi gangandi umferð

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 20:00
af Frantic
Mitt fyrsta myndband.
Veit að þetta er ekki það alvarlegasta það sem maður lendir í en það er rosalega þreytandi að keyra í kringum svona tillitslaust lið.
Þar sem þetta er Thread of Shame þá tilnefni ég OG-150.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 20:03
af Dúlli
Frantic skrifaði:Mitt fyrsta myndband.
Veit að þetta er ekki það alvarlegasta það sem maður lendir í en það er rosalega þreytandi að keyra í kringum svona tillitslaust lið.
Þar sem þetta er Thread of Shame þá tilnefni ég OG-150.
djöfulsins fáviti ! sæll, hefðir ekki átt að hleypa hann framhjá. Hef lent í svona einstaklingum og þetta er bara sorglegt að fólk lætur svona og verður að negla að bremsur. Líka það að hann leyfði þér ekki fara á vinstri akrein, sá að þú varst að skipta og það gerði hann líka ](*,)

En þetta er mjög flott vona að sjá fleiri myndbönd, hvernig græju ertu að nota í þetta ? hvernig upplausn ? hvernig endist batterý-ið ? hvernig er þetta í myrkri ?

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 20:33
af Frantic
Dúlli skrifaði: djöfulsins fáviti ! sæll, hefðir ekki átt að hleypa hann framhjá. Hef lent í svona einstaklingum og þetta er bara sorglegt að fólk lætur svona og verður að negla að bremsur. Líka það að hann leyfði þér ekki fara á vinstri akrein, sá að þú varst að skipta og það gerði hann líka ](*,)

En þetta er mjög flott vona að sjá fleiri myndbönd, hvernig græju ertu að nota í þetta ? hvernig upplausn ? hvernig endist batterý-ið ? hvernig er þetta í myrkri ?

Þetta er ekkert sérstök myndavél sem ég er með en hún lítur svona út.
Virkar ekkert sérstaklega vel í myrkri en ég held að maður sjái samt alveg hvað er að gerast enda nóg af infrared perum á þessu.
Það er batterí í tækinu en ég er bara alltaf með það í sambandi. Nenni ekki að spá í að hlaða þetta alltaf.
Kveiknar á henni þegar ég starta bílnum og slökknar líka þegar ég drep á honum.
Getur örugglega fundið betri hér.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 20:35

Er akkurat búin að vera að skoða svona græjur eftir að mótorhjóla gaur svinaði á mig og ég keyrði næstum því yfir hann. Búin að vera að skoða þetta á AliExpress og DX.com þetta er allt eithvað kína dót og maður vonast að hitta á eithvað sem virkar :)

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 21:56
af Frantic
Dúlli skrifaði:

Ég einmitt splæsti í þessa vél því að það var náungi sem keyrði næstum því á mig tvisvar sinnum.
Fáránleg tilviljun að ég hitti hann aftur vikum seinna og hann tók næstum því húddið af bílnum hjá mér í annað skiptið.
Þá hugsaði ég með mér að það væri fáránlegt að vera ekki með svona myndavél í bílnum.

Re: Ökuníðingar á Íslandi

Sent: Fim 21. Ágú 2014 21:58

Þetta er bara að breytast í rússland þar sem svona tæki er bara must í bíl. Að auki ef eithvað skeður þá er þetta bara sönnun um að maður sé í rétti.