Síða 1 af 1

Kaupa nýjann (notaðan) bíl eða keyra minn út?

Sent: Þri 05. Ágú 2014 15:42
af billythemule
Hæ,

Ég á gamlan bíl sem er þannig séð í lagi, er með skoðun og á væntanlega eftir endast nokkur ár í viðbót. Bíllinn er Wolkswagen Golf GL 1998, beinskiptur, er ekinn 130.000 km, lakkið er sæmilegt og hann hefur 1600 vél. Þetta módel hefur nánast engann aukabúnað fyrir utan samlæsingar, er þriggja dyra og án ABS. Ég keyri ekkert sérstaklega mikið svo þessvegna er hann ekinn svona lítið. Ég geri allar minniháttar viðgerðir sjálfur. Spurningin er hvort það sé þess virði að færa mig yfir í Toyota Avensis 1999 sem er með allan pakkann, ABS, 4 dyr, rafmagn í rúðum, beinskiptur, ekinn 150.000 km, 1600 vél, gott lakk og gott ástand (staðfest). Sá bíll mun kosta mig 350 þúsund en ég mun væntanlega fá sáralítið fyrir minn þar sem hann er næstum því útdauður á götunni (veit um kannski nokkra hér í Reykjavík) og bíllinn er hættur að sjást á vöku þar sem þeir eru flestir löngu ónýtir. Pabbi á Toyota Corolla sem er ekinn 200.000 km og allt hefur enst mikið lengur í honum heldur en mínum golf þannig að gæðamunurinn er mikill. Ef ég skipti þarf ég að rífa hátalara settið úr og færa yfir. Hvað segir liðið um þetta?

Re: Kaupa nýjann (notaðan) bíl eða keyra minn út?

Sent: Þri 05. Ágú 2014 17:06
af rapport
Ef þetta er fjölskyldubíll þá má skoða að skipta, upp á öryggið og plássið að gera.

Ef þetta er bara bíll fyrir þig, þá endilega keyra hann út og nota tímann til að spara peninga ef þess er kostur.

Þegar rafmagnsbílar verða vinsælli og núna þegar innflutningur á nýjum bílum eykst aftur, þá verða notaðir bílar mun hagstæðari í innkaupum, en líklega töluvert dýrari í almennum rekstri.

Re: Kaupa nýjann (notaðan) bíl eða keyra minn út?

Sent: Þri 05. Ágú 2014 18:19
af Yawnk
Fullt af svona Golfum á götunni, ef þetta er bara ekið 130þ og er ekki að hrynja í sundur af ryði eins og flestir, keyrðu þetta bara út, hann á nóg eftir!

Re: Kaupa nýjann (notaðan) bíl eða keyra minn út?

Sent: Þri 05. Ágú 2014 19:15
af siggik
held að þú sért eitthvað að ruglast, nóg til af 4gen golfum í umferðinni, á einn þannig sjálfur, og þetta kemur í vöku þá hverfur þetta jafnóðum

þú hlýtur að vera tala um 1988 ?

ef þú þarft 4dyra bíl með ABS og öllu þá er um að skipta, en afhverju ef þessi dugar þér og þú keyrir lítið ?

Re: Kaupa nýjann (notaðan) bíl eða keyra minn út?

Sent: Þri 05. Ágú 2014 19:21
af Labtec
siggik skrifaði:held að þú sért eitthvað að ruglast, nóg til af 4gen golfum í umferðinni, á einn þannig sjálfur, og þetta kemur í vöku þá hverfur þetta jafnóðum

þú hlýtur að vera tala um 1988 ?

ef þú þarft 4dyra bíl með ABS og öllu þá er um að skipta, en afhverju ef þessi dugar þér og þú keyrir lítið ?

Ef þetta væri ´88 MK2 Golf ekinn eingöngu 130 þús þá væri það gullmoli í dag
hann er að liklegast tala um MK3, 1998 var siðasta árið sem MK3 var til sölu og MK4 kom á markað

Re: Kaupa nýjann (notaðan) bíl eða keyra minn út?

Sent: Þri 05. Ágú 2014 19:23
af Yawnk
Labtec skrifaði:

Líka fullt til af MK3 á götunni, átti einn slíkan grip fyrir stuttu og ég er alltaf að sjá þessa bíla út um allt, því miður :-k

Re: Kaupa nýjann (notaðan) bíl eða keyra minn út?

Sent: Þri 05. Ágú 2014 20:02
af billythemule
Takk fyrir svörin. Ég hef ákveðið að bíða með bílakaup og leggjast í nokkrar endurbætur í staðinn.

Re: Kaupa nýjann (notaðan) bíl eða keyra minn út?

Sent: Mið 06. Ágú 2014 04:29
af Labtec
Yawnk skrifaði:
Labtec skrifaði:
siggik skrifaði:held að þú sért eitthvað að ruglast, nóg til af 4gen golfum í umferðinni, á einn þannig sjálfur, og þetta kemur í vöku þá hverfur þetta jafnóðum

þú hlýtur að vera tala um 1988 ?

ef þú þarft 4dyra bíl með ABS og öllu þá er um að skipta, en afhverju ef þessi dugar þér og þú keyrir lítið ?

Ef þetta væri ´88 MK2 Golf ekinn eingöngu 130 þús þá væri það gullmoli í dag
hann er að liklegast tala um MK3, 1998 var siðasta árið sem MK3 var til sölu og MK4 kom á markað

Líka fullt til af MK3 á götunni, átti einn slíkan grip fyrir stuttu og ég er alltaf að sjá þessa bíla út um allt, því miður :-k

Enda finir bílar, ekkert að þeim
Átti MK2 golf fyrir 2 árum, ekkert rafmagn, ekkert vesen, fór alltaf í gang, eina ástæða akkuru ég losaði mig við bilinn var að maður þurfti kaupa fjöldskyldubíl

Re: Kaupa nýjann (notaðan) bíl eða keyra minn út?

Sent: Mið 06. Ágú 2014 10:06
af Jón Ragnar
Flest allir Golfar eru solid bílar sem endast lengi

Ég ætti að þekkja það af reynslu

Búinn að eiga fullt af þessu

2x Mk4
2x Mk3 Vento(Golf með skotti)
2x Mk1