Að tengja þokuljós

Allar tengt bílum og hjólum

Höfundur
blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1753
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Að tengja þokuljós

Pósturaf blitz » Fös 14. Feb 2014 11:23

Er að spá í að henda þokuljósum í bíl sem kom ekki með þeim orginal (en þau komu á dýrari týpunni).

Þessar reglur gilda um þokuljós, úr reglugerð um gerð og búnað ökutækja

(21) Þokuljós.
Litur: Skal vera hvítur eða gulur.
Dreifing: Ljósið skal dreifast vel til hliðanna og hafa greinileg lárétt birtumörk.
Staðsetning: Ljósker skulu vera framan á ökutækinu. Hæð skal vera a.m.k. 250 mm en ekki meiri en hæð lágljóskera. Fjarlægð frá ystu brún má ekki vera meiri en 400 mm.
Stilling og ljósstyrkur: Ljóskerin skal vera hægt að stilla nákvæmlega á auðveldan hátt. Ljós skal ekki lýsa lengra fram á veginn en lágljós viðkomandi ökutækis. Mesta afl peru sem nota má í hvort ljósker er 70 W.
Tenging: Ljósker skulu tengd stöðuljóskerum um eigin rofa.

Núna eru flest kit sem ég hef séð fyrir svona þokuljós þannig að þetta er bara tengt beint í rofa inní bíl og er ekki látið tengjast aðal- eða stöðuljósum á nokkurn hátt - það er væntanlega ólöglegt?

PS4

axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1780
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 75
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja þokuljós

Pósturaf axyne » Fös 14. Feb 2014 11:55

blitz skrifaði:Tenging: Ljósker skulu tengd stöðuljóskerum um eigin rofa.

Núna eru flest kit sem ég hef séð fyrir svona þokuljós þannig að þetta er bara tengt beint í rofa inní bíl og er ekki látið tengjast aðal- eða stöðuljósum á nokkurn hátt - það er væntanlega ólöglegt?

það á eingöngu að nota þokuljós einsog nafnið gefur til kynna í þoku. Því er mjög eðlilegt að þau séu á eigin rofa.
Gæti verið gert ráð fyrir ljósunum í öryggisboxinu og gætir því tengd þangað staðinn fyrir beint inná geymi, þá ertu öruglega kominn með tengingu gegnum stöðuljós, þ.e. það drepst á ljósunum þegar svissað er af.

Electronic and Computer Engineer

Höfundur
blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1753
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja þokuljós

Pósturaf blitz » Fös 14. Feb 2014 12:09

axyne skrifaði:

Já enda er pointið með því að bæta þeim við einmitt að nota við keyrslu utan á landi. Er þetta þá rétt tengt ef það er settur relay milli stöðuljósa og þokuljósa þannig að það sé ekki hægt að kveikja á þokuljósum nema að stöðuljós séu logandi?

PS4

axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1780
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 75
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja þokuljós

Pósturaf axyne » Fös 14. Feb 2014 12:16

já, það væri eitthvað í áttina sem ég myndi gera. Tjekkaðu samt inní öryggisboxið hvort þú finnir pláss fyrir öryggi/relay fyrir þokuljós og ef þú ert heppin þá er wireloom og allt klárt fyrir ljós.

Annað, ef ég myndi giska þá er ekkert ólöglegt að skítmaxa ljósin hvernig sem er. þar sem þetta er aukabúnaður ekki reglubundinn búnaður...

Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

Legolas
Geek
Póstar: 818
Skráði sig: Fim 22. Júl 2004 22:18
Reputation: 2
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja þokuljós

Pósturaf Legolas » Mán 12. Jan 2015 09:36

HATA þokuljós

INTEL Core QuadCore i5-6600k @4.3GHz : GIGABYTE Z170x-Gaming 3 G1 (Skylake) : GIGABYTE GTX1060 G1 GAMING 6GB :
CORSAIR Vengeance LPX 2x8GB DDR4 3.000MHz : BenQ EX3501R
+ DELL P2714H

Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 976
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja þokuljós

Pósturaf brain » Mán 12. Jan 2015 12:30

Vertu viss um að þegar þú ferð með bílinn í skoðun, þá munu þeir sannreyna að það sé rétt tengt.

Betra að vanda þetta og hafa löglegt.

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja þokuljós

Pósturaf Viktor » Mán 12. Jan 2015 12:40

Þetta ætti að vera mjög einfalt.

Þú tengir vír við stöðuljósavírinn(+) yfir í rofa. Úr rofanum í þokuljós. Úr þokuljósi í stöðuljósavírinn(-).

Mynd

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Höfundur
blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1753
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Að tengja þokuljós

Pósturaf blitz » Mán 12. Jan 2015 12:51

Löngu búinn að tengja þetta löglega.

Þetta er ársgamall þráður :happy

PS4