Síða 1 af 1

Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Fös 23. Ágú 2013 12:50
af Yawnk
Sælir félagar, ég er að leita af hliðarlista á farþegahurð á 1999 Honda Civic hatchback..

Búinn að senda á partasolur.is fékk 4 svör þar og allt neikvætt.
Búinn að athuga með Bílapartasalan Ás og ekkert þar.
Búinn að athuga í umboðinu, og það kostar nú einungis sautján þúsund krónur.
Búinn að athuga í Vöku. *
Búinn að hringja í allar sölurnar á partar.net

Endilega nefnið allar partasölur sem ykkur dettur í hug!

http://mynda.vaktin.is/image.php?di=7MW5 - Hér er mynd af því sem mig vantar á bílinn

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Fös 23. Ágú 2013 12:51
af Kristján
VAKA og eru ekki einhverjir bílar hjá Krók sem má rífa af?

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Lau 24. Ágú 2013 02:21
af MatroX
ég á svona lista eitthverstaðar skal checka á þvi á mrg

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Lau 24. Ágú 2013 02:25
af eriksnaer

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Lau 24. Ágú 2013 08:54
af Arena77
Japanskar vélar og partar í Hafnarfirði þeir sérhæfa sig í hondu.

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Lau 24. Ágú 2013 12:10
af Yawnk
Frábært!
Takk fyrir aðstoðina!

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Fim 29. Ágú 2013 22:05
af Yawnk
Hringdi í allar partasölurnar sem ég fann, allar á Partar.net og allt sem ég fann, og ekki neitt, vantar enn :/

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Fim 29. Ágú 2013 22:06
af I-JohnMatrix-I
Ertu eitthvað búinn að skoða ebay ? oft hægt að fá svona lista á allskonar bíla á slikk þar.

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Fim 29. Ágú 2013 22:11
af Yawnk
I-JohnMatrix-I skrifaði:Ertu eitthvað búinn að skoða ebay ? oft hægt að fá svona lista á allskonar bíla á slikk þar.

Hef ekki gert það enn, var að vonast til að þurfa ekki að standa í því :-k

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Fös 30. Ágú 2013 16:49
af Yawnk
Er ekki einhver sem á svona eða þekkir einhvern sem hefur rifið svona bíl, eða á frænda sem á vin sem á bróðir sem var að rífa svona og er að selja í varahluti?

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Fös 30. Ágú 2013 17:17
af vargurinn
sorry fyrir off topic, en djöfull er þessi honda nett

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Fös 30. Ágú 2013 19:11
af Yawnk
vargurinn skrifaði:sorry fyrir off topic, en djöfull er þessi honda nett

:) Þér er alveg fyrirgefið fyrir off topicið!! Takk! ;D

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Fös 30. Ágú 2013 20:26
af bigggan
Kikt á mekonomen.is og séð hvort þu finnur hlutin sem þu vantar þar á heimasiðan þeirra. En það er nytt og ekki notað.

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Mán 23. Sep 2013 02:49
af Danni V8
http://www.live2cruize.com

*edit* Úps, tók ekki eftir því strax að þetta er mánaðar gamall þráður..

Re: Bílapartasölur? [Vantar lista á Hondu Civic]

Sent: Mán 23. Sep 2013 06:27
af demaNtur
https://www.facebook.com/groups/250215358347495/

Sennilega finnuru þetta þarna :)