Síða 27 af 31

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mið 02. Júl 2014 00:00
af demaNtur
Mynd

Ákvað að fullorðnast smá og fá mér e39 520d turbo+intercooler.. :megasmile

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Sun 27. Júl 2014 19:11
af Glazier
Var að versla mér þennan í dag !
Mjööög sáttur með hann, virkilega vel farinn á allan hátt.

BMW 320d SSK, 2006 árgerð.

Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Þri 07. Okt 2014 01:44
af Prentarakallinn
Þá er maður finally búinn að kaupa sér bíl

Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Þri 07. Okt 2014 07:45
af kizi86
Á núna: jeep Cherokee 2.5L sport `93
Mercedes Benz E200 1986
Mercedes Benz E300 1992 (var að kaupa hann í síðustu viku)

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Sun 21. Des 2014 21:27
af pattzi
Ég og unnustan eigum eins og er

Polo 2000 árgerðina sem er aldrei þessu vant í lagi meðan hinn er ókeyranlegur
Mynd

Polo 2000 árgerðina sem er aldrei þessu vant í lagi meðan hinn er ókeyranlegur

Toyota Corolla 1996
Braut pústið á honum í öllum snjónum sem var hér og það liggur bara í jörðinni undir bilnum fyrir utan heima :/
Mynd


Er að reyna kaupa einhvað nýrra fyrir okkur á næstu mánuðum

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Þri 23. Des 2014 20:58
af Yawnk
Mynd
Ég á þennan..
1999 Honda Civic VTi 1.6

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mið 24. Des 2014 05:21
af Thormaster1337
Yawnk skrifaði:[Mynd]http://i.imgur.com/4FYXchI.jpg[/Mynd]
Ég á þennan..
1999 Honda Civic VTi 1.6


Bara flottur bíll!

makes me miss my vtec now :( helvitis snjór og salt , langar i sumar og taka hann útur geymslu.

Mynd
vetrarbúningurin , stendur svona í vetur [-(
Mynd
og sumarskórnir :wink:

Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mið 24. Des 2014 13:42
af Black
Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mið 07. Jan 2015 00:49
af Arnarmar96
báðir mínir í augnablikinu! :)

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mið 07. Jan 2015 04:22
af Elisviktor
Volkswagen passat TDI (dísel) 2008

Nissan 300zx TwinTurbo 1990

Ford Econoline 351 windsor (5,8L bensín) 1991 - húsbíll

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Lau 10. Jan 2015 20:28
af lukkuláki
Ég er fjölskyldumaður þá kaupir maður ekki hvað sem er :)

SKODA.jpg
SKODA.jpg (71.25 KiB) Skoðað 7038 sinnum

Var að fá mér þennan Skoda Oktavia 1,9 ltr. Diesel sjálfsskiptur. 2007 árgerð ekki ekinn nema 66 þúsund km !
Mjög góður bill og sér ekki á honum.

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 13:02
af Halli25
lukkuláki skrifaði:Ég er fjölskyldumaður þá kaupir maður ekki hvað sem er :)

SKODA.jpg

Var að fá mér þennan Skoda Oktavia 1,9 ltr. Diesel sjálfsskiptur. 2007 árgerð ekki ekinn nema 66 þúsund km !
Mjög góður bill og sér ekki á honum.

Á eins nema Blágráan og aðeins meira keyrðan :) nálgast 200 þúsund :)
Flottir bílar sérstaklega með eyðsluna sem er sjúklega lág miðað við 2007 bíl.. ég er að rúlla í kringum 5 í blönduðum akstri Hveragerði-Rvk.

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 16:08
af B0b4F3tt
Ég verslaði mér þennan í apríl. Er mjög sáttur við hann og eyðslan er frekar lítil. Þetta er 1.6 dísil, beinskiptur.
10269592_10202994971226646_8254287094394313740_n.jpg
10269592_10202994971226646_8254287094394313740_n.jpg (491.41 KiB) Skoðað 6895 sinnum

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 17:15
af Blamus1
Var búinn að gleyma Hondunni :D Setti hana í geymslu haustið 2013

1999 Honda Civic Vti

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 17:57
af GullMoli
Þessi er ennþá sprækur. Datt í 400.000 km um daginn og fékk sömuleiðis 16 skoðun athugasemdalaust :)

Mynd
Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 18:07
af Orri
GullMoli skrifaði:Þessi er ennþá sprækur. Datt í 400.000 km um daginn og fékk sömuleiðis 16 skoðun athugasemdalaust :)

En fyndið, minn var einmitt að detta í 400.000 km um daginn líka! :D
Minn er reyndar aðeins yngri sýnist mér.. :sleezyjoe
10492210_10205900110240736_957812685943137103_n.jpg
10492210_10205900110240736_957812685943137103_n.jpg (39.41 KiB) Skoðað 6843 sinnum

_DSC0006-1800.jpg
_DSC0006-1800.jpg (308.97 KiB) Skoðað 6843 sinnum

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 18:16
af GullMoli
Orri skrifaði:
GullMoli skrifaði:Þessi er ennþá sprækur. Datt í 400.000 km um daginn og fékk sömuleiðis 16 skoðun athugasemdalaust :)

En fyndið, minn var einmitt að detta í 400.000 km um daginn líka! :D
Minn er reyndar aðeins yngri sýnist mér.. :sleezyjoe


400k klúbburinn :happy

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 21:35
af Gúrú
Ótrúlega fallegur 400 þ. km. E-Class. Búið að heilsprauta hann á einhverjum tímapunkti?

Ég er á '03 318i E46 sem ég kann mjög vel við.

Mynd

Mynd

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 22:16
af lukkuláki
Gúrú skrifaði:Ótrúlega fallegur 400 þ. km. E-Class. Búið að heilsprauta hann á einhverjum tímapunkti?

Ég er á '03 318i E46 sem ég kann mjög vel við.

Mynd


Fallegur bíll ég er eiginlega í sjokki yfir að honum sé ekki lagt skáhallt í amk. 2 stæði :dontpressthatbutton

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 22:33
af stefhauk
Fyrrum leigubíll þá eða Orri ?

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 23:10
af JohnnyRingo
Gúrú skrifaði:Ég er á '03 318i E46 sem ég kann mjög vel við.

Mynd


Ég hef alltaf verið með massift hardon fyrir E46 bodyinu, hinsvegar hef ég heyrt um svolítið mikið af fólki sem kaupir oftar varahluti í þá en bensín sem hefur fælt mig svolítið frá því, en þá svosem komum við bara á umræðuna að allir bílar bila.

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mán 12. Jan 2015 23:22
af Gúrú
JohnnyRingo skrifaði:hinsvegar hef ég heyrt um svolítið mikið af fólki sem kaupir oftar varahlutir í þá en bensín sem hefur fælt mig svolítið frá því


Kýs að horfa á það þannig að það sé bara vegna þess að bíllinn er svo sparneytinn. :lol:

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Mið 14. Jan 2015 00:50
af Orri
Gúrú skrifaði:Ótrúlega fallegur 400 þ. km. E-Class. Búið að heilsprauta hann á einhverjum tímapunkti?

Þakka þér fyrir! :D
En nei, ekki enn :) Hann er rosalega heill og vel með farinn þessi, vel þrifinn og reglulega bónaður.
Þrátt fyrir það sést nú smá á lakkinu (svosem viðbúist eftir svona mikla keyrslu) og stefni ég á láta sprauta hann í vor. Er líka að skoða það að kaupa facelift framstuðara og grill á hann í leiðinni, svona til að yngja hann aðeins upp að framan :)

stefhauk skrifaði:Fyrrum leigubíll þá eða Orri ?

Jú heyrðu, svo mikið er víst :sleezyjoe

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Þri 24. Feb 2015 03:02
af Arnarmar96
Mínir 2. 2001 1800 Almera og 94' MMC Pajero 33" var að detta í 337þ um daginn!


my cars.jpg
my cars.jpg (53.18 KiB) Skoðað 6517 sinnum

Re: Hvernig bíl eigiði ?

Sent: Þri 24. Feb 2015 03:12
af Danni V8
Elska hvað það er hægt að keyra þessa Benza alveg endalaust! Veit um nokkra BMW-a sem ná þessu en ekki næstum því eins marga.

Annars lét ég rauða djásnið mitt af hendi í fyrrasumar til þess að fjármagna skólagöngu.

Rúlla um á þessum hérna á meðan, 1996 E36 328i bsk allt original, ekki swap bíll.
Mynd

Var upprunalega hugsaður einungis sem skemmtilegur skólabíll, en þetta er svo fanta góður bíll ef maður horfir framhjá ónýta afturgaflinum að ég á sennilega eftir að spandera öllum peningunum mínum í að láta laga ryðið :lol: