Frost skrifaði:GuðjónR skrifaði:Allt of dýr þessi, góðir bílar já, en þegar þú ferð yfir 200k þá er það tímareim, svo fljótlega eftir það þá er það túrbínan og svo spíssar...rúllar hratt upp í milljón þegar það byrjar.
Það er nánast eins og þú sért að tala um alla nútíma dísel bíla...
Ef þetta væri annað merki með tímareim þá þarftu samt að skipta um tímareim.
Þegar þú finnur framleiðanda sem hefur búið til spíssa sem endast líftíma bílsins (þeir eru ekki margir, BOSCH, Delphi, Continental, DENSO) máttu senda mér einkaskilaboð.
Túrbínur eru eins og bremsur, slithlutir. Þær endast ekki endalaust.
Þetta eru góðir bílar sem þægilegt er að keyra og eyða þannig séð lítið. Þeir haldast í verði vegna þess.
Þessi athugasemd frá þér er tilgangslaus.
Ég var ekki að rakka bílinn. Þetta eru fínir bílar, það sagði ég líka.
En þegar díselbíll er orðinn 10 ára og nálgast eða fer yfir 200k, þá fer kostnaður að hlaðast upp.
Það er ekki merkjabundið, þetta er bara eðlilegt slit.
Ég sagði þetta ekki út í loftið heldur út frá minni eigin reynslu.
Ég á Skoda dísel sem fór í túrbínu, spíssa, MAF skynjara, parkskynjara, bremsudælur og fleira, allt innan árs.
Þetta fór samtals yfir milljón í viðgerðum, þó bíllinn hafi verið í góðu ástandi og við haldið skv. bók.
Punkturinn minn er bara sá að fólk geri sér grein fyrir hvað getur verið fram undan við þennan aldur og kílómetrafjölda.
Það er ekki tilgangslaust. Það er praktískt.