GuðjónR skrifaði:Holy! FLASSHHBACKK!!! þegar ég var unglingur og bjó á Akureyri þá keyrði ég eitt sinn nákvæmlega svona bíl. Það var fljúgandi hálka og snarvitlaust veður og ég man ennþá hvað hann var duglegur í snjónum. Þegar maður gaf inn þá vantaði sko ekki hávaðann og hann rauk ekkert af stað með neinum svakalegum látum en það var ekkert sem stoppaði hann. Hlakka til að sjá útkonuna hjá ykkur þegar hann verður ready.
Já þessi bíll vekur upp einmitt svona hjá fólki hehehe, vekur alveg rosalega mikla athygli út á götu, allir horfa og taka myndir og benda, gaman að því

Það er bara að vona að hann verði einhverntímann fínn, við höfum varla kunnáttu né aðstöðuna til þess að gera hann mjög fínan, það er ekkert rifið niður að grind og allt gert tip top eins og
ætti að gera, eigum ekki einu sinni suðugræjur :/
En maður svona reynir með það sem maður hefur, trefjaplastið kemur að góðum notum, þó það sé ekkert til að vera stoltur af

en hann verður nú bara ansi sæmilegur eftir að maður hefur fundið original afturbretti og lagað þessa endalausu leka sem hrjá hann.
Hann verður náttúrulega aldrei fínn ef hann er ekki sprautaður, lakkið er orðið mjög slæmt, fullt af litlum ryðbólum og blettum, það var pæling hjá okkur að 'spreyja' hann sjálfir, eða jafnvel rúlla, en það er ekki nógu skemmtilegt, en við erum bara ekki að týma þessum peningum sem það kostar að sprauta hann..
Hér eru nokkrar myndir eins og hann var þegar við fengum hann fyrst :
http://imgur.com/C1a0oRD,Bhc34mm - Framan á
http://imgur.com/6pYuoMe,pdZcAUo,V904LaX,WQl9kw1 - Aftan á
http://imgur.com/6pYuoMe,pdZcAUo,V904LaX,WQl9kw1#1 - Þetta blasti við þegar við tókum gólfdúkin af, þykkt ryðhrúður og allt í götum og viðbjóði.
http://imgur.com/C1a0oRD,Bhc34mm#1 - Gólfið eftir viðgerðir, þarna var búið að bera á ryðvarnarefni og grunn, svo var málað og svo sett tectyl yfir.
En það sést alveg hversu illa farið þetta er, það hefði þurft nýtt gólf, en það kostaði rúmlega 190 þúsund kr ef maður keypti erlendis.
http://imgur.com/6pYuoMe,pdZcAUo,V904LaX,WQl9kw1#2 - Farþegagólfið..
http://imgur.com/6pYuoMe,pdZcAUo,V904LaX,WQl9kw1#3 - Frammí..
Svona var þetta allt, fann alltaf meira og meira ryð, margir margir ryksugupokar fylltust af ryði á þessu tímabili

*GuðjónR - Er hann enn til í dag? Hvað var númerið á honum?
