Síða 2 af 2

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 05. Jan 2013 21:51
af Hvernig.Net
bixer skrifaði:
Televisionary skrifaði:Ég er að nota Xbian uppsetningu á einu boxi þetta virkar ljómandi vel hjá mér. Ég er einnig að keyra annað eintak bara með Debian uppsetningu og engu GUI. Ég var í einhverjum vandræðum með uppsetningu á innrauðum móttakara en leysti það tímabundið með því að nota "app" í iPhone.

Þriðja boxið mitt fer svo í þróun á "home automation" dóti. Á meðan Xbian boxið er ekki alveg 100% stable m.v. Apple TV.


Mig langar einmitt að fara út í home automation og xbmc en sé rosalega takmarkað sem ég get notað pi-ið í ef þið eruð með hugmyndir megið þið endilega kommenta. ætla allavega að stjórna ljósunum, láta skynja hvenær ég kem heim og minna mig á hvað ég þarf að gera þann daginn þegar ég "logga mig út"

er aðeins byrjaður að forrita þetta en er ekki kominn langt, geri örugglega þráð um þetta þegar ég flyt

Prufaðu þetta: https://www.youtube.com/watch?v=ZaLbHmoulGg

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 05. Jan 2013 22:05
af Hargo
Ég elska þessa litlu græju. Er að keyra Raspbmc og ég er mjög sáttur. Notast við USB Media Center fjarstýringu. Hef ekki fundið fyrir laggi en ég er ekki með það stórt library, bara um 250GB af bíómyndum.

Hef einmitt heyrt af fleirum sem hafa fært library database-inn í MySQL með góðum árangri til að fá meiri hraða ef safnið er orðið stórt.

En eruð þið að tengja hindberið með ethernet eða hefur einhver prófað að notast við wireless usb dongle?

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 05. Jan 2013 22:35
af Hvernig.Net
Hargo skrifaði:Ég elska þessa litlu græju. Er að keyra Raspbmc og ég er mjög sáttur. Notast við USB Media Center fjarstýringu. Hef ekki fundið fyrir laggi en ég er ekki með það stórt library, bara um 250GB af bíómyndum.

Hef einmitt heyrt af fleirum sem hafa fært library database-inn í MySQL með góðum árangri til að fá meiri hraða ef safnið er orðið stórt.

En eruð þið að tengja hindberið með ethernet eða hefur einhver prófað að notast við wireless usb dongle?

Ethernet

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 05. Jan 2013 22:54
af hagur
Var ekki nægilega ánægður með PI ið mitt í sumar þegar ég keypti það, fannst það lagga of mikið og afspilun ekki sem best. Var þá að nota Raspbmc. Svo fór að þetta endaði oní skúffu. Var svo núna að dusta rykið af þessu, langaði í XBMC setup inní hjónaherbergi. Setti upp nýjasta build af OpenELEC og þetta er bara að rokka feitt. Er með þetta vírað með CAT5e, hef ekki prófað WIFI dongle og hyggst ekki gera það.

Er samt í veseni með gamlar AVI skrár, sem eru líklega DivX eða XVID, það hökktir leiðinlega hjá mér. Eru aðrir að lenda í því? Kemu svosem ekki að sök þar sem ég encoda flest efni í h264 sem ekki er þegar á því formi.

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 05. Jan 2013 22:57
af Hvernig.Net
hagur skrifaði:Var ekki nægilega ánægður með PI ið mitt í sumar þegar ég keypti það, fannst það lagga of mikið og afspilun ekki sem best. Var þá að nota Raspbmc. Svo fór að þetta endaði oní skúffu. Var svo núna að dusta rykið af þessu, langaði í XBMC setup inní hjónaherbergi. Setti upp nýjasta build af OpenELEC og þetta er bara að rokka feitt. Er með þetta vírað með CAT5e, hef ekki prófað WIFI dongle og hyggst ekki gera það.

Er samt í veseni með gamlar AVI skrár, sem eru líklega DivX eða XVID, það hökktir leiðinlega hjá mér. Eru aðrir að lenda í því? Kemu svosem ekki að sök þar sem ég encoda flest efni í h264 sem ekki er þegar á því formi.

Gætir verið með Build A?

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Sun 06. Jan 2013 12:27
af hagur
Build A af hverju? OpenELEC?

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Sun 06. Jan 2013 12:41
af Hvernig.Net
hagur skrifaði:Build A af hverju? OpenELEC?



raspberrypi.org/faqs skrifaði:Model A has 256MB RAM, one USB port and no Ethernet (network connection). Model B has 512MB RAM, 2 USB port and an Ethernet port

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Sun 06. Jan 2013 13:40
af hagur
Er með model B. Reyndar bara 256mb eins og þær voru fyrst.

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Þri 08. Jan 2013 19:18
af capteinninn
viddi skrifaði:
hannesstef skrifaði:Hvernig gerirðu þetta nákvæmlega?

Var að fá stóran disk til að setja allt efnið mitt á einn stað og er að klára að fara í gengum það með Ember til að passa að XBMC scrape-i almennilega. Einn helsti vankosturinn við XBMC á RPi er hvað það er lengi að loada í menu-inu, væri frábært að geta aukið hraðann með þessari aðferð sem þú talar um


Hér eru góðar leiðbeiningar hvernig þetta er gert.


Skil ekki alveg hvað ég geri eftir að ég set upp MySQL á tölvunni með öllu efninu á. Er með fresh install af Xbian á R-Pi hjá mér og er alveg á byrjunareit eins og er með þessa uppsetningu. Á ég að opna XBMC á borðtölvunni með efninu og búa til library fyrst eða hvað geri ég eftir að ég er búinn að installa mysql á tölvunni?

Edit*
Prófaði að fylgja leiðbeiningunum bara beint og setti smb shares í XBMC og núna er það að skanna möppurnar, hefði ég þurft að búa til library fyrst á borðtölvunni og svo fært það yfir í R-Pi eða skiptir það ekki máli?

Er líka að spá því ég er búinn að fara í gegnum safnið með Ember til að flokka betur myndirnar og búa til info fyrir þær sem er ekki til info á imdb eða moviedb, mér sýnist xbmc samt vera að fara á netið að finna upplýsingarnar, mun XBMC nota upplýsingarnar í möppunni eða mun það fara á netið að finna allar upplýsingarnar þar?

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Þri 08. Jan 2013 20:55
af Zorky
Er að nota xbmc án issues er komin inn á pc og flakkran og byrjaður að streama.

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Fös 11. Jan 2013 18:33
af Hvernig.Net
Er einhver annar með vandræði með airplay?

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Sun 28. Apr 2013 21:05
af nesitech
Hef verið að nota RPI síðan þessi snilld fór í sölu og hef verið að nota þetta fyrir XBMC. Mæli eindregið með þvi að nota OpenElec til að keyra þetta á, hef prufað allt annað sem er í boði og það er mikill munur að mínu mati á OpenElec og hinum.
Ég nota sjálfur app í iPad sem heitir Constellation sem loadar öllu library þínu og þú getur browsað í gegnum movies og tv shows án þess að þurfa að gera það í sjónvarpinu sjálfu og því losnar RPI við álagið við að vera fletta í gegnum library sérstaklega ef þið eruð með stórt safn.
Svo er einnig sniðugt að hafa library á annarri tölvu, og auðvitað vera með þetta allt LAN tengt og ekkert þráðlaust kjaftæði (þó það virki)

Í sambandi við overclockið þá þurfið þið ekki að hafa of miklar áhyggjur á því, stillinginn sem er algengust fyrir XBMC til að keyra án þess að ganga alveg frá tækinu eru:

arm_freq=850
gpu_freq=325
sdram_freq=425
over_voltage=2

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Sun 28. Apr 2013 21:26
af capteinninn
nesitech skrifaði:Hef verið að nota RPI síðan þessi snilld fór í sölu og hef verið að nota þetta fyrir XBMC. Mæli eindregið með þvi að nota OpenElec til að keyra þetta á, hef prufað allt annað sem er í boði og það er mikill munur að mínu mati á OpenElec og hinum.
Ég nota sjálfur app í iPad sem heitir Constellation sem loadar öllu library þínu og þú getur browsað í gegnum movies og tv shows án þess að þurfa að gera það í sjónvarpinu sjálfu og því losnar RPI við álagið við að vera fletta í gegnum library sérstaklega ef þið eruð með stórt safn.
Svo er einnig sniðugt að hafa library á annarri tölvu, og auðvitað vera með þetta allt LAN tengt og ekkert þráðlaust kjaftæði (þó það virki)

Í sambandi við overclockið þá þurfið þið ekki að hafa of miklar áhyggjur á því, stillinginn sem er algengust fyrir XBMC til að keyra án þess að ganga alveg frá tækinu eru:

arm_freq=850
gpu_freq=325
sdram_freq=425
over_voltage=2


Frekar openelec heldur en Xbian?

Er að nota Xbian hjá mér og Yatse til að spila alltsaman og það virkar ágætlega, svoldið hægt stundum reyndar en ég er ekki með það neitt yfirklukkað.

Get ég gert backup af libraryinu á xbian og restorað það á openelec?
Er með allt í borðtölvunni og streama yfir í r-pi

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Fös 14. Jún 2013 18:12
af bezzen
Eruð þið með bíómyndirnar á flakkara tengdann við RPi eða deilt í gegnum netið smb/nfs ?

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Fös 14. Jún 2013 19:02
af hagur
Er með allt á file-server shared í gegnum smb.

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 15. Jún 2013 09:29
af BugsyB
RPI er snilld ég hef verið að setja nokkur upp og finnst raspbmc þægilegast í dag

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 15. Jún 2013 11:52
af Stutturdreki
Er með raspbmc á PI B og streama af borðtölvu. Uppfyllir allar mínar væntingar, þe. getur spilað allt (nema reyndar BlueRay rip) og krakkarnir geta notað þetta án þess að ég þurfi alltaf að hjálpa til.

Getur einhver mælt með XBMC appi umfram önnur? Það er eiginlega eina sem mig vantar til að þetta sé fullkomið, eitthvað gott viðmót til að stýra þessu.

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 15. Jún 2013 15:58
af kthordarson

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 15. Jún 2013 19:43
af gRIMwORLD
+1 á Yatse, by far langbesta appið fyrir Android. Official XBMC Remote er fyrirlöngu dottið úr keppninni.

Nota Raspmc og er bara ágætlega sáttur við það. Keyri Plex plugin til að streama frá plex server bræðra minna, einn á Íslandi og hinn á Ítalíu, ekkert til að kvarta yfir ennþá :)

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Mán 17. Jún 2013 15:08
af Stutturdreki
Ah, er með ipad og finn Yatse ekki í appstore. Náði í nokkur XBMC apps og er að prófa, lýst best á XBMC Touch so far.

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 22. Mar 2014 23:53
af siggis1
Hefur einhver lent í vandræðum með airplay og raspberry pi ?
Er með rasplex sett upp á pi og með router frá vodafone
Í stuttu máli þá virkar airplay ekki. Get hvorki streymt úr itunes né úr plex client á símanum eða tölvunni.
Ég sé græjuna í símanum og tölvunni en get ekki streymt efni

Leitaði að svörum á netinu og þar er talað um broadcasting stillingu á routernum...leitaði að slíku á routernum en fann ekkert
Getur verið að þetta sé ekki hægt með vodafone routerana ?
anyone ?

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Fös 06. Jún 2014 00:12
af PepsiMaxIsti
Kvöldið, er að reyna að setja upp og prufa að nota xbmc á raspberry tölvu, málið er að ég fæ alltaf connection refused á þá tölvu sem geymir alla þætti og myndir, sem ég er með, en get opnað og sett í file manager aðra tölvu sem ég er ekki með efnið á, vitið þig eitthvað hvernig ég get lagað það hjá mér.

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Fös 06. Jún 2014 10:18
af Stutturdreki
Geturðu tengst efnis-tövlunni frá öðrum tölvum/tækjum? Þe. er shareið rétt uppsett, pi-ið á sama neti og allt svoleiðis?

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Lau 07. Jún 2014 21:36
af PepsiMaxIsti
Stutturdreki skrifaði:Geturðu tengst efnis-tövlunni frá öðrum tölvum/tækjum? Þe. er shareið rétt uppsett, pi-ið á sama neti og allt svoleiðis?


Kemmst inná frá öðrum tölvum, sama net og allt annað sem ég er með, er með apple tv sem að ég næ að vera með xbmc á, engin vandamál þar, bara í pi tölvunni.

*Edit* Eftir frekari skoðun, þá kemst ég ekki inná folderana frá apple tv í xbmc, sama hvað ég reyni, hvað gæti verið vandamálið?

Re: Eru fleiri að nota Raspberry Pi í XBMC?

Sent: Þri 10. Jún 2014 09:46
af Stutturdreki
Í öðrum þræði (viewtopic.php?f=82&t=61199) segistu hafa skipt um router, frekar líklegt að þessi vandamál tengist því. Ertu með PIið á DHCP og eru allar netstillingar réttar (DNS, Gateway og það allt). Þegar þú ert að mounta drifið/drifin hefurðu prófað að nota iptölur?