Síða 1 af 1

Top Episode Downloader (TED)

Sent: Lau 28. Apr 2012 15:30
af minuZ
Sælir, ég er að byrja að skoða forritið TED og lýst ágætlega á það en er ekki hægt að stilla það þannig að þau torrent sem það sækir fara í sér möppu líkt og er gert með rss feed í utorrent. Það væri reyndar allt í lagi ef það væri hægt að setja sjálfvirkt label á þau torrent.

Re: Top Episode Downloader (TED)

Sent: Lau 28. Apr 2012 17:56
af Orri
Skoðaðu SickBeard.
Það er reyndar gert fyrir Usenet en virkar fínt með Torrent :)

Re: Top Episode Downloader (TED)

Sent: Lau 28. Apr 2012 21:00
af Frantic
Orri skrifaði:Skoðaðu SickBeard.
Það er reyndar gert fyrir Usenet en virkar fínt með Torrent :)

Var að henda inn SickBeard á serverinn hjá mér.
Hvar segi ég forritinu að nota UTorrent til að downloada?
Annað, TV serverinn minn á eitthvað erfitt með að spila .mp4 skrár.
Hvaða format er á þessum skrám sem hann downloadar?

Re: Top Episode Downloader (TED)

Sent: Lau 28. Apr 2012 22:46
af minuZ
ég er einmitt í sama vandamáli með að nota þetta til að downloada torrentum í gegnum utorrent

Re: Top Episode Downloader (TED)

Sent: Lau 28. Apr 2012 22:52
af einsii
Látið SB setja torrent filana í folder sem utorrent fylgist með og sækir allt sem kemur þar inn.. Ég hef það á dropboxinu mínu svo ég geti látið serverinn sækja hvað sem er hvaðan sem er og það er klárt þegar ég kem heim :)

Re: Top Episode Downloader (TED)

Sent: Sun 29. Apr 2012 00:28
af Frantic
einsii skrifaði:Látið SB setja torrent filana í folder sem utorrent fylgist með og sækir allt sem kemur þar inn.. Ég hef það á dropboxinu mínu svo ég geti látið serverinn sækja hvað sem er hvaðan sem er og það er klárt þegar ég kem heim :)

Takk fyrir svarið, nú skil ég þetta miklu betur.
En veistu hvort það sé hægt að hafa það skilyrði að þetta downloadi aðeins .avi skrám?
TV serverinn minn vill nefnilega ekki spila .mp4 format einhverra hluta vegna.