Síða 1 af 1

Hjálp við R Studio??

Sent: Sun 30. Des 2018 16:55
af Ólafur
Halló

Rakst á þessa síðu fyrir tilviljun og datt í hug amk próf að spurja hér.

Er einhver möguleiki á að fá hjálp við Rstudio?? Ég er semsagt að fara í próf á næstunni og kann mjöööög lítið í þessu :hmm

Öll hjálp er vel þegin O:)

kv Óli

Re: Hjálp við R Studio??

Sent: Sun 30. Des 2018 18:24
af emilbesti
Af minni reynslu er lang best að fikta sig bara aðeins áfram og vera duglegur að gúgla, ég get mögulega leiðbeint þér eitthvað með þetta en það er lítið hægt að hjálpa þér ef við vitum ekki hvað þig vantar hjálp við.

Edit:
Er þetta mögulega próf í líkinda og tölfræði uppi í HÍ?

Re: Hjálp við R Studio??

Sent: Sun 30. Des 2018 23:20
af Sporður
Rstudio er náttúrulega bara grafískt viðmót fyrir R. Mjög þægilegt í notkun en þú gerir ekki mikið með R ef þú veist á annað borð ekki hvað það er sem þú ætlar að gera tölfræðilega.

Það er til bók fyrir R sem ég held að stundakennarar í HÍ hafi skrifað. Hef ekki hugmynd um í hvaða skóla þú ert en ég myndi byrja þar.

Re: Hjálp við R Studio??

Sent: Sun 30. Des 2018 23:38
af Hjaltiatla
Getur prófað að tékka á þessum kúrs á Udemy.
https://www.udemy.com/r-programming/

Ef þú ert í tímaþröng þá er 80/20 reglan ágæt (fókusa á stöffið sem skiptir mestu máli sem þú telur að komi á prófi en passa uppá að ná hlutunum sem tengir efnið saman svo þú skiljir efnið).
Btw er ekki sjálfur búinn að fara í gegnum þennan kúrs (þetta er í raun bara best rate-aði R/rstudio kúrsinn á Udemy)

Re: Hjálp við R Studio??

Sent: Sun 30. Des 2018 23:52
af Hentze
Rétt að R-studio er notendaviðmót fyrir R en það eru sárafáir sem nota hrátt R nútildags. Bókin heitir R frá grunni og var samin af þremur doktorum í tölfræði þar af tvær prófessorar við HÍ. Ef þú ert nemandi við HÍ ættir þú að hafa fengið aðgang að PDF af bókinni en ef ekki þá er slóð á hana hér: https://edbook.hi.is/R_fra_grunni/kafli01_final.html

Re: Hjálp við R Studio??

Sent: Fim 03. Jan 2019 18:17
af Ólafur
emilbesti skrifaði:Af minni reynslu er lang best að fikta sig bara aðeins áfram og vera duglegur að gúgla, ég get mögulega leiðbeint þér eitthvað með þetta en það er lítið hægt að hjálpa þér ef við vitum ekki hvað þig vantar hjálp við.

Edit:
Er þetta mögulega próf í líkinda og tölfræði uppi í HÍ?



Nei þetta er Lokaverkefni í Háskólanum í Suður Danmörku og áfanginn heitir Statistical Tools. (Skylduáfangi)

Ég bara hef aldrei á ævinni verið í tölfræði áfanga áður eða því tengt og er því algjör auli í að læra þetta á þrem mánuðum..

Enn öll hjálp er vel þegin :)

Re: Hjálp við R Studio??

Sent: Fim 03. Jan 2019 18:21
af Ólafur
Hjaltiatla skrifaði:Getur prófað að tékka á þessum kúrs á Udemy.
https://www.udemy.com/r-programming/

Ef þú ert í tímaþröng þá er 80/20 reglan ágæt (fókusa á stöffið sem skiptir mestu máli sem þú telur að komi á prófi en passa uppá að ná hlutunum sem tengir efnið saman svo þú skiljir efnið).
Btw er ekki sjálfur búinn að fara í gegnum þennan kúrs (þetta er í raun bara best rate-aði R/rstudio kúrsinn á Udemy)



Snilld, get tékkað á þessu takk!

Enn ég er samt í rosalegri tímaþröng með þetta Lokaverkefni (s.s Lokaverkefni ekki próf , ruglaðist aðeins)
er að vinna í annari ritgerð samhliða þessu verkefni, ég bara kann minnst á þetta Rstudio (sirka 20-30% sem ég tel mig kunna.)

BTW get ég nálgast þetta Udemy prógram hvenær sem er?? Að ég þurfi ekki að kaupa það aftur ef til vill illa færi? :) :)

Re: Hjálp við R Studio??

Sent: Fim 03. Jan 2019 19:04
af Hjaltiatla
Ólafur skrifaði:Snilld, get tékkað á þessu takk!

Enn ég er samt í rosalegri tímaþröng með þetta Lokaverkefni (s.s Lokaverkefni ekki próf , ruglaðist aðeins)
er að vinna í annari ritgerð samhliða þessu verkefni, ég bara kann minnst á þetta Rstudio (sirka 20-30% sem ég tel mig kunna.)

BTW get ég nálgast þetta Udemy prógram hvenær sem er?? Að ég þurfi ekki að kaupa það aftur ef til vill illa færi? :) :)

Jebb, Full lifetime access af efninu þeirra.

Gangi þér vel :)